Flóra: tímarit um íslenzka grasafræði - 01.01.1963, Blaðsíða 39
33
lega sem framast var kostur við þær aðstæður, sem fyrir hendi
voru.
Matarvist skólapflta hafði frá fyrstu verið vandamál á
Möðruvöllum. Brytinn hafði selt skólasveinum fæði og það
reynzt bæði dýrt og misjafnt að gæðum. Jafnskjótt og Stefán
hóf búskap á Möðruvöllum fékk hann því til leiðar komið,
að piltar sjálfir stofnuðu matarfélag og önnuðust aðdrætti og
efniskaup, en Iiann seldi þeim hins vegar vinnu við matreiðslu
og þjónustu. Var því svo í hóf stillt ásamt innkaupum skóla-
pilta, að skólakostnaður lækkaði að miklum mun, og eftir
þann tíma heyrðust aldrei óánægjuraddir á Möðruvöllum um
matarvist, svo lengi sem skóli stóð þar. Sami háttur var á liafð-
ur um matarfélag eftir að skólinn kom til Akureyrar.
Margt hneig að því að Stefán laðaði að sér pilta. Fjölþætt
menntun og lifandi áhugi á öllum landsmálum vakti þá sjálfa
til umhugsunar, og hin fjörmikla framsetning hans, er hann
túlkaði skoðánir sínar varð í senn skemmtan oa: vakning. Hann
o o
tók í fyrstu mikinn þátt í félagsskap þeirra, kenndi þeim að
leika sér, ef svo mætti að orði kveða, leiðbeindi þeim um leik-
sýningar, tók þátt í umræðum á málfundum o. s. frv. Öllum,
sem til þekktu, kemur sarnan um að hann kunni öllum mönn-
um betur að halda uppi gleðskap, þar sem þess var þörf og
við átti. Slíkt kunnu skólasveinar að meta þá ekki síður en
nú. Þá kom einnig til gestrisni lians og umhyggja um hag
skólasveina. Guðmundur Friðjónsson segir frá því, er Stefán
tekur hann inn til sín á Sumardaginn fyrsta, veitir honum vel
og ræðir við hann „þann sumardag hef ég beztan lifað“. Lár-
us Bjarnason minnist þess, hversu vel þau hjón, Stefán og
Steinunn, önnuðust hann sjúkan vorið, sem Möðruvallaskóli
brann, og mýmörg dæmi samsvarandi mætti upp telja. En
þetta eru hlutir, sem ungir menn gleyma ekki.
Ekki hafð'i Stefán lengi starfað á Möðruvöllum, er við hann
festist heitið kennari. Undir nafninu Stefán kennari varð liann
þjóðkunnur, og munu fáir hafa fengið það kenningarnafn aðr-
ir. Og það var ekki að raunalausu. Allir, sem nokkuð þekktu
til kennslu hans, ljúka upp um hana einum rómi, að hann
væri kennari af Guðs náð. Námsgreinar þær, er hann kenndi
3