Flóra: tímarit um íslenzka grasafræði - 01.01.1963, Blaðsíða 123
117
4. Stofnun styrktarsjóðs fyrir ekkjur drukknaðra sjómanna. 5.
Að komið yrði á fót ábyrgðarsjóði fyrir báta og veiðarfæri og
6. Að koma á fót sundskóla fyrir héraðið. Mesta áherzlu legg-
ur hann Jró á tvö fyrstu atriðin. Tillögur þessar sýna, að margt
hefur brotizt um í huga liins unga kennara á Möðruvöllum
um þessar niundir, og þótt ekki yrði úr framkvæmdum að því
sinni, er víst, að tillögur hans liafa vakið umhugsun og um-
ræður.
Þegar Norðurljósið hætti að koma út á Akureyri var ekkert
blað lengur norðanlands. Mun áhugamönnum hafa Jrótt Jjað
súrt í broti, að eiga ekkert málgagn fyrir skoðánir sínar. Klem-
enz Jónsson, sýslumaður átti þá frumkvæði að því, að efnt var
til félagsfundar til að koma á fót blaði. Fékk hann Stefán og
fleiri áhugamenn í lið með sér. En góður kunningsskapur og
samstarf var Jjá með honum og Stefáni. Blaðið hóf göngu sína
í janúar 1893, og hét það Stefnir. Var Stefán í blaðstjórninni,
og skrifaði nær allt fyrsta tölublaðið. Skrifaði hann margt í
Stefni næstu árin, aðallega undir dulnefninu Ármann. En
eftir að Valtýskan kemur til sögunnar mun hafa dregið sund-
ur með honum og Stefnismönnum, að minnsta kosti hættir
hann að mestu að skrifa í blaðið síðustu ár aldarinnar. En að
vísu hafði liann þá mörgum öðrum hnöppum að hneppa.
Upp úr aldamótunum, Jrótti Jjeim Valtýingunum gömlu
allillt að liafa ekkert málgagn á Akureyri. Varð þá að ráði að
stofna blaðið Norðurland, og réðst Einar H. Kvaran til Akur-
eyrar sem ritstjóri Jjess í fyrstu. Var Stefán einn aðalhvata-
maðurinn að stofnun blaðsins og formaður blaðstjórnarinnar
um skeið. Skrifaði Stefán margt í Norðurland næstu árin og
liefur ýmissa greina hans verið áður getið. En einkum ræddi
hann þar stjórnmál, skóla- og önnur menningarmál. Sérstak-
lega vil ég þó geta hér greinaflokks, sem liann nefndi Ný rit
um náttúru landsins. Eru það fregnir af ritum og ritgerðum,
sem skrifuð voru um ísland og náttúru Jress, einkum á erlend-
um málum. Mun naumast nokkur ritgerð hafa komið út um
Jjau efni á árunum 1902—1908, að Stefán geti hennar ekki.
Ritfregnir Jressar eru hinar fróðlegustu. Gefur hann yfirlit um
meginefni ritgerðanna, dæmir þær og gerir við þær ýmsar at-