Helgafell - 01.12.1955, Side 97

Helgafell - 01.12.1955, Side 97
LIST OG EFTIRLIKING 95 formi. Vissulega er það hægt, enda oft gert. Sumir listamenn falla fyrir þeirri freistingu að reyna að vekja á sér achygli með alls konar fáránleika, sem verður þeim til falls eins og öll óhreinskilni í list. En einkum eiga hér hlut að máli ,,listsnobbar“, sem halda að þeir sýni smekk sinn með því að hefja alla óhlucstæða list upp til skýjanna. Ég held þó, að smekk almennings stafi ekki meiri spilling af þessari tegund listar en af sumum öðrum. Eftirlíkingin blekkir sjálfsagt miklu fleiri. Hin sama hætta vofir yfir óhlutstæðri list og raunsæislist, sem sé sú, að hún staðni í dauðum formum venju og eftirlíkingar. Listamaðurinn sækir þá ekki lengur ferskleika og kraft í uppsprettu allrar list- ar: hina frjóu lífsnautn — og mannlega þjáningu. Almenningur víðast hvar ruglar mjög eftirlíkingartækni saman við hreina list og skýrir listgildi málverks fyrir sér eitthvað á þessa lund: Þetta málverk tjáir eða á að tjá mér hið sama og fyrirmyndin, sem málverkið er af. Gildi málverksins liggur í líkingu þess við fyrirmyndina. — Hér er lagður algerlega ólistrænn mælikvarði eða mat á málverkið, listin er þarna látin þjóna ein- hæfu og annarlegu markmiði, og til þess að troða henni í þetta Prókrúst-rúm verður að limlesta hana. Það liggur í eðli listarinnar, að hún er þess megnug að sýna oss hluti og atburði í síbreytilegu samhengi, frá óendanlega mörgum sjónarmiðum, og þess vegna getur hún aldrei að fullu þjónað einhverju til- teknu markmiði og engu öðru, hvort sem það er eftirlíking, gagnsemi, siðgæði, trú eða eitthvað annað. Listin losar oss við þann hleypidóm, eins og John Dewey tekur réttilega fram, að hlutirnir hafi óbreytilegt og einrætt gildi.1) Þetta skýrir, hvers vegna ýmislegt, sem ljótt er í náttúrunni, þ. e. í venjulegu sam- hengi, getur orðið fagurt í list, þar sem það er sett í annað samhengi; þar fær það nýja merkingu, verður hluti af nýrri heild, listaverkinu, og eykur tjáningargildi þess. I tækniverkum, öllum gagnlegum hlutum, þjónar formið ákveðnu mark- miði. Lögun hnífa, gafla, skeiða o. s. frv. miðast við það, að hver þessara hluta samsvari sem bezt hinu gagnlega markmiði sínu. Form gagnlegra hluta er því ávallt bundið einhverju sérstöku, fyrirfram ákveðnu markmiði. Fagurt eða listrænt form er aftur á móti ekki háð neinni slíkri takmörkun eins og enski heimspekingurinn Collingwood hefur sýnt fram á í hinni djúphugsuðu lýs- ingu sinni á list og tækni.2) Kvæðið eða myndin eru raunar söm við sig. En sem listaverk eru þau endursköpuð í ímyndun hvers manns í hvert sinn og hann nýtur fegurðar þeirra. Listamaðurinn getur því ekki veitt ákveðið svar við þeirri spurningu, til hvers listaverkið sé, hvert sé hlutverk þess, en það getur tæknirinn um tækniverkið. Listaverkið merkir allt það, sem þér, ég og allir aðrir sjá í því. Hver kynslóð sér nýja merkingu og fegurð í hinum miklu, sígildu listaverkum. Listaverkið er þess vegna miklu margræðara en tækni- 1) Sjá John Dcwey: Art as Experience, bls. 95. 2) Sjá R. G. Collingwood: The Principles of Art, bls. 15—41.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Helgafell

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgafell
https://timarit.is/publication/1076

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.