Læknablaðið - 15.05.2004, Blaðsíða 55
UMRÆÐA & FRÉTTIR / FSA HÁSKÓLASJÚKRAHÚS
Stjórn Læknafélags íslands hélt til Akureyrar og
efndi þar til fundar föstudaginn 26. mars. Margt bar á
góma, svo sem kostnaðarvitund lækna, innflutning
sjúklinga og útflutning heilbrigðisþjónustu, að
ógleymdu öryggi sjúklinga sem nánar er fjallað um í
tengslum við formannafund LI. Síðast en ekki síst
hlýddu stjórnarmenn á heimamanninn Þorvald Ingv-
arsson lækningaforstjóra rökstyðja af hverju Fjórð-
ungssjúkrahúsið á Akureyri (FSA) beri nafnbótina
háskólasjúkrahús með réttu.
Þorvaldur greindi frá því að á FSA færi nú fram
stefnumótun sem þegar hefði skilað þeim árangri að
skilgreiningu á starfsemi sjúkrahússins hefði verið
breytt. Samkvæmt þeirri gömlu er FSA sérgreina-
sjúkrahús fyrir Norður- og Austurland og aðalvara-
sjúkrahús. Nýja skilgreiningin er sú að FSA sé há-
skólasjúkrahús sem veitir almenna og sérhæfða heil-
brigðisþjónustu, þekkingarstofnun sem leggur metn-
að sinn í að stunda auknar rannsóknir og kennslu,
auk þátttöku og þróunar á sviði heilbrigðisþjónustu.
Einnig er FSA aðalvarasjúkrahús landsins með tilliti
til almannavama og miðstöð sjúkraflugs.
Sjúkraflug og sérgreinar
Þorvaldur sagði að sérstaða FSA væri margvísleg. Það
væri eina sérgreinasjúkrahúsið utan höfuðborgarsvæð-
isins, þar væri eina gjörgæslan, eina geðdeildin, eina
myndgreiningardeildin og eina kennslusjúkrahúsið á
landsbyggðinni. Miðstöð sjúkraflugs fyrir landsbyggð-
ina er á Akureyri en þar var henni valinn staður vegna
þess að þaðan er álíka langt flug í alla landshluta. Síðast
en ekki síst væru flestöll ferliverk sem unnin eru á
Akureyri gerð inni á sjúkrahúsinu en ekki á stofum úti
í bæ og það styrkti kennsluhlutverk spítalans.
Kennsla hefur um alllangt skeið verið snar þáttur
í starfsemi FSA. Þar er kennt nemum í hjúkrunar-
fræði og iðjuþjálfun við heilbrigðisdeild Háskólans á
Akureyri en einnig koma þangað í almennt starfs-
nám læknanemar á öðru og þriðja ári og nemar á
fjórða og sjötta ári sækja þangað þjálfun í svæfingar-
lækningum. Við þetta má bæta að sjúkraflutninga-
skólinn hefur aðsetur á Akureyri þótt kennsla í hon-
um fari fram víða um land.
Enn má geta þess að spítalinn hefur lagt verulega
áherslu á kennslu- og fræðslufundi sem sendir eru út
um allt land með aðstoð fjarfundabúnaðar. Þar kem-
ur fyrir að allt að 300 manns fylgist með fræðslunni á
20 stöðum. Þessi starfsemi hefur svo ýtt undir rafræna
þróun á FSA en þar er verið að gera ýmsar tilraunir
með rafrænar sendingar á myndgreiningum, lyfseðl-
um, tilvísunum og læknabréfum eins og frá var greint
í janúarhefti Læknablaðsins.
Fimm rannsóknastö&ur
Rannsóknir eru undirstaða framfara í læknavísindum
og stjórnendur FSA vilja ýta undir þær með því að
gera samninga við háskólastofnanir. Sett hefur verið
á fót heilbrigðisvísindastofnun sem er sameiginlegt
verkefni FSA og Háskólans á Akureyri og hafa verið
auglýstar lausar þrjár stöður við þá stofnun. Framlag
FSA er 20% starfshlutfall við rannsóknir. Sjúkrahús-
ið hefur einnig gert samning við Háskóla Islands um
samstarf og í krafti hans hafa verið auglýstar tvær
stöður sem veittar verða frá og með næsta hausli. -
Ég lít svo á að ef heilbrigðisþjónusta á að vera til
staðar á landsbyggðinni til framtíðar þá verður há-
skólastarfsemi að samtvinnast henni meira en orðið
er. Heilbrigðiskerfið á landsbyggðinni þarf að taka
þátt og vera órjúfanlegur hluti af kennslu, rannsókn-
um og þróun í framtíðinni, sagði Þorvaldur.
Hann bætti því við að þeir sem hljóta þessar nýju
stöður geti sótt um akademískt hæfi og fengið stöðu-
heitin prófessor, dósent eða lektor eftir því hvernig
þeir eru metnir. Hann sæi því ekki annað en að
kennsluhlutverk spítalans væri gulltryggt til frambúð-
ar og að spítalinn bæri nafnbótina háskólasjúkrahús
með réttu.
Fjórðungssjúkrahúsið á
Akureyri hefur vaxið ört á
síðustu árum.
Starfsemi FSA
600 starfsmenn, þar af um 50 læknar
og 140 hjúkrunarfræöingar
Tæplega 200 sjúkrarúm og 3-4 skurðstofur
44.000 legudagar á ári,
5.200 inniliggiandi sjúklingar
3500 aðgeröir, 10.000 komur á bráðadeild
(fjórðungur af komum á bráðadeild Landspítala)
og annað eins á göngudeildir Þröstur
_______________________________________________Haraldsson
Læknablaðið 2004/90 419