Sagnir - 01.06.2003, Síða 41

Sagnir - 01.06.2003, Síða 41
HÓPFLUG ÍTALA ÁRIÐ 1933 grein þar sem reynt var að „opna augu“ landans fyrir því, að þrátt fyrir að hópflug Italanna væri eftirtektarvert, væri „dirfska og hugdirfð Balbo flugmálaráðherra og foringja leiðangursins ekki meiri en hins lægst setta vélamanns, sem er ekki þó getið í skeytum - en hún er jöfn“.55 Alþýðublaðið skrifaði einnig um fasistastjórn Itahu og ítölsku þjóðina sem engu ræður um eigin aðstæður, um Mussohni og launmorð eins morðið á Matteotti og segir svo: Balbo, foringi leiðangursins, er einn af aðalmönnum fasismans. Hann er án efa duglegur maður og vel gefinn, en hann situr á rétti ítalskrar alþýðu og kúgar hana, kúgar skoðanir hennar, sviftir hana ritfrelsi, málfrelsi og athafnafrelsi. Hann kemur hingað í land alþýðu, sem hefir rétt til að hafa samtök og beqast sinni baráttu, í land þar sem lýðræði ríkir og frelsi í skoðunum. Hann kemur hingað sem gestur - og fer sem gestur. Samkvæmt því verður ffamkoma Islenzkrar alþýðu við hann. Hún lætur hann afskiftalausan.56 A meðan á dvöhnni á Islandi stóð lét Balbo ávallt þýða fýrir sig fréttimar úr íslensku dagblöðunum og „er hann varð var við svívirðingar þær sem kommúnistar birtu um hann og leiðangur hans, brosti hann að því, að hér úti á Islandi skyldu flokksmenn Rússastjórnar vera æstari og öfgafyllri en sjálfir Rússar".57 Skopstceling Það vom ekki eingöngu hin hefðbundnu dagblöð sem tóku fýrir komu Balbo til landsins heldur var einnig önnur tegund skrifa. Spaugilega hliðin á málinu var sýnd, fúll af háði. Spegillitm sem var vinsælt grínblað með undirtitilinn: „Samviska þjóðarinnar, góð eða vond eftir ástæðum“58 birti tvær greinar tengdar komu Balbo. I annarri var gert almennt grín að íslendingum sem hvorki kunnu að spara né hegða sér rétt í umgengni við frægan mann og vom ræður forsætisráðherra og Balbo teknar fýrir og gert að þeini gys: ... Yðar hágöfgi, Bóbó ráðherra og þið allir hinir! Það er ekki of mikið sagt, að vjer höfúm beðið eftir yður með óþreyju, og þó er ekki mikið að sjá okkur á móti kvenfólkinu, því hefðuð þið sjeð, hvemig það hefir látið þessa dagana, myndi ykkur ofbjóða, og kallið þið þó ekki allt ömmu ykkar, svona hugrakkir eins og þið emð. ...59 í hinni greininni veltir blaðið fýrir sér afrekum Italanna hér á landi og segir: „... þau þurfa náttúrulega ekki að hafá verið mikil, þó þeir séu miklir á lofti. Þó tókst Balbo ráðherra að veiða lax einn í Elliðaánum, með höndunum, en það er bannað. Vitum vér ekki, hver borgar sektina...".60 Eftir heimskreppuna urðu ungir rithöfundar róttækari og stofnuðu samtök byltingarsinnaðra rithöfúnda sem gáfú út tímaritið llauðirpennar.b' Einn þessara höfunda var Halldór Kiljan Laxness og birti hann smásögu sína „Ósigur ítalska loftflotans í Reykjavík 1933“ í því tímariti árið 1937. Sagan fjallar um „pikkaló” sem vann á hótelinu þar sem hin fræga persóna dvaldi. Höfúndur notar ekki hin réttu nöfn einstaklinganna en það fer ekkert á milli mála við hvem er átt þegar talað er um Pittigrilli (Balbo) og hóp hans hér á landi. Smásagan er fúll af háði og ádeilu á fasismann, auk þess sem mikið grín er gert að aðdáun manna á einkennisbúningum þeim sem hópurinn var í enda er: „Island ... eina landið í heimi sem á ekki hermenn og því hafa þessir fátæku eyjaskeggjar orðið að fara á mis við þann alkunna dýrðarljóma sem stafar af einkennisbúningum ásamt þeim titlum og gráðum sem þessi sérkennilegi fatnaður tjáir“.62 Pikkalóinn skilur ekki alveg að stigsmunur er á einkennisbúningunum en telur sig jafnan hinum þar sem hann er einnig í búningi með gljáfægðum hnöppum við vinnu sína og verður úr þessu mikil ringulreið. I smásögunni er einnig gert grín að íslenskum þjónum þessa tíma en miskilningur þeirra á milh er hreint ótrúlegur og er augljóst að ólík tungumál og mismunandi hefðir geta skapað hin ótrúlegustu vandamál: Þjónamir héldu Pittigrilli gestgjafann og byijuðu að ausa upp súpunni við hinn borðsendann og hyltust til að láta hann mæta afgangi, sömuleiðis bára þeir steikina fýrst þeim manni sem fjarstur sat Pittigrilla við borðið. Hvemig sem á því stóð, olli framreiðslan miklum hugaræsingi meðal gestanna, en þegar þjónarnir skiftu ekki um háttalag í þriðja sinn reis Pittigrilli á fætur ásamt þeim er næstur honum sátu, lét kalla fýrir sig yfirþjóninn og talaði yfir honum um stund á fegurstu ítölsku, altað fjögurhundruð orð á mínútu, baðandi út höndum og fótum. Takk fýrir, sagði yfirþjónninn og hneigði sig.63 Sama sagan endurtók sig næsta kvöld en í það sinni risu Italimir á fætur allir sem einn og yfirgáfu svæðið án þess svo mikið sem smakka á súpunni sem fýrir þá hafði verið lögð. ítalski konsúllinn var þá kominn í málið og tók íslenska yfirþjóninn tali sem aftur ræddi við þjónana. Hjá þeim fékk hann þá útskýringu á hátteminu að þeir töldu Pittigrilli vera gestgjafann og eins og allir vita þá tíðkast það á glæsilegri veitingastöðum að þjóna þeim síðast sem býður. Þrátt fýrir að viðbrögð manna hafi verið misjöfn gagnvart komu Italanna til landsins árið 1933 er næsta víst að um er að ræða merkan viðburð í sögu okkar íslendinga, viðburð sem jafhffamt gerði mönnum ljóst að landið var tilvalið sem áfangastaður á leið milli tveggja heimsálfa. Því er vert að minnast hópflugs Itala nú þegar 70 ár em liðin frá ferð þeirra þvert yfir Atlantshafið.64 ♦ ♦ ♦ SAGNIR 39
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Sagnir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.