Læknablaðið - 15.05.2004, Blaðsíða 64
UMRÆÐA & FRÉTTIR / SAMSTARF LÆKNA OG LYFJAFYRIRTÆKJA
Samskipti lækna og lyfjafyrirtækja eru gagnleg og
nauðsynleg fyrir þróun lyfja en einnig til að tryggja að
lyf séu notuð rétt, bæði af þeim sem skrifa lyfseðla og
af sjúklingum sem taka lyfin. Samstarf milli lækna og
iðnaðar er ein af forsendum þess að nýjungum í lyfja-
meðferð sé komið á framfæri og slíkt samstarf þarf að
eiga sér stað á öllum ferli lyfjaframleiðslu og við
notkun lyfja fyrir sjúklinga.
Þrátt fyrir þetta þarf samstarf læknastéttarinnar
við iðnaðinn að vera byggt á almennum reglum sem
tryggja sjálfstæði beggja aðila í starfi sínu. Hvað þetta
varðar hafa viðeigandi yfirvöld víða um lönd sett laga-
ramma um samstarf á sumum sviðum (klínískar lyfja-
prófanir, lyfjaauglýsingar og eftirlit (pharmaco vigil-
ance)).
Til viðbótar við lagaákvæði þar sem þau eiga við
telja læknastéttin og lyfjaiðnaðurinn nauðsynlegt að
koma til móts við áhyggjur samfélagsins yfir því hvort
samstarf lækna og lyfjafyrirtækja sé við hæfi. CPME
og EFPIA líta svo á að tryggja megi traust almenn-
ings ef báðir aðilar halda sig við almennar, leiðbein-
andi reglur um öll sín samskipli.
Almennar reglur
Almennar reglur skulu gilda án þess að farið sé á svig
við regluverk eða siðareglur sem settar eru af ESB
eða heimalandinu.
Lykilorð
- traust sjúklinga
- sjálfstæði í klínísku starfi
- heiðarleiki
- gagnkvæmt traust, vinnubrögð sem treysta má
- yfirsýn, gagnsæ, sannreynd vinnubrögð
- sjálfstæði og viðurkenning á færni og þekkingu
- hlutdeild - launagreiðslur, risna
- trúnaður - einkamál, þagnarskylda
Sérstök sviö þar sem læknar og lyfjafyrirtæki
starfa saman
Sem fyrsta skref í því að setja á blað uppkast að sam-
starfsreglum milli lækna og lyfjafyrirtækja er talið
rétt að taka fyrir bein samskipti þeirra.
Þau svið sem fyrír valimi hafa orðið eru
- fyrirtæki sem sjá læknum fyrir upplýsingum
- fyrirtæki sem styðja við endur- og símenntun
lækna og vísindaráðstefnur
- læknar sem veita fyrirtækjum ráðgjöf
- klínískar rannsóknir
A sérhverju af þessum sviðum þarf að koma skýrt
fram hvernig staðið skuli að verki.
Svœði þar sem gagnlegt gœti verið að koma tilmælum
á framfœri
- lyfjaeftirlit (pharmaco vigilance)
- fyrirtæki sem gefa sjúklingum upplýsingar beint
Eins og hér að ofan má sjá er skjalið varlega orð-
að. Pað var ekki samþykkt í sjálfu sér sem stefna evr-
ópskra lækna. Verði gert samkomulag í vinnuhópn-
um verður að sjálfsögðu fjallað um efni þess hjá
CPME og afstaða tekin til hvers atriðis fyrir sig.
Málþing um reykingar
kvenna og karla
Morgunverðarfundur um heilbrigðismál
verður haldinn á vegum félagsins Stjórnvísi 11. maí næstkomandi kl. 8:30-
10:00 í Víkingasal Hótels Loflleiða.
Dagskrá:
Faghópur um heilbrigöisniál - Símon Porleifsson, ráðgjafi IMG
Fjármögnun og rekstur heilbrigðisþjónustu - Axel Hall hagfræðingur, Hag-
fræðistofnun Háskóla íslands
Rýni til gagns - fyrirspurnir frá lesanda skýrslunnar - Katrín Olafsdóttir, að-
júnkl við Háskólann í Reykjavík
Spurningar og umræður
Fundarstjóri: Guörún Hiignadóttir stjórnunarráðgjafi hjá IMG
Þarf kynbundna nálgun í
forvörnum og reykleysis-
meðferö? Rætt verður um
reykingar karla og kvenna
og reykleysismeðferð á
málþingi 4. júní sem sér-
staklega er ætlað fagfólki í
heilbrigðisþjónustu sem kemur að tóbaks-
vörnum. Að málþinginu standa verkefnis-
stjórn um heilsufar kvenna og heilbrigðis-
og tryggingamálaráðuneytið. Nánari upp-
lýsingar og skráning: www.heilbrígdisradu-
neyti.is
Málþingið fer fram á Grand Hótel kl. 10:30-
17:00.
428 Læknablaðið 2004/90