Helgafell - 01.12.1955, Page 29

Helgafell - 01.12.1955, Page 29
DAVÍÐ STEFÁNSSON 27 né vinnm þess á óvænt. Þjóðin öll hefur fyrir löngu eignað sér Davíð Stefánsson umfram önnur samtíðars'káld, numið verk hans framar verk- um flestra annarra höfunda, lífs og liðinna, og iðulega sýnt og sannað, að hún kann að meta list hans að verðleikum. Það sætir því vissulega engri furðu, þó að margir, bæði einstaklingar og stofnanir, þættust eiga nokkurn rétt til Davíðs Stefánssonar og kysu sér hlut að þeim fagnaði, sem þjóðin bjó skáldi sínu. Nú er það vitanlega svo, eins og oft hefur venð tekið fram, að skáld- legar vinsældir eru ekki einhlítur mælikvarði á listrænt gildi og bók- menntalegt lífvæni. En vangaveltur um svo augljóst atnði mundu í þessu tilfelli vera gersamlega ilt í hött. Um það verður ekki deilt, að allt frá þeim degi, er Davíð Stefánsson frá Fagras'kógi birti fyrstu ljóð sín rúm- lega tvítugur, hefur hann verið allri þjóð sinni mikið og hugþekkt skáld. Mér er það enn í mjög glaðvakandi minni, 'hvílíkt ævmtýri það var okk- ur, skáldhneigðum unglingum þeirra daga, að fá í hendur fyrstu kvæða- bók Davíðs, enda litum við mjög upp til hins unga og glæsilega ljóð- snillings, sem steig eigi aðeins svo furðulega nýr og fullþroska inn í bók- menntirnar, heldur átti í yfirbragði sínu og fasi þann svipmikla persónu- lei’k, er lengi vel mótaði hugmyndir margra okkar um ótlit hins eina sanna skálds. Það er ef til vill ekki hvað sízt fyrir þessi heillandi æsku- áhrif, að mér hefur alla tíð síðan þótt vænna um Svartar fjaðrir en aðrar bækur Davíðs, og er mér samt fyllilega ljóst, að fjöldinn allur af heztu og athyglisverðustu kvæðum hans er seinna til orðinn. Ég þykist einmg vita, að mér hefði orðið vandalaust að átta nug á gildi þessara ljóða, þó að kynni mín af þeim hefðu bonð að í annan tíma, en ekkert af því, er seinna drífur á dagana, getur að öllu komið í stað þeirrar unaðslegu lífs- reynslu að 'hafa vaknað ungur og 'fagnandi í töfraheimi nýrrar skáldlistar. Mér hefur ávallt síðan fundizt ég standa í persónulegri skuld við Davíð Stefánsson og fyrir því er mér kært að mega nií, þó að seint sé, koma þakklæti mínu á framfæri við hann, og ætti mér reyndar að vera það því ljúfara sem íslenzk ljóðskáld, lifandi og óborin, hafa öðrum fremur ástæðu til að vera skáldsins þakksamlega minnugir. Þar á ég ekki við þau áhrif, sem ljóðstíll hans hefur haft á mörg yngri skáld, enda verður það efm ekki rakið hér. En ég hef við annað tilefni drepið á þá staðreynd, að vegna þess, hversu Davíð Stefánssyni hefur tekizt öðrum skáldum betur að ná eyrum alþjóðar, hefur fjöldi fólks um allt land og af öllum stéttum tam- ið sér að nýju lestur góðra ljóða og lært að meta þau. Hann hefur því ekki aðeins fært út landamerki íslenzkrar ljóðlistar að því er tekur til við-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Helgafell

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgafell
https://timarit.is/publication/1076

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.