Stígandi - 01.10.1944, Page 92

Stígandi - 01.10.1944, Page 92
STÍGANDI * kemur út fjórum sinnum á ári, alls 320 síður af lesmáli og myndum, - \ 9 prentað á óvenjulega vandaðan pappír. Prentverkið annast Prent- verk Odds Björnssonar, sem alkunnugt er fyrir vandvirkni og smekk- ^ vísi, myndamót öll gerð hjá h.f. Leiftur, Reykjavík, myndir flestar teknar af Edvard Sigurgeirssyni ljósmyndara. Ritið flytiur margs konar efni til fróðleiks og skemmtunar, svo sem um atvinnumál, fræðslumál, ferðalög, bókmenntir og listir, auk þess iðulega þýddar greinar. i í ritið hafa ritað meðal annarra: Sigurður Guðmundsson, skóla- meistari, Kristín Sigfúsdóttir, skáldkona, Björn Sigfússon, magister, Amór Sigurjónsson, Halldór Halldórsson, Steindór Steindórsson, Aðalsteimi Sigurðsson og Sigurður L. Pálsson menntaskólakenn- arar, Helgi Valtýsson, Sveinn Bjarman, Þormóður Sveinsson, Hann- es J. Magnússon, Kristján Eldjárn og Þóroddur Guðmundsson. Sögur og kvæði hafa birzt eftir Sigurjón Friðjónsson, Guðmund Frímann, Jóhann Frímann, Heiðrek Guðmundsson, Guðfinnu frá Hömrum, Guðmund Friðjónsson, Friðgeir H. Berg, Kristján Einarsson, Bjartmar Guðmundsson, Kára Tryggvason, Sverri Áskelsson og ýmsa fleiri. Nöfn þessara manna em lesendunum næg trygging þess, að vel er til efnis vandað, enda mun Stígandi leggja kapp á vandað efni. Ár- gangurinn kostar aðeins 24 krónur, og er það ekki mikið verð, mið- að við bókaverð nú. Hafið þér gerzt áskrifandi að Stíganda? Sé svo ekki, viljum vér benda á, að upplag vort er takmarkað, en ennþá er þó tími til að tryggja sér ritið, ef þér hringið í síma 274 — eða skrifið í pósthólf 76, Akureyri. Akureyri — Prentverk Odds Björnssonar — 1944

x

Stígandi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stígandi
https://timarit.is/publication/1085

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.