Helgafell - 01.12.1955, Side 15

Helgafell - 01.12.1955, Side 15
MAGNUS ASGEIRSSON 13 Annað af fremstu ljóðskáldum sömu kynslóðar, Hannes Sigfússon, lætur svo um mælt: „Magnús Asgeirsson greiddi íslenzkum nútímaskáldum götu út úr sjálfheldu fortíðarinnar. . . . Hann kenndi okkur ljóðmál nútímans og gerði íslenzkum skáldum auðveldara að verða hluígeng í fylgd þjóðanna um ný- stárlega vegi“. Sennilega mundu engin eftirmæli hafa verið Magnúsi betur að skapi en þessi vitnisburður ungra skáldbræðra hans og lærisveina. V Þegar við Magnús réðumst til þess, árið 1942, að hafa með höndum rit- stjórn Helgafells, sem þá var á uppsiglingu, þótti okkur sjálfgert að sníða efni þess og frágang að ýtrustu kröfum, enda nutum við til þess meiri rausnar af útgefandans hálfu en hér hafði áður tíðkazt. Báðir höfðum við áreiðanlega fullan hug á að gera tímaritið svo úr garði, að íslenzkar bókmenntir og menn- ing mætti vænta sér þaðan verulegs liðsauka, en hvorki sæmir mér að leggja dóm á, hversu til hafi tekizt um það, né þarf ég heldur að fjölyrða um þann meginhlut, sem Magnús átti að viðgangi tímaritsins. Hins vegar er því ekki að leyna, að ýmsar torfærur urðu brátt á leið okkar. Bar það fyrst til, að hvorugur okkar var sérstök hamhleypa til daglegra starfa, og sitthvað það, sem aðrir hefðu sennilega talið til smámuna, kostaði ritstjórnina einatt furðu- miklar vangaveltur. I annan stað reyndist ótrúlega miklum erfiðleikum bund- ið að tryggja ritinu aðfengið efni, er stæðist æskilega gagnrýni um jákvætt innihald og listrænan búning, og hlaut hvort tveggja að segja til sín í rekstri tímaritsins. Tafðist útkoma þess oft meira en hóflegt mátti þykja og lagðist loks niður um sinn að fullnuðum fjórða árgangi. Um þessar mundir hvarf Magnús til Svíþjóðar, og dvaldi hann þar árlangt til hvíldar og hressingar. Mun heilsa hans þá þegar hafa verið verr farin en auðvelt var að sjá í fljótu bragði og fékkst ekki um bætt, þó að hann væri löngum tímum undir læknishendi. Kann þar nokkru að hafa valdið, að hon- um var öllu geðfelldara að semja líf sitt að speki Omars Khayyams en stóisku meinlæti, og þegar til þess kom, nokkrum árum seinna, að Helgafell yrði gefið út að nýju, var hann raunverulega þrotinn að starfsorku og taldi sig af þeim sökum vanbúinn til hlutdeildar í ritstjórninni. Lauk þannig samvinnu okkar fyrr en ætlað var, en engu að síður varð hún mér lærdómsrík á marga lund og geymi ég um hana góðar minningar. Mun sú og verða raunin um flesta, er einhver veruleg kynni höfðu af Magnúsi, að hann gerist þeim ærið fyrirferðar- mikill í endurminningunni, og ætla ég að þar muni mynd hans fremur skírast en smækka með árunum, því að hvorki verða kostir hans né gallar kenndir við meðalmennsku. Hann var flestum stórbrotnari í lund og háttum, samdi sig lítt að málamiðlun og skorti um margt þann sveigjanleik og mýkt, sem aflar auð- gleymdari mönnum vinsælda að fyrra bragði, en aldrei man ég til þess að
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Helgafell

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgafell
https://timarit.is/publication/1076

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.