Helgafell - 01.12.1955, Page 38
36
HELGAFELL
ur kvæðanna, hinn bjarti ásláttur, sem gefur þeim fyllingu og vídd,
ferskur hreimmikill tónn, sóttur í norrænt árdegi, minnir jafnvel stundum
á heiðinn strengleik úr forneskju. Að sjálfsögðu eru ljóð Davíðs ekki öll
jafn fullkomin að gerð, enda mætti slíkt furðu sæta, en jafnvel þau kvæð-
in, sem skáldið hefur látið sjálfráðust ferða sinna, kalla sjaldnast lesand-
ann til mikillar gagnrýni. Það er oftar eins og að vera staddur í lands-
lagi, það byrjar að mða og maður tekur ekki eftir því, að það gæti verið
öðruvísi.
Ég er ekki viðbúinn að leggja rökstuddan dóm á ritverk Davíðs Stefáns-
sonar í óbundnu máli, en hann 'hefur sem kunnugt er skrifað fjögur leik-
rit, sem öll hafa verið tekin til sýningar, og eina stóra skáldsögu, Sólon
Islandus, er út kom í tveim bindum haustið 1940. Um það verður ekki
deilt, og er ekki heldur neitt leyndarmál, að vinsældir Davíðs byggjast
umfram allt á Ijóðum hans, en ja'fn auðsætt er hitt, að leikritið Gullna
hliðið mundi hafa skipað höfundi sínmn öfundsverðan sess í bókmennta-
sögunni, þó að engum öðrum verkum frá hans hendi 'hefði verið til að
dreifa. Aldrei hefur Davíð Stefánsson notið einlægari gistivináttu í heimi
þjóðsagnanna en þegar hann samdi þetta verk og fá eða engin rit önnur
eiga sér ljúfari upruna í íslenzkri þjóðarsál. Þegar leikritið kom fyrst fram,
varð þess vart, að ýmsir töldu lítið í það spunmð frá höfundanns 'hendi,
og mun mestu hafa um það valdið, hversu þjóðsögunni, sem allir þekktu,
var trúlega fylgt, en það er eftirtektarvert, að allar slíkar raddir eru löngu
þagnaðar og munu nú flestir fúslega viðurkenna þá heillandi fegurð og
einföldu speki, sem leikritið hefur að geyma. Er ekki ofmælt, að fá skáld-
verk hafi í líkum mæli og Gullna hliðið átt því hlutskipti að fagna að
verða sígild eign heillar þjóðar að höfundinum lifandi. Af öðrum ritum
Davíðs hefur saga hans um Sólon Islandus hlotið mestar vinsældir. Hún
er mikið verk og vel unnið, rammþjóðleg að efni og anda, sknfuð á
kjarnyrtu máli og víða krydduð hóflátlegri kýmni (,,Um nóttina svaf
hann hjá annarri þernu gisti'hússins. Hún var Þingeyingur“). Með Sölva
Helgasym hefur Davíð skapað eina af minnisverðustu persónum íslenzkra
skáldsagna, táknræna manngerð, sem gegnir um margt áþekku hlut-
verki í vorum bókmenntum og frændi hans Pétur Gautur með Norð-
mönnum.
.* # *
Mörgum getum hefur verið leitt að framtíð skáldskaparins í heimi
sjónvarps og atómtækni, og vel má svo fara, að næstu aldir velji sér ein-