Læknablaðið - 15.05.2004, Blaðsíða 8
RITSTJÓ
RNARGREINAR
fram á að hagkvæmara væri að flytja meðferðina til
íslands að því gefnu að fjöldi sjúklinga á ári færi yfir
ákveðin mörk. Heilbrigðisráðherra tók svo af skarið í
maí 2003 og veitti leyfi fyrir því að Tryggingastofnun
ríkisins og LSH gerðu með sér samning um þetta efni.
A spítalanum var strax farið í undirbúning þessa
verkefnis. Tvær einingar hafa borið hitann og þung-
ann af verkefninu en það eru blóðlækningadeild og
Blóðbankinn.
í byrjun var lögð áhersla á að ákveða hvaða ábend-
ingar væru fyrir meðferðinni og hefur þar verið fyrst
og fremst verið stuðst við þær línur sem Evrópusam-
tökin um blóð- og beinmergflutning hafa sett (Euro-
pean Blood and Marrow Transplantation, EBMT).
Einnig var farið mjög ítarlega yfir öll öryggisatriði
bæði er varðar meðhöndlun græðlingsins og ekki síst
sjúklinganna sjálfra. Jafnframt hefur verið unnið að
fræðslu starfsfólks, sjúklinga og aðstandenda þeirra.
Nú hefur tekist að safna stofnfrumum úr sjö sjúk-
lingum. Hjá einum sjúklingi til viðbótar var reynd
söfnun sem tókst ekki þar sem stofnfrumur reyndust
fáar í blóði. Alls hafa fjórir sjúklingar fengið há-
skammtameðferð og sínar eigin stofnfrumur til baka.
Þeir eru allir útskrifaðir við ágæta heilsu. Meðferðin
hefur gengið vel og án allra óvæntra fylgikvilla.
Það er ánægjulegt að háskammtameðferð með
eigin stofnfrumuígræðslu skuli hafa farið vel af stað
hér á íslandi. Mikilvægt er að þessi þróun haldi áfram
og tryggt sé að gæði meðferðarinnar séu eins og best
verður á kosið. Landspítali tekur þátt í samstarfi
EBMT í þessu efni. Ahersla er lögð á að fylgja þeim
ábendingum, viðmiðum og gæðastöðlum sem þar eru
sett. Þannig á að vera hægt hér á landi að framkvæma
meðferðina með sambærilegum árangri og gerist í
löndunum í kringum okkur. Þetta verkefni er lyfti-
stöng í meðferð illkynja blóðsjúkdóma á Landspítala
en síðast en ekki síst kemur það íslenskum sjúkling-
um og aðstandendum þeirra til góða í erfiðri baráttu
við illvíga sjúkdóma.
Heimildir
1. Blume KG, Forman SJ, Appelbaum FR. Thomas' Hemato-
poietic Cell Transplantation. Blackwell Publishing 2004: 11.
2. Statistical Summary of EBMT Database March 2004. EBMT,
The European Group for Blood and Marrow Transplantation.
www.EBMT.org
3. Newsletter, Summary Slide Edition. Report on State of the Art
in Blood and Marrow Transplantation - Part 1 of the IBMTR/
ABMTR Summary Slides with Guide. www.IBMTR.org
4. Jensdóttir M, Haraldsdóttir V, Bjömsdóttir J, Jónmundsson
GK, Reykdal S. Mergskipti og eigin stofnfrumuígræðsla. Ár-
angur meðferðar íslenskra sjúklinga 1981-1999. Rannsóknar-
verkefni við læknadeild HÍ, 2000.
372 Læknablaðið 2004/90