Stígandi - 01.10.1944, Page 43

Stígandi - 01.10.1944, Page 43
STIGANDI FJALLAFERÐIR 281 en svo, að flestum fullfrískum mönnum sé það fært. Það þarf að hafa réttan og þægilegan útbúnað, sem minnstan farangur og um franr allt að fara hægt af stað. Sé þessum þrern meginreglum ferðamannsins fylgt, geta flestir, sem aðeins hafa vilja og nenningu, veitt sér þá ánægju að ganga á fjöll. Það er einkum kaupstaðafólk, sem iðkar fjallaíþróttír hér á landi, en margt sveitafólk kemur aldrei upp á fjallið fyrir ofan bæinn sinn, hvað þá meira. Náttúrlega má segja sem s\'o, að störf sveitafólksins séu svo erfið, að ekki sé von, að það leggi það á sig að vera að klifra upp um fjöll í frítímum sínum. Þó telur fólk ekki eftir sér að dengjast í bílum langar leiðir og oft á misjöfnum \ egum til þess að komast á dansleik eða samkomu, jrar sem oft er ekkert um að vera nema dans í reykjarsvælu og ólofti og stundum drykkjulæti og áflog. Nú á tímum er mikið talað og ritað um ættjarðarást og ýmis- legt gert til þess að reyna að glæða hana. Ég lteid, að jrað, er lielzt myndi vekja og glæða ættjarðarást okkar, sé það að kynnast land- inu okkar sem bezt. Við kynnumst því ekki bezt með því að jreysa um það þvert og endilangt í bílum eða yfir jrað í flugvélum. Við þurfum að ferðast um jrað ríðandi, til þess að vera frjálsir ferða okkar, eða gangandi til Jress að geta athugað jrað, sem okkur sýnist. hvort sem jrað er köngullóarvefur á milli steina, undarlega lagaðir hraundrangar, gjósandi hverir eða lítið öræfablóm í gilskoru upp til fjalla. Fátt er unaðslegra en að leggjast til lrvílu að kvöldi í tjaldinu sínu við lítinn læk inni í kyrrð öræfanna og láta nið hans syngja sig í svefn. Það er töfrandi að litast um uppi til fjalla á sólbjörtum sumar- morgni og ánægjulegt að leggja land undir fót, klífa hæsta tindinn og finna vöðvana stælast við áreynsluna og viljann skerpast. Loks erum við á hátindinum og útsýnið opnast. Hvílík dýrð! Sá einn, senr sjálfur Iiefir iifað slíkar stundir og notið dýrðlegs útsýnis, veit, hverjar tilfinningar jrað vekur. Sá, sem aldrei hefir verið uppi á lieiðum á sumarkvöldi og séð jroku læðast inn dalina og fylla Jrá, en sólroðna fjallatindana gnæfa upp úr jrokuhafinu, liefir misst af rniklu, því að slík sjón gleynrist aldrei. Vetrarríki fjallanna á líka sína fegurð og dásemdir. Það er hrífandi að Jrjóta á skíðum niður snævi þaktar hlíðarnar, enda

x

Stígandi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stígandi
https://timarit.is/publication/1085

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.