Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.05.2004, Side 68

Læknablaðið - 15.05.2004, Side 68
UMRÆÐA & FRÉTTIR / EVRÓPSKT SAMSTARF Skref í rétta átt Katrín Fjeldsted Höfundur er fulltrúi LÍ í CPME. Læknar í Evrópu starfa saman um margt. Sem dæmi má nefna fagleg málefni einstakra sérgreina og samstarf milli stéttarfélaga lækna. ínnan Evrópu er sameiginlega hagsmuni lækna víða að finna, ekki sízt í öllu því sem lýtur að ESB og regluverkinu þaðan. Það skiptir miklu fyrir lækna að stilla saman strengi sína ef rödd þeirra á að heyrast og í háborg skrifræð- isins, Brussel, er það kannski mest áberandi. Sú rödd þarf að hljóma sem hreinast svo samlíking við tónlist- ina sé í heiðri höfð. Evrópsk læknafélög tengjast gegnum CPME, sem er regnhh'f yfir öðrum læknasamtökum. Norræn lækna- félög eiga með sér sérstakt samstarf, sérfræðingafé- lög tengjast sem og heimilislæknafélög sem starfa saman í UEMO og WONCA EUROPE, fyrir utan að tengjast svæðisbundið, samanber Norðurlandasam- starf. Kennarar í sérgreinum læknisfræðinnar eiga með sér samstarf, þeir sem vinna að gæðaþróun, end- urmenntun/símenntun, jafnréttismálum og svo fram- vegis. Mörgum kann að finnast að þátttaka íslenzkra lækna á erlendum vettvangi sé lítt þörf en aðrir líta á hana sem jafnsjálfsagðan hlut og að taka þátl í starfi alþjóðastofnana á öðrum sviðum þjóðlífsins. Samt er nauðsynlegt að fara ofan í kjölinn á því hvernig sam- starfi lækna er háttað og reyna að einfalda hlutina sé það hægt. Væru læknar að hefja slíkt samstarfi núna yrði það án efa annað og einfaldara. Sum félög, stofn- anir og samtök hafa orðið til vegna aðstæðna, ad hoc, önnur sem mótvægi við önnur félög en flest án efa vegna þess að menn vilja gjarnan læra hver af öðrum og starfa saman að sameiginlegum markmiöum og áhugamálum. Það hlýtur þó vera Ijóst að lítill læknahópur eins og hér á landi hefur ekki burði til að taka þátt í er- lendu samstarfi eins og stærri þjóðir geta. Þess vegna hafa komið upp hugmyndir um að grisja verði skóg- inn og sameina félög sem vinna að svipuðum málum til þess að komasl hjá tvíverknaði þó ekki sé annað. Sum lönd geti kannski aðeins tekið þátt í starfi einna samtaka kostnaðarins vegna og kreíjast þá þess að öll mál séu tekin þar til meðferðar þótt þau hafi verið rædd og afgreidd annars staðar áður. Læknafélög stærri þjóða eru sama sinnis og hafa tillögur um breytingar meðal annars komið frá írsku sendinefnd- inni hjá CPME (2004/032) þar seni því er á einfaldan hátt lýst hve mikilvægt sé að breyta flóknu kerfi og lagt til að haldin verði ráðstcfna allra þessara aðila á yfirstandandi ári þar sem reynt verði til þrautar að finna lausnir. Irarnir vilja að sérhvert læknafélag álykti um það hvernig tryggja megi þátttöku en einn- ig að læknastéttin sé málsvari sjúklinga gagnvart Evr- ópusambandinu. Þá hafi læknar ónóg áhrif á Evrópu- vettvangi og það sé alvarlegt vandamál. Brezka læknafélagið, BMA, hefur lagt fram hug- myndir um það hvernig framtíð evrópskra læknafé- laga gæti orðið (CPME 2004/016) og er þá haft í huga að auka megi vægi lækna í umræðu um heilbrigðis- mál í Evrópu en jafnframt draga úr kostnaði með því að sameinast um starfsfólk og húsnæði í eins konar Domus Medica í Brussel. Vísir að þessu er að UEMO hefur fengið inni á skrifstofum CPME í Brussel. BMA á aðild að CPME, UEMS, UEMO og PWG og leggur til að hver samtök fyrir sig ræði hvernig að nánara samstarfi og sameiningu megi standa. Gallar eru án efa nokkrir en kostirnir eru eftirfar- andi: 1. Meiri afköst og minni kostnaður, lægri árgjöld. 2. Evrópskir læknar tala einum rómi. 3. Komizt verður hjá tvíverknaði og þar með sparast vinnukraftar sem nýta má til annarra verkefna. 4. Læknasamtök hvers lands geta tekið virkari þátt á vettvangi Evrópusamtakanna og þar með haft meiri áhrif á stefnumörkun. 5. Komið verður í veg fyrir að léleg afköst, tví- verknaður og lítil áhrif á stefnumótun skilji læknastéttina eftir áhrifalausa og raddlausa í Evrópu. Það er að sjálfsögðu dýrt fyrir íslenzka læknastétt að taka þátt í samstarfi á alheimsvísu í WMA, í Evr- ópustarfi, Norðurlandasamstarfi og svo einnig á sviði fagfélaga eins og áður sagði. Því væri það sannkallað fagnaðarefni fyrir okkur ef hægt væri að láta samein- ingardraumana rætast. Hvert skref í þá átt er skref í rétta átt. 432 Læknablaðið 2004/90

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.