Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.05.2004, Side 27

Læknablaðið - 15.05.2004, Side 27
FRÆÐIGREINAR / MEÐFERÐ VIÐ ÖNDUNARBILUN Meðferð með ytri öndunarvél við bráðri öndunarbilun Eyþór Björnsson Ólafur Baldursson Gunnar Guðmundsson SÉRFRÆÐINGAR í LUNGNASJÚKDÓMUM Þorbjörg Sóley Ingadóttir HJÚKRUNARFRÆÐINGUR Læknablaðið 2004; 90: 391-4 Lyflækningasvið 1, lungna- deild Landspítala Fossvogi. Fyrirspurnir og bréfaskipti: Eyþór Björnsson, Landspítala Hringbraut, 101 Reykjavík. eythorbj@landspitali. is Lykilorð: öndunarvél, öndun- arbilun, langvinn lungnateppa. Inngangur Bráð öndunarbilun er algengt klínískt vandamál og oft dánarorsök sjúklinga með langvinna lungnateppu (LLT). Hefðbundin öndunarvélameðferð með barka- þræðingu (innri öndunarvél) hefur lengi verið kjör- meðferð en krefst bæði mannafla og fjármagns og fel- ur í sér áhættu, svo sem spítalasýkingar, þrýstings- áverka (barotrauma) og áverka á öndunarfæri. A síð- asta áratug hefur fjöldi rannsókna leitt í ljós að önd- unarstuðningur með ytri öndunarvélum (BiPAP) minnkar verulega þörf á barkaþræðingu, styttir legu- tíma á gjörgæsludeildum og minnkar hjúkrunarþörf. Einnig hefur verið sýnt fram á hærri eins árs lifun og færri endurinnlagnir hjá LLT sjúklingum sem eru meðhöndlaðir með BiPAP samanborið við þá sem eru barkaþræddir (1). Nægileg reynsla liggur nú fyrir til að hægt sé að sannreyna þessa meðferð (evidence based) og nýleg samantekt (meta-analysis) staðfesti að fáa einstaklinga þarf að meðhöndla á þennan hátt til að samanburðurinn verði marktækt betri en af hefðbundinni meðferð (2). Ennfremur virðist sem spara megi fjármagn með þessum hætti (3). Notagildi ytri öndunarvéla (BiPAP/CPAP) nær til öndunarbilunar af fleiri orsökum en LLT. CPAP er þannig mjög árangursrík meðferð við lungnabjúg. Al- mennt má þó segja að öndunarstuðningur sé árang- ursríkari þegar öndunarbilun einkennist af hækkun hlutþrýstings koltvísýrings í blóði (hypercapnic), en við lækkun súrefnisþrýstings (hypoxic). Sjá töflu I. Hluti rannsókna á þessu sviði eru breskar en í því landi er hefð fyrir sérstökum hágæsludeildum (respira- tory intermediate care unit, high dependency unit) þar sem slík meðferð fer gjarnan fram. í Bretlandi hefur verið talið að sjúkrahús með upptökusvæði um 250.000 íbúa gæti búist við að meðhöndla 72 sjúk- linga með þessum hætti ár hvert (7). Árið 2002 birtu bresku lungnalæknasamtökin (BTS) leiðbeiningar fyrir BiPAP meðferð við bráðri öndunarbilun (5). Önnur lungnalæknasamtök hafa ekki enn gefið út leiðbeiningar á þessu sviði og þykir því eðlilegt að hér sé höfð hliðsjón af leiðbeiningum BTS, að nokkru leyti í samantekt Fondenes (6). Tafla II sýnir nokkur atriði úr þessum leiðbeiningum. Skilgreiningar Öndunarbilun er skilgreind sem p02 < 60 mmHg (hypoxisk öndunarbilun eða súrefnisbilun) og/eða pCÖ2 > 45 mmHg (hypercapnisk öndunarbilun eða koltvísýringsbilun). Tafla 1. Ábendingar fyrirytri öndunarvél viö bráöa önd- unarbilun (4). Sjúkdómar Sannreynt A Bráö versnun á LLT Lungnabjúgur Lungnabólga hjá ónæmisbældum Auöveldar sjúklingum meö LLT aö komast úr öndunarvél Sannreynt B Asmi Samfélagslungnabólga hjá LLT sjúklingum Öndunarbilun eftir aögerö Fækkar endurbarkaþræöingum (reintubation) Sjúklingar sem ekki eiga aö fara í öndunarvél Sannreynt C Slímseigjusjúkdómur (cystic fibrosis) Samfélagslungnabólga Þrenging á efri loftvegum Bráöur lungnaskaöi (ARDS) Eftir áverka CPAP stendur fyrir Continuous Positive Airway Pressure (stöðugur jákvæður loftvegaþrýstingur). Vél- in gefur þá stöðugan jafnan yfirþrýsting á grímu, óháð öndunarfasa sjúklingsins. Grímuþrýstingur stjórnast af útöndunarventli með fastri eða stillanlegri mót- stöðu. BiPAP stendur fyrir Bilevel Positive Airway Pres- sure (tveggja þrepa jákvæður loftvegaþrýstingur). Vélar með þessa stillingu skipta milli lágs útöndunar- þrýstings og hærri innöndunarþrýstings. Munurinn milli þessara þrýstingsgilda gefur bein loftunar (ven- tilations) áhrif sem viðbót við eigin öndun sjúklings og nefnist „öndunarstuðningur“ (pressure support). Margar slíkar vélar eru fáanlegar, allt frá vélum sem notaðar eru eingöngu á sjúkrahúsum svo sem Bi- PAP-Vision, til véla sem eru ætlaðar til heimanota. Stillingarmöguleikar 1. Þrýstingur. Flestar vélar bjóða upp á þrýsting allt að 30-40 cm H20 en sjaldan er þörf á hærri þrýst- ingi en 20 cm H20. 2. Tegund öndunarstuðnings (MODE). a. Sjálfkrafa (Spontaneous - S), þrýstingsbreyt- ingar fylgja eigin öndun sjúklings. b. Sjálfkrafa/tímasett (Spontaneous/Timed - S/T). Vélin gefur ákveðna lágmarksöndunartíðni en fylgir annars öndun sjúklings. Læknablaðið 2004/90 391

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.