Læknablaðið - 15.05.2004, Blaðsíða 65
UMRÆÐA & FRÉTTIR / BÓKARFRÉTT
Vandað og áhugavert ritverk um
skurðlækningar
Læknablaðinu hefur borist ritverkið Kirurgisk
Kompendium, en það er gefið út af Nyt Nordisk
Forlag Arnold Busck og er ritstýrt af þeim Flemming
Stadil prófessor í almennum skurðlækningum, Bjarne
Lund prófessor í bæklunarskurðlækningum, báðir
við Rigshospitalet í Kaupmannahöfn, og Jörgen
Nordling prófessor í þvagfæraskurðlækningum við
Herleve sjúkrahúsið í Kaupmannahöfn. Um er að
ræða þriðju útgáfu af ritverkinu sem fyrst kom út
1987. Eins og fram kemur í formála að fyrstu útgáfu
spratt útgáfa verksins upp úr þörf, en yfirgripsmikið
ritverk í almennum skurðlækningum á Norðurlanda-
máli hefur vantað um alllangt árabil. Með aukinni
sérhæfingu hafa undirgreinar skurðlæknisfræðinnar
vaxið sem sérstakar greinar og hafa ritverk þeim
tengdar orðið meira áberandi á kostnað ritverka er
fjalla um almennar skurðlækningar í heild sinni. Rit-
verk þetta er talið höfða til allra lækna, læknanema
og þeirra er áhuga hafa á handlæknisfræði.
Ritverkið er í tveimur bindum og er hvort bindi
um 1000 blaðsíður. Allur texti annarrar útgáfu hefur
verið endurskoðaður og endurritaður. Bætt hefur
verið við töluverðu af ljósmyndum og teikningum
sem eru flestar í lit og má segja að teikningarnar séu
óvenju skýrar og lærdómsríkar. Verkið er þannig upp
byggt að í fyrra bindi eru almenn atriði er snúa að
handlæknisfræði, en fyrir utan kafla er fjallar um
sögu handlæknisfræðinnar, eru kaflar eins og mat
fyrir aðgerð, svæfingar, vökvagjöf, aceptísk tækni, sár
og sárameðhöndlun og svo framvegis. Þessu til við-
bótar er í fyrra bindi lögð megináhersla á sjúkdóma
og aðgerðir í miðlaugakerfi, brjóstholi, hjarta og
æðakerfi, meltingarvegi en einnig eru lýtalækningum
gerð skil. í síðara bindi er áhersla lögð á sjúkdóma og
aðgerðir í briskirtli, lifur, nýrum og þvagfærum og
stoðkerfi en einnig er vandamálum eins og „acut
abdomen" gerð skil fyrir utan umfjöllun um barna-
skurðlækningar. Að auki má finna kafla um sjúk-
dóma og aðgerðir á höfði og hálsi svo og eru kven-
sjúkdómafræði gerð skil, sérstaklega þeirn hluta er
snertir aðgerðir.
Efnisyfirlit er mjög vel upp byggt og gerir alla leit
einfalda. Atriðisorðaskrá er einnig með ágætum og
verulega yfirgripsmikil og gefur góðan og hraðan að-
gang að textanum. Textinn er byggður á hefðbund-
inni umfjöllun um sjúkdóma, orsakir þeirra og með-
ferð en mikil áhersla er lögð á aðgerðartækni. Þar er
textinn styrktur með fjölda teikninga og Ijósmynda
sem eru afar fræðandi og gera lesandanum auðvelt
fyrir að átta sig á framkvæmd. I verkinu er einnig til
staðar vandamiðuð nálgun sem er afar áhugaverð.
Eins og áður hefur komið fram er ritverkið á
dönsku sem er sérlega aðgengileg til lestrar og ætti
ekki að vera lil vandræða þeim er hafa grunnundir-
stöðu í því tungumáli, en leitast hefur verið eftir því
að nota „samnorræn orð“ þar sem því er við komið.
Hér er um að ræða afar vandað ritverk sem verður að
teljast góður valkostur við sambærileg verk rituð á
ensku og er hér á ferðinni einhver áhugaverðasta bók
sem undirritaður hefur séð um langt árabil.
Hannes Petersen
Höfundur er háls-, nef- og
eyrnalæknir og á sæti
í ritstjórn Læknablaðsins.
Læknablaðið 2004/90 429