Læknablaðið - 15.05.2004, Blaðsíða 15
FRÆÐIGREINAR / HAGKVÆMNI BÓLUSETNINGAR
Kostnaðarhagkvæmnisgreining
á bólusetningu gegn
meningókokkum C á Islandi
Guðmundur I.
Bergþórsson'
HAGFRÆÐINGUR
Þórólfur
Matthíasson2
HAGFRÆÐINGUR
Dli. POLIT.
Þórólfur
Guðnason3
SÉRFRÆÐINGUR í BARNA- OG
SMITSJÚKDÓMALÆKNINGUM
Haraldur Briem1
SÉRFRÆÐINGUR í SMIT-
SJÚKDÓMALÆKNINGUM
Ágrip
Meningókokkar C eru bakteríur sem valda heila-
himnubólgu og alvarlegri blóðsýkingu. Á íslandi má
búast við því að árlega sýkist 8-15 einstakiingar af
völdum þeirra og um 10% þeirra deyi. Að fengnu
samþykki stjórnvalda gekkst sóttvarnalæknir fyrir
bólusetningarátaki fyrir aldurshópinn sex mánaða til
19 ára sem hófst á árinu 2002. Markmið rannsóknar-
innar sem hér er kynnt er að meta kostnaðarhag-
kvæmni átaksins. Kostnaðarhagkvæmnisgreiningin
er gerð út frá sjónarhóli íslenska ríkisins. Kostnaður
á hvert unnið lífár er notaður sem mælikvarði á ár-
angur. Greiningin leiðir í ljós að kostnaður á hvert
hindrað tilfelli er 618.000 krónur og kostnaður á
hvert unnið lífár er 101.000 krónur. Til samanburðar
er kostnaður á hvert hindrað tilfelli 2.481.000 krónur
og kostnaður á hvert unnið lífár er 857.000 krónur í
Englandi og Wales. Niðurstöður okkar benda til að
bólusetning gegn meningókokkum C sé mjög kostn-
aðarhagkvæm en lægri kostnaður á Islandi skýrist
fyrst og fremst af því að ódýrara er að ná til þeirra
sem á að bólusetja hér á landi en í Englandi og Wales.
'Landspítala Eiríksgötu 5,
2Viðskipta- og hagfræðideild
Háskóla íslands,
3Landlæknisembættinu.
Fyrirspurnir og bréfaskipti:
Guðmundur I. Bergþórsson,
Landspítala Eiríksgötu 5,101
Reykjavík. Sími 543 1200.
gudmunbe@lsh.is
Lykilorð: bólusetning gegn
meningókokkum C, sýking af
völdum meningókokka,
kostnaðarhagkvœmnisgreining.
Inngangur
Á íslandi hafa á síðustu 10-15 árum greinst um 15-20
einstaklingar árlega með alvarlegar sýkingar af völd-
um meningókokka og er tíðnin hér á landi af men-
ingókokkasjúkdómi, og einkum af völdum hjúpgerð-
ar C, ein sú hæsta sem þekkist í Evrópu (mynd 1 og
2). Hér á landi hafa hjúpgerðir B og C verið þær sem
oftast valda ofangreindum sýkingum og á síðustu ár-
um hafa sýkingar af völdum hjúpgerðar C færst í vöxt
(mynd 3). Á árunum 2001 og 2002 greindust 13 ein-
staklingar hvort ár með sýkingu af völdum meningó-
kokka C. Dánartíðni af völdum meningókokkasýk-
inga er um 10% og ætla má að önnur 10-20% fái alvar-
leg mein eftir sýkinguna (1,2).
Fram að þessu hefur ekki verið til nægilega gott
bóluefni gegn meningókokkum til nota hjá börnum
en nýlega komu á markað próteintengd bóluefni gegn
meningókokkum C sem notuð hafa verið á Englandi
og írlandi frá 1999 með góðum árangri (3).
Á árinu 2002 ákváðu íslensk stjórnvöld að hrinda
af stað bólusetningarátaki gegn meningókokkum C
hjá einstaklingum á aldrinum sex mánaða til og nteð
19 ára, eða alls um 82.500 einstaklingum (4). Verk-
efnisáætlunin miðaði að því að bólusetja hópinn inn-
ENGLISH SIIMMARY
Bergþórsson Gl, Matthíasson Þ, Guðnason Þ, Briem H
Cost-effectiveness analysis on meningococca
serogroup C vaccination
Læknablaðið 2004; 90: 379-83
Meningococci C are bacteria that can cause meningitis and
severe bacteremia. In lceland 8-15 cases of meningo-
coccal disease can be expected annually. The case fatality
ratio is approximately 10%. After the approval of the
lcelandic government The State Epidemiologist started a
vaccination campaign for all individuals from 6 months to
19 years of age in the country. The purpose of this
investigation is to evaluate the cost effectiveness of the
vaccination programme. The cost effectiveness is made
from the viewpoint of the lcelandic state. The cost per year
saved is used as a marker for success. The cost effective-
ness analysis reveals that the cost per case avoided is
618.000 lcelandic kronas and the cost per life year saved is
101.000 lcelandic kronas. In comparison the cost per case
avoided is 2.481.334 lcelandic kronas and the cost per life
saved is 857.483 lcelandic kronas in England and Wales.
We conclude that vaccination against meningococci C is
very cost effective but lower cost in lceland can mainly be
explained by lower cost of distributing and administering
the vaccine to the vaccinees in lceland compared to
England and Wales.
Key words: meningococcat C vaccination, meningococcal
disease, cost-effectiveness analysis.
Correspondance: Guðmundur I. Bergþórsson,
gudmunbe@ish.is
an eins árs eftir 15. október 2002 og jafnframt var
bólusetning gegn meningókokkum C felld inn í hefð-
bundna ungbarnabólusetningu við sex og átta mán-
aða aldur.
í þessari grein er lýst kostnaðarhagkvæmni bólu-
setningarátaks gegn meningókokkum C á íslandi.
Aðferðir
Með kostnaðarhagkvæmisgreiningu eins og hér verð-
ur rætt um er kostnaður bólusetningarátaks reiknað-
ur á hverl hindrað tilfelli og hvert unnið lífár.
Slík greining krefst umfangsmikilla upplýsinga um
aldursbundnar sýkingar og dánarlíkur bólusettra og
Læknablaðið 2004/90 379