Stígandi - 01.10.1944, Síða 79

Stígandi - 01.10.1944, Síða 79
STÍGANDI BÓKAFRÉTTIR íslendingar liafa löngum þótt bók- elskir menn, jafnvel svo, að sumum liefir þótt úr hófi keyra. Gatnla fólkið sagði líka, að ekki yrði bókvitið í askana látið, en eigi virðist núlifandi kynslóð á þeirri skoðttn, því að einhver bókleg frxðsla þykir nú sjálfsögð hverjum ung- lingi, og bókaútgáfa hefir aldrei orðið stórkostlegri hér á landi en á allra síðustu árum. Því var almennt spáð í fyrra, að bókaútgáfan mundi komin í hámark. Kom þá út margt ágætra bóka, bæði hvað snerti frágang allan og innihald. Seldust feiknin öll af bók- um, og ganga ýmsar sögur um val kaupanda, áttu sumir að hafa beðið um svo og svo inarga metra af bókum í þessum eða hinum litnum, aðrir tim bækur, er kostuðu svo og svo mikið, en um höfunda eða efni bóka hafi þessir snjallgáfuðu kaupendur ekki spurt. En annað tveggja eru íslenzkir bókaút- gefendur fremur tregir til að virða smekk þessara manna eða þeim hefir skilizt, að þorri kaupanda hefir aðra mælistiku á bækur en þá, sem mælir þykkt og verð. Það virðist a. m. k. svo, að bókaútgáfa hefði orðið enn stórfelldari í ár en í fyrra, hefði ekki prentaraverkfallið skollið á, og bóka- útgefendur sýnast leggja kapp á að vanda val og frágang bókanna enn meir en nokkru sinni fyrr. Ef til vill hefir verkfallið orðið til þess að sía eitthvað af ruslinu frá, en einnig til að tefja margt ágætra bóka, sem freist- að hefðu áreiðanlega margs bókakaup- andans, sem verður tíðfarið fram hjá sýningargluggum bókaverzlananna. Sex útgáfufyrirtæki fást nú hér á landi við útgáfu fornrita: Hið íslenzka fornrita- félag, Bókaútgáfa Menningarsjóðs og Þjóðvinafélagsins. Bókaútgáfan Forni, Flateyjarútgáfan, Helgafellsútgáfan og nýtt útgáfufélag. sem hefir Sturlungu í prentun. Hið íslenzka fornritafélag hefir sent frá sér eitt bindi í ár (prentað 1943, en kom ekki á bókamarkað fyrr en í ár) eru það Vestfirðingasögur, og hafa þeir Guðni Jónsson og Björn K. Þórólfsson séð um útgáfuna. Auk Jiess hefir forn- ritafélagið látið ljósprenta útgáfu sína af Laxdælu, sem var orðin uppseld. Mörgum hefir þótt félagið helzti sein- virkt við útgáfu sína á fornritunum, en Jiess ber að gæta, að hér er um vísinda- lega útgáfu að ræða, sem engan veginn má kasla höndum til, en óneitanlega kysu allir, sem fornritunum unna, að bókaskápum þeii ra bættust örar í hillur bindi af þessari ágætu útgáfu. Bókaútgáfa Menningarsjóðs og Þjóð- i'inafélagsins sendi Njálu á markaðinn í allsæmilegum klæðum. Þó verður ekki vel skilið, hver ástæða hefir Jiótt til þessarar útgáfu, því að hin alþýðlega útgáfa á Njálu fæst cnn (endurprentun hennar). Um vísindalega útgáfu er ekki að ræða, en ætlazt mun til, að menn hyllist fremur til að lesa söguna í hin- um nýja búningi en verið hefir um skeið, og væri vel, ef svo yrði. Upp- drættir og myndir prýða bókina. Bókaútgáfan Fonii hefir útgáfu Forn- aldarsagna Norðurlanda á prjónunum, og annast jieir Guðni Jónsson og Bjarni Vilhjálmsson um verkið. Eitt bindi kom um áramótin síðustu, smekklegt að frá- gangi, en band harla svikult, eins og
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Stígandi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stígandi
https://timarit.is/publication/1085

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.