Skessuhorn - 18.12.2013, Page 105
105MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 2013
„Það er einhver góðlátleg kímni og
væntumþykja fólgin í bókum Jules
Verne, tónn sem minnir á afa og
ömmu eða sagnaskemmtun fyrri
tíma. Höfundurinn fræðir lesand-
ann og skemmtir honum um leið,
tvinnar saman gagn og gaman svo
vísað sé til grundvallarrits lestrar-
kunnáttu minnar kynslóðar. Raun-
ar hefðu orðin gagn og gaman allt
eins getað verið einkunnarorð Ver-
nes sem rithöfundar, því segja má
að þau séu fagurfræði verka hans í
hnotskurn.“ Þannig hefst eftirmáli
Friðriks Rafnssonar að skáldsögu
franska rithöfundarins Jules Verne
(1828-1905) - „Ferðin að miðju
jarðar.“ Bókin hefur nú komið út
í nýrri þýðingu Friðriks. Þar þýð-
ir hann þetta þekkta verk óstytt og
óbreytt beint úr franska frummál-
inu.
Þekkt verk með áhuga-
verða skírskotun
Líklega hefur engin heimsfrægari
skáldsaga en þessi átt upphaf sitt á
Vesturlandi. Snæfellsjökull er vafa-
lítið eitt þekktasta kennileiti Vest-
urlands. Hann er réttilega gam-
alt eldfjall. Það hlýtur að teljast
skemmtilegt að þó gígur Snæfells-
jökuls sé hulinn íshettu þá er í dag
hellir við rætur hans sem vissulega
liggur niður í iður jarðar. Það er
Vatnshellir við Purkhól í Þjóðgarð-
inum Snæfellsjökli, djúpur hraun-
hellir sem hefur notið mikilla vin-
sælda ferðamanna eftir að hann var
opnaður fyrir fáeinum misserum
síðan. Tilvist þessa nýja náttúru-
undurs ætti að auka ánægju margra
yfir því að þessi sígilda saga Jules
Verne skuli komin út að nýju.
„Ferðin að miðju jarðar“ hefur
löngum verið þekkt skáldverk hér
á landi. Bæði hefur sagan komið
út í styttri útgáfum og kvikmyndir
eftir henni hafa komið fyrir sjónir
landsmanna. Það þarf ekki að koma
á óvart því bókin fjallar um ferð of-
urhuga sem fara niður í iður jarðar
um gíg Snæfellsjökuls. Skrautlegur
sérvitringur leggur í þetta ferðalag
með frænda sínum. Upphafið er að
þeir finna gamalt skjal sem grein-
ir frá því að íslenski fræðimaðurinn
Arne Saknussemm (Árni Magnús-
son) hafi að öllum líkindum lagt í
ferð inn að miðju jarðar fyrir margt
löngu. Félagarnir leggja af stað til
Íslands og hitta þar einn eyjar-
skeggja, Hans að nafni. Það með
hefst svaðilförin niður um gíg hins
kulnaða eldfjalls Snæfellsjökuls og
það verður upphafið á hriklegum
ævintýrum sem hafa heillað les-
endur allar götur síðan bókin kom
fyrst út í Frakklandi fyrir 164 árum
síðan, árið 1864.
Skemmtisaga með
fræðsluívafi
Bókin er örðum þræði ævintýra-
saga og vísindaskáldsaga. „ Það
ætlunarverk Vernes
að skemmta lesand-
anum og uppfræða
hann um leið gengur
eins og rauður þráð-
ur í gegnum þær
hartnær sjötíu bæk-
ur sem hann skrif-
aði á lífsleiðinni, auk
allmargra leikrita og
smásagna. Það tókst
honum svo sannar-
lega, því hann hef-
ur fyrir löngu öðl-
ast alþýðuhylli um heim all-
an og varanlegan sess í heimsbók-
menntunum. Verk hans eru með-
al þeirra vinsælustu og mest þýddu
í veröldinni (aðeins verk Agöthu
Christie eru þýdd á fleiri tungu-
mál) og þau hafa margoft ver-
ið gefin út í styttum útgáfum fyr-
ir börn og fullorðna, með eða án
mynda, og notuð sem efniviður í
fjölmargrar kvikmyndir, sjónvarps-
þætti, leikrit, tónverk og tölvuleiki.
Þar hefur tekist misvel til eins og
gengur, en eftir standa sjálf verkin
óhögguð eins og höfundurinn gekk
frá þeim, menningargersemar sem
teljast nú sígildar,“ skrifar Friðrik
Rafnsson.
Þýðandinn segir einnig í eft-
ir mála sínum: „Sú manneskja sem
fer með opnum huga inn í undra-
verönd Jules Verne kemur þaðan
út ívið stærri og margs vísari um
mannlífið og veröldina, rétt eins og
allar þær stórskemmtilegu og lit-
ríku persónur sem hann bjó til. Það
er því einlæg von mín að Íslend-
ingar hafi nokkurt gagn og tals-
vert gaman af því að geta nú lesið
þessa sögu óstytta á móður-
málinu, þýdda úr frummál-
inu, frönsku, eftir uppruna-
legu útgáfunni.“
Vigdís skrifar for-
mála
Formáli bókarinnar er skrif-
aður af Vigdísi Finnbogadótt-
ur. Þar skrifar hún meðal ann-
ars: „Óhjákvæmilegt er að
velta fyrir sér hvers vegna Ís-
land verður einmitt sögusvið í
svo snemmborinni franskri vís-
indaskáldsögu. Er það vegna
þess að Frakkar þekktu bet-
ur til Íslands en aðrar þjóðir
á meginlandinu á þeim árum
sem „Ferðin að miðju jarðar“
er skrifuð, vegna Gaimard-leið-
angursins og franskra skútu-
siglinga og fiskveiða við Ísland?
Og hvers vegna Snæfellsjökull?
Á því getur varla leikið vafi að
Snæfellsjökull hefur í allri sinni
ísdýrð fyrr á tímum verið viti
fyrir sjófarendur, sem þurftu að
elta þorsk í öllum veðrum vestur
af landinu,“ skrifar Vigdís Finn-
bogadóttir fyrrum forseti meðal
annars í inngangsorðum sínum.
mþh
Sígild skáldsaga um leyndardóma Snæfellsjökuls
endurútgefin í nýrri þýðingu
Gengið niður í gíg Snæfellsjökuls.
Bókina prýða teikningar franska
listamannsins Édouard Riou. Þessar
sömu myndir voru í verkinu þegar það
kom fyrst út í endanlegri bókarútgáfu í
Frakklandi árið 1867.
Kápumynd bókarinnar.
Höfundurinn Jules Verne sem gerði
Snæfellsjökul heimsfrægan í sígildri
skáldsögu sinni.
Skopmyndateiknari: Bjarni Þór Bjarnason
Höfundur: Dagbjartur Dagbjartsson
Bráðsmellin bók sem passar ótrúlega vel í jólapappír!
Fæst í betri bókaverslunum og hjá útgefanda.
www.skessuhorn.is
Jólabók vísnaáhugafólks