Flóra: tímarit um íslenzka grasafræði - 01.01.1963, Blaðsíða 59
53
kosinn í stjórn þess og brátt tók hann þar við formennsku.
Tók félagið nú þeim stakkaskiptum, að það komst í fremstu
röð búnaðarfélaganna á landinu um framkvæmdir; aðeins tvö
urðu því fremri. Mestan þátt í þessum fjörkipp átti það, að
Stefán fékk því til leiðar komið, að öllum landssjóðsstyrk
þeim, sem lélagið fékk var varið til jarðabótavinnu en ekki
skipt upp milli einstaklinga. Þá gekkst hann og fyrir því að
keypt voru plægingatæki, og stutt var að því, að Stefán Marz-
son var sendur utan til jarðræktarnáms, einkum til að læra
plægingar og notkun hestaverkfæra. Voru á hverju ári 4—8
menn að jarðabótavinnu hjá félaginu alla þá stund, sem Stef-
án hafði forystu þess.
í janúar 1902 hófst Stefán handa um stofnun nautgripa-
ræktarlelags, hins fyrsta á Norðurlandi, og rjómabús; skyldu
samtök þessi ná ylir Arnarness-, Skriðu- og Glæsibæjarhreppa.
Hvort tveggja komst á fót ári síðár. Störfuðu bæði félögin um
alllangt skeið. Rjómabúið var reist á Möðruvöllum en lagð-
ist niður nokkru eftir að Stefán lét af búskap. Var Stefáni á
þessum árum einkar sýnt um að lá bændur til að bindast sam-
tökum um framfaramál í búnaði, og þóttu fá ráð ráðin inn-
an héraðs, nema liann væri þar til kvaddur.
Ræktunarfélag Norðurlands.
Um sumarmálin 1893 bar gest að garði á Möðruvöllum, var
það ungur fnjóskdælskur bóndasonur, Sigurður Sigurðsson að
nafni. Hann hafði farið kynnisför vestur til Hóla og kom við
á Möðruvöllum í heimleiðinni. Þá réðst það, að Sigurður
kæmi næsta vetur til Möðruvalla. Dvaldist hann þar þá um
tveggja mánaða skeið og nam grasafræði hjá Stefáni. Gekk
námið með ágætum. Þetta var upphaf langrar vináttu og sam-
starfs þessara tveggja manna. Um þessar mundir settist Páll
Briem að á Akureyri sem amtmaður Norðurlands. Með hon-
um og Stefáni var gömul vinátta frá skólaárum, og hófst nú
milli þeirra hið gifturíkasta samstarf um fjöldamörg frant-
faramál, ekki sízt í búnaði. Þeir áttu frumkvæði að og studdu
Sigurð Sigurðsson til búnaðarnáms erlendis, sem tókst með
miklum ágætum. Hólaskóli hafði nú starfað á annan tug ára,