Læknablaðið - 15.05.2004, Blaðsíða 79
UMRÆÐA & FRÉTTIR / FRA HEILBRIGÐIS- OG TRYGGINGARAÐUNEYTINU
efnið í einni töflu C (25 mg) aðeins 8,3 mg af virku
efni í einni töflu A eða 17% minna magns, sem er
innan 33% vikmarka, sbr. hér að framan. Skilgreindu
dagskammtamir eru ákvarðaðir af Alþjóða heil-
brigðisstofnuninni (WHO).
Tilgangur með analog-viðmiðunarverði er sá sami
og með viðmiðunarverði samheitalyfja, það er að
hemja hækkun lyfjakostnaðar með því að beina notk-
uninni að ódýrari kostum þegar völ er á sambærileg-
um lyfjum á mismunandi verðum. Með því að víkka
út viðmiðunarverðskerfið er verið að auka sam-
keppnina þannig að hún nái ekki einungis til sömu
lyfja heldur einnig til sams konar og sambærilegra
lyfja.
Flestir sjúklingar geta auðveldlega notað hvaða lyf
sem er af þeim lyfjum sem flokkuð eru saman með
sömu meðferðaráhrif. í undantekningartilfellum kann
að vera að einstaka sjúklingur eigi af læknisfræðileg-
um ástæðum erfitt með að nota einstök lyf, til dæmis
sökum ofnæmis. í slíkum tilfellum getur læknir við-
komandi sjúklings sótt um undanþágu frá viðmiðun-
arverði með læknisfræðilegum rökstuðningi.
Viðmiðunarverðskrá sambærilegra lyfja er birt á
heimasíðu TR (www.tr.is).
Hvort og hve mikið kostnaður sjúklinga eykst
vegna þessara breytinga ræðst m.a. af því hvort og í
hve miklum mæli læknar sem ávísað hafa dýrari lyfj-
um breyta til og ávísa ódýrari lyfjum. Einnig er líklegt
að aukin samkeppni milli lyfja innan hvers viðmiðun-
arverðflokks leiði til verðlækkunar dýrari lyfjanna.
Ráðherra hefur einnig gefið út reglugerð um
breytingu á reglugerð um greiðsluþátttöku almanna-
trygginga í lyfjakostnaði með gildistöku 1. maí 2004.
Breytingin hefur það í för með sér að hætt verður al-
mennri greiðsluþátttöku í Coxíb lyfjum. Jafnframt
munu örvandi lyf eins og rítalín og amfetamín verða
tekin úr almennri greiðsluþátttöku.
Eftir sem áður verður hægt að sækja um greiðslu-
þátttöku almannatrygginga í þessum tveimur lyfja-
flokkum út á lyfjaskírteini að gefnum ákveðnum for-
sendum sem meðal annars eru birtar á heimasíðu TR.
Vegna sérstöðu þessara lyfja þykir eðlilegt að fylgst
sé náið með notkun þeirra sem verður nú auðveldara
vegna útgáfu skírteina.
Með reglugerðinni verður einnig felld niður 30
daga takmörkun á ávísunum lyfja við sárasjúkdómi
og þunglyndislyfja. Þannig er komið til móts við þá
sem nota þessa tvo lyfjaflokka og má segja að þetta sé
verulega ívilnandi aðgerð til mótvægis við upptöku
viðmiðunarverðs í þessum lyfjaflokkum.
Loks má nefna að með reglugerðinni er TR heim-
iluð greiðsluþátttaka í vítamínum vegna barna yngri
en 18 ára sem eru með efnaskiptasjúkdóma þegar
vítamínin eru hluti af lífsnauðsynlegri meðferð. Sama
gildir um börn yngri en 18 ára og eru með alvarlegan
frásogsvanda sem leiðir til þess að þau þurfi mjög
aukið magn vítamína. Hingað til hafa foreldrar þess-
ara barna þurft að greiða þessi vítamín að fullu en
með reglugerðinni er TR heimiluð greiðsluþátttaka
gegn framvísun lyfjaskírteinis.
Fréttatilkynning frá Tryggingastofnun ríkisins
Nýtt eyðublað vegna örorkumats
Undanfarin misseri hefur farið fram
endurskipulagning á matsferli vegna ör-
orkubóta lífeyristrygginga („almennrar
örorku“). í sambandi við þetta hafa verið
endurskoðaðar aðferðir við upplýsinga-
öflun til að framkvæma örorkumat, bæði
hvað snertir hvaða upplýsingar þarf og
hvaðan þeirra skal aflað. Reynt hefur ver-
ið að afla nauðsynlegra upplýsinga frá
þeim sem best veit, sumra frá umsækjanda
(sjúklingi) og annarra frá læknum, sem
þekkja til heilsufars og færni umsækjanda.
Umsækjandi er yfirleitt beðinn að svara
spurningalista um eigin heilsufar, færni og
fleira. Spurningalisti sá sem verið hefur í
notkun frá 1999, hefur verið styttur um
helming.
Nýtt vottorðseyðublað vegna örorku-
mats lífeyristrygginga hefur nú verið útbú-
ið í samvinnu læknasviðs Tryggingastofn-
unar ríkisins og Læknafélags Islands.
Vottorðið nefnist:
Læknisvottorð vcgna umsóknar uni ör-
orkubætur lífeyristrygginga cða endur-
niats örorku
Vottorðseyðublaðið er á heimasíðu
Tryggingastofnunar ríkisins www.tr.is. Það
er á Word-formi, til að útfylla og vista hjá
notanda. Ekki er enn hægt að senda voll-
orðið rafrænt.
Nú hverfa úr notkun vottorðin: Lœkn-
isvottorð A vegna umsóknar um örorkti-
bœtur lífeyristrygginga og Lœknisvottorð
B vegna endurnýjunar umsóknar um ör-
orkubœtur.
í nýja vottorðinu er ekki gert ráð fyrir
að votlorðsgefandi læknir taki afstöðu til
einstakra þátta örorkumatsstaðals, en
læknirinn vottar um fyrra heilsufar um-
sækjanda, núverandi heilsuvanda/færni-
skerðingu og horfur. Sama vottorðsform
verður notað vegna frummats og endur-
mats. Við endurmat örorku þarf að jafn-
aði ekki greina frá heilsufarssögu í reit-
num „Fyrra heilsufar" en nauðsynlegt er
þó að segja frá meiriháttar heilsufars-
breytingum frá síðasta örorkumati.
Vonast er til að læknum þyki nýja vott-
orðið ekki erfiðara í notkun en þau vott-
orð sem það leysir af hólmi. Tekið er við
fyrirspurnum og athugasemdum vegna
þessa vottorðs á netföngunum halldorb@
tr.is og haraldj@tr.is
Halldór Baldursson
aðstoðartryggingayfirlæknir
Læknablaðið 2004/90 443