Sveitarstjórnarmál

Volume

Sveitarstjórnarmál - 01.04.1987, Page 33

Sveitarstjórnarmál - 01.04.1987, Page 33
FJARMAL haföur óbreyttur. Gert er ráö fyrir, aö bætur þessar hækki eftir sömu reglu og persónuafsláttur, þ.e. eftir hækkun lánskjaravísitölu. í stað vaxtafrádráttar húsbyggj- enda er gert ráö fyrir húsnæöis- bótum, 55.000 krónum á ári í sex ár, til þeirra, sem byggja eöa kaupa húsnæöi í fyrsta sinn, og veröa þær útborganlegar, séu þær hærri en álagður skattur viðkom- andi. Tekjumissir ríkissjóðs vegna núgildandi ákvæöa um vaxtafrá- drátt var við álagningu á árinu 1986 um 530 milljónir króna, og er bótafjárhæö frumvarpsins miöuö viö að kosta ríkissjóð u.þ.b. sömu fjárhæð. í frumvarpinu er miöað viö, aö húsnæðisbætur veröi greiddar í 6 ár vegna fyrstu íbúðar. Ætlað er, aö þegar fram í sækir, verði sam- tímis greiddar bætur vegna um 10200 íbúða. Þótt hér sé gert ráö fyrir sama fé og áður í þennan þátt, er Ijóst, aö meö hinu nýja fyrirkomulagi verður dreifing fjárins jafnari en áöur. Nú njóta þeir mest í vaxta- frádrætti, sem greiðastan aðgang hafa að lánum. Dreifing frádráttar- ins sýnir, aö hann vex meö hækk- andi tekjum. Samkvæmt frum- varpinu munu allir, sem byggja í fyrsta sinn, njóta afsláttarins aö jöfnu. Mun hann á þeim sex árum, sem hann er við lýði, svara til 65- 70% af vöxtum af hámarksláni Húsnæðisstofnunar. í staö sjómannafrádráttar og fiskimannafrádráttar gerir frum- varpiö ráð fyrir sérstökum afslætti frá skatti, sjómannaafslætti, er nemur 150 krónum á skráningar- dag. Fjárhæö sjómannaafsláttar er miðuð við aö hafa svipuð áhrif hjá sjómönnum og núverandi frá- dráttarreglur hafa hjá sjómanni meö meðaltekjur. í þessum lögum eru sóknar- gjöld og kirkjugarðsgjöld ekki ákveðin, en hins vegar miöaö viö, að þau veröi ákveðin þannig, aö tekjur af þeim veröi hinar sömu og þær voru á árinu 1986. Verði ekki svo, þarf aö endurskoða skatthlut- fallið með tilliti til þess. Áhrífin á tekjuöflun ríkissjóds Ég hef nú gert grein fyrir þeim meginbreytingum, sem frumvarp um tekjuskatt felur í sér, en þeim og forsendum þeirra er nánar lýst í greinargerð meö því. Ég vil í fram- haldi af því gera nokkra grein fyrir helztu áhrifum, sem vænta má, aö þaö hafi á tekjuöflun ríkissjóðs annars vegar og skattgreiöslur einstaklinga hins vegar, ef þaö verðurað lögum. Reiknistofnun Háskóla íslands var fengin til þess aö gera saman- burð á mismunandi álagningu á grundvelli úrtaks úr framtölum fyrir áriö 1985 og meta áhrif breyt- inga álagningarkerfisins á tekjur ríkissjóös. Til samanburöar var álagning áætluð eins og hún hefði orðið í staögreiðslu á árinu 1986. Til þess voru tekjur ársins 1985 hækkaðar um 33,5%, sem er áætluð meðal- hækkun tekna á mann á milli ár- anna 1985 og 1986, og búinn til nýr skattstofn, eins og honum er lýst í frumvarpinu. Að því loknu var álagning reiknuð eftir tillögum frumvarpsins. Útreikningar þessir sýna, að við þessa breytingu má gera ráð fyrir, að tekjur ríkissjóðs lækki um nærri 300 milljónir króna til viðbótar við þá lækkun, sem ákveðin var á síð- asfa ári. Frumvarp þetta felur í sér veru- lega hækkun skattleysismarka. Að sjálfsögðu þýðir það, að ríkissjóð- ur verður af tekjum, sem nemur þeim skatti, sem greiddur var af tekjum neðan þeirra, auk þess sem skattar af tekjum, sem komu til skattlagningar og voru ofan skattleysismarkanna, lækka nokk- uð. í þessum þáttum felst sú lækkun, sem kemur fram á tekjum ríkissjóðs. Á móti þessari lækkun kemur nokkur hækkun af breikkuðum skattstofni. Sú hækkun mun, að því er ætlað er, fyrst og fremst stafa af því, að skattlagðar verða tekjur, sem ekki hafa verið skatt- lagðar í núverandi kerfi. Ennfrem- ur standa vonir til, að með breytt- um ákvæðum í 59. grein laganna um viðmiðunartekjur, með stað- greiðslukerfinu og bættum mögu- leikum á eftirliti muni tekjur ein- staklinga með rekstur skila sér betur til skattlagningar en verið hefur. Ekki hefur verið tekið tillit til þess í framangreindum útreikn- ingum. Að því leyti sem frumvarpið gerir ráð fyrir hækkun skatta, er því ekki um að ræða hækkun hjá þeim, sem þegar greiða af öllum sínum tekjum, heldur því, að reynt er að koma því til leiðar, að þeir, sem hafa svipaðar tekjur, greiði einnig sambærilega skatta. Áhrífin á skattgreiöslur einstaklinga Áhrif breytinganna á skatta ein- staklinga stafa af tvennu: Annars vegar eru áhrif af breyttu álagn- ingarkerfi og hins vegar áhrif af breyttum skattstofni, þ.e. niður- felling frádráttarliða o.fl. Áhrifin af álagningarkerfinu einu saman eru jafnframt heildaráhrifin fyrir þá, sem ekki nutu eða munu njóta ívilnana af einu eða öðru tagi í formi sérstakra frádráttar- eða af- sláttarliða. Þessi áhrif hafa verið metin og sýna í stórum dráttum, að áhrif breytinganna fyrir þessa aðila eru annars vegar hækkun skattleysis- markanna eins og að var stefnt og að ofan þeirra lækka skattar sem nemur allt að 5-6% af tekjum næst mörkunum, en minna ofar. Þessi áhrif eru næsta jöfn hjá mismun- andi hópum nema hjá einhleyp- SVEITARSTJÓRNARMÁL 79

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.