Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.05.2004, Síða 5

Læknablaðið - 15.05.2004, Síða 5
UMRÆflA 0 G FRÉTTIR LISTAMAÐUR MÁNAÐARINS 418 Af sjónarhóli stjórnar: Öryggi sjúklinga komið á dagskrá LI Jón Snædal 419 FSA er háskólasjúkrahús Þröstur Haraldsson 420 Formannafundur LÍ: Hagdeild, öryggismál og sumarþing til umræðu í bjarma af blómlegum rekstri Pröstur Haraldsson Tillögur nefndar um öryggismál sjúklinga 422 Mikil gróska í vísinda- rannsóknum Rætt við Björn Guðbjörnsson formann Vísindasiðanefndar Þröstur Haraldsson 425 Breytingar á stjórn LR 426 Tilkynningakerfi í stað leyfísveitinga Rætt við Sigrúnu Jóhannsdóttur forstjóra Persónuverndar Þröstur Haraldsson 427 Á að setja ramma um samstarf lækna og lyfjafyrirtækja Katrín Fjeldsted 429 Bókafrétt: Vandað og áhugavert ritverk um skurðlækningar Hannes Petersen 430 Samskipti lækna og lyfjafyrirtækja: Auðmýkjandi og andlega heilsuspillandi? Runólfur Pálsson Elínborg Bárðardóttir Arnór Víkingsson 432 Skref í rétta átt Katrín Fjeldsted 433 Orlofsnefnd kaupir hús á Klaustri Þröstur Haraldsson 437 Læknabók Þorleifs Bjarnasonar II Örn Bjarnason 440 íðorðasafn lækna 166. Eldri verkefni Jóhann Heiðar Jóhannsson 441 Broshorn 48. Af höfuðverk og flensusprautum Bjarni Jónasson 442 Lyfjamál 125. Liður í langtímaáætlun í lyfjamálum Eggert Sigfússon Einar Magnússon Ingolf J. Petersen 443 Frá TR: Nýtt eyðublað vegna örorkumats 445 Þing/styrkir 447 Lausar stöður 448 Námskeið 448 Okkar á milli 450 Sérlyfjatextar með auglýsingum 455 Minnisblaðið © Hrafnkell Sigurðsson Getur rusl oröiö efniviöur í fyrirtaks listaverk? Um það eru reyndar fjöl- mörg daemi í listasögunni. Mynd- efni Hrafnkels Sigurðssonar (1963) á kápu Læknablaðsins að þessu sinni er þannig engin ný- lunda, meðhöndlunin er aftur á móti athyglisverð. Þekkt er meðal Ijósmyndara að vinna í seríum, skrásetja eitthvert myndefni í allri sinni fjölbreytni. Hrafnkell hefur þannig til dæmis gert myndaraðir af bráðnandi snjósköflum, mislit- um kúlutjöldum og húsum í bygg- ingu. Fyrirmyndirnar í nýjustu serí- unni frá árinu 2003 (án titils) eru marglitir ruslapokar á götum Lundúna en þar hefur hann verið búsettur í um áratug. Hrafnkell hefur á ferli sínum reynt ýmsa listmiðla en hann er einn fárra íslenskra listamanna sem mark- visst vinnur með Ijósmyndun. Rusl fær mann óneitanlega til að hugleiða ýmislegt, umbúða- og neyslusamfélagið eða einhvers konar ferli eða hringrás og slíkar tengingar kunna að vakna við skoðun þessa verks Hrafnkels, eða hvað? Eiginlega er ruslið á myndinni of áferðarfallegt til að maður dvelji lengi við slíkar hug- leiðingar. Myndin af ruslapokunum sýnir þá á hlutlausan hátt, sjónar- hornið í götuhæð, nánast líkt og þeir séu viðfang vísindalegrar skrásetningar. Tækni listamanns- ins bætist við, því þótt myndin sýni ruslið eins og það kemur fyrir þá breytir hann því og „fegrar" í tölvu, svipað vinnuaðferðum list- málara. Hann ýkir eða dempar liti og „tekur til í ruslinu" þar til ein- hvers konar ofurraunsæi er náð mitt á milli sviðsetningar og veru- leika. Það er eins og myndefnið sé orðið annars heims og lifi sjálf- stæðu lífi, löngu hætt að vera pok- ar með fúlu, rotnandi rusli. Hið sjónræna ræður meiru en nokkuð annað, áherslan verður á form, liti, áferð og yfirborð. Það er kunn leið myndlistarmanna að með því að ýkja yfirborð gefist áhorfendum kostur á að skynja lagskiptingu í veruleikanum og e.t.v. leið til að skyggnast undir það yfirborð. Þetta hafa málarar löngum fengist við. Hrafnkell er þegar allt kemur til alls ekki í leit að rökrænni eða táknrænni tengingu við myndefnið sjálft, ruslið, þótt slíkt sé okkur áhorfendum auðvitað frjálst. Hann býður okkur hins vegar að ganga lengra og hugleiða dýpra og á persónulegri nótum. Slíkt er eiginleiki fyrirtaks listaverka! Markús Þór Andrésson Læknabladið 2004/90 369
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.