Morgunblaðið - 01.06.2013, Qupperneq 35
Krefst réttlætis Abdulbaki Todashev sýndi fjölmiðlamönnum myndir sem hann sagði sýna son sinn látinn í líkhús-
inu. Hann sagði að Ibragim hefði verið skotinn sjö sinnum og að um aftöku hefði verið að ræða.
Hólmfríður Gísladóttir
holmfridur@mbl.is
Dzhokhar Tsarnaev, annar bræðr-
anna sem grunaðir eru um að hafa
staðið að baki sprengjuárásinni í
Boston-maraþoninu 15. apríl síð-
astliðinn, getur nú gengið. Í sam-
tali við AP-fréttastofuna sagði
móðir bræðranna, Zubeidat Tsar-
naeva, að hún hefði fengið að tala
við son sinn í síma í fyrsta sinn frá
því hann var handtekinn og að
hann hefði ítrekað sakleysi sitt.
Dzhokhar, sem dvelur á fangels-
issjúkrahúsi, tjáði móður sinni að
hann væri á batavegi en að hann
ætti erfitt með að skilja hvað hefði
gerst. „Hann hélt heldur ekki aft-
ur af tilfinningum sínum, það var
líkt og hann væri að öskra að öll-
um heiminum: Hvað er þetta?
Hvað er að gerast?“
Tsarnaev-fjölskyldan hefur stað-
fastlega haldið því fram að Dzhok-
har og bróðir hans Tamerlan, sem
lést í skotbardaga við lögreglu, séu
saklausir. „Allt sem ég get gert er
að biðja til guðs og vona að einn
daginn hafi sanngirnin sigur, að
börnin okkar verði fundin saklaus
og að við fáum alla vega Dzhokhar
til baka, örkumla en lifandi,“ sagði
faðir piltanna, Anzor, við AP.
Á blaðamannafundi í Moskvu á
fimmtudag, sýndi Abdulbaki To-
dashev, faðir Ibragim Todashev,
fjölmiðlamönnum myndir af syni
sínum látnum en Ibragim var
skotinn til bana af FBI-fulltrúa
þegar hann var yfirheyrður um
tengsl sín við Tamerlan Tsarna-
ev.
Todashev eldri segir son sinn
hafa verið skotinn sex sinnum í
búkinn og einu sinni í hnakkann
og hefur farið fram á að réttað
verði yfir FBI-fulltrúunum sem
voru viðstaddir yfirheyrslurnar.
Todashev yngri játaði að hafa
átt hlutdeild í þreföldu morði
nærri Boston árið 2011 og bendl-
aði Tamerlan Tsarnaev við glæp-
inn en lögreglu hefur ekki tekist
að finna nein sönnunargögn til að
tengja Todashev við sprengju-
árásina í apríl.
Dzhokhar á batavegi
Er saklaus og skilur ekki hvað gerðist, segir móðir Tsarnaev
Abdulbaki Todashev krefst réttlætis fyrir son sinn
AFP
Dzhokhar
Tsarnaev
Ibragim
Todashev
FRÉTTIR 35Erlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. JÚNÍ 2013
Yfirvöld í El Salvador hafa sam-
þykkt að Beatriz, 22 ára gömul kona
sem þjáist af rauðum hundum, fái að
gangast undir keisaraskurð í næstu
viku. Hæstiréttur landsins neitaði
konunni, sem er komin 25 vikur á
leið, um fóstureyðingu síðastliðinn
miðvikudag, jafnvel þótt læknar
mætu það svo að barnið, sem hefur
líklega engan heila eða aðeins hluta
af heila, myndi deyja við fæðingu.
„Það er ljóst á þessum tímapunkti
að inngrip í meðgönguna er ekki
fóstureyðing, fæðingunni er komið af
stað, sem er annað,“ sagði Maria Isa-
bel Rodriguez, heilbrigðismálaráð-
herra El Salvador, á fimmtudag. „Ef
það eru einkenni til staðar sem
benda til þess að ástandið sé alvar-
legt, þá verður að grípa til aðgerða,“
bætti hún við og sagði heilbrigði kon-
unnar ráða þar úrslitum.
Í samtali við AFP sagði Beatriz að
hún væri afar taugaóstyrk en vildi
gangast undir keisaraskurðinn
heilsu sinnar vegna og vegna þess að
barnið myndi ekki lifa. „Það sem þeir
gerðu mér var ekki rétt. Þeir létu
mig þjást með því láta mig bíða allan
þennan tíma hér á spítalanum.“
Gengst undir
keisaraskurð
Ekki það sama
og fóstureyðing,
segir ráðherra
AFP
Bann Viðurlög við fóstureyðingu
eru fimmtíu ára fangelsisvist.
Fjaðrafok
» Mál Beatriz hefur vakið at-
hygli út um allan heim en lög
um fóstureyðingar eru afar
ströng í El Salvador.
» Brot gegn banninu við fóst-
ureyðingum varðar allt að
fimmtíu ára fangelsi.
» Málið er afar umdeilt en
erkibiskup San Salvador biðl-
aði m.a. ítrekað til dómstóla
um að leyfa konunni ekki að
gangast undir fóstureyðingu.
Lækjargötu og Vesturgötu
Mikið úrval
af töskum