Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.05.2004, Síða 73

Læknablaðið - 15.05.2004, Síða 73
UMRÆÐA & FRÉTTIR / ARFUR JÓNS STEFFENSEN ■ Læknabók Þorleifs Björnssonar Endurreisn vísinda og mennta á Ítalíu Roger I (1031-1101) reyndist afburðastjórnandi og sýndi fádæma umburðarlyndi þeim þegnum, sem voru af öðru þjóðerni og það sem meira var, í öllu ríkinu var fullkomið trúfrelsi. Fern trúarbrögð þrifust hlið við hlið - rómversk-kaþólsk og grísk-kaþólsk trú, íslam og gyðingdómur. Höfuðborgin, Palermó, var nefnd þrítyngda borgin, opinberu málin voru latína, gríska og arabíska og að auki mátti heyra arameisku, tungu Gyðinganna og frönsku, móðurmál Normann- anna. Var því ekki furða að til þessa frjálsa rfkis streymdu menntamenn, skáld og listamenn. Fram að þessu höfðu menning og vísindi verið aðskilin í tvo heima, latneskan og grískan og ríkti gagnkvæm andúð og skilningsleysi þar á milli. Arab- ar komust í snertingu við Aust-rómverska keisara- dæmið og þar voru náin menningarsamskipti. Til dæm- is er vitað að í byrjun níundu aldar barst Mamoun kalífa í Bagdad safn grískra rita sem hann lét kristna Sýrlendinga þýða á arabísku. Grísk arfleifð komst þannig í vörzlu Serkjanna og falin handan kristninnar í Jerúsalem, Alexandríu, Kaíró, Túnis, Spáni og Sikil- ey. í ríki kalífanna stóð læknisfræði með blóma og stórlega var bætt við þekkinguna. Frægastur læknir þar var Avicenna (Ibn Sina), sem uppi var 980-1037 og nefndur var prinsinn meðal lækna. Meginverk hans nefnist lögmál læknisfræðinnar og var það notað til kennslu víða um Vesturlönd og á einum stað allt til ársins 1650. Raunar er Avicenna nú á dögum þekkt- astur fyrir heimspekikenningar sínar og fyrir þau áhrif sem hann hafði á Averroes og Maimonides, Heilagan Tómas Aquinas og Albertus Magnus. Fyrsta myndskreytta verkið um skurðlækningar kom frá hendi Abduls Kasim (Albucasis), sem var sam- tímamaður Avicenna og bjó í Kordóba á Spáni. Frá þeirri borg kom einnig annar læknir, Maimonides, Gyðingurinn Moses ben Maimon (1135-1204). Þegar hann neitaði að kasta trú sinni og ganga íslam á hönd, var hann útlægur ger og flýði til Kaíró. Þar varð frægð hans slík að hann varð líflæknir Saladíns fyrirliða Serkjanna. Maimonides ritaði líu bækur á arabísku og kom þar á framfæri hugmyndum Hippókratesar, Galens, Díoskórídesar og Avicenna. í læknisfræðileg- um kjarnyrðum kom hann kenningum Galens í 1500 stuttar, hnitmiðar setningar að hætti Hippókratesar. Á sama hátt og Ibn Sina er Moses ben Maimon nú hins vegar þekktastur fyrir skrif sín um heimspeki og þó sérstaklega siðfræði. Þegar uppgangur Normanna hófst var ríki kalíf- anna í Bagdad farið að hnigna og eftir að krossferð- irnar hófust tóku Gyðingar að streyma vestur á bóg- inn. Þeir fluttu með sér þekkingu sem þar var löngu glötuð og má orða þetta svo að Serkir og Márar hafi varðveitt læknavísindin fyrir Vesturlandabúa um hin- ar myrku aldir. Þegar vísindarit, frumsamin og þýdd, tóku að streyma vestur á bóginn, var hafizt handa við að þýða þau úr arabísku á latínu og hvergi voru betri skilyrði en á Sikileyjunum báðum. Þegar eftir að Normannar höfðu tryggt yfirráðin á Sikiley, réðu þeir þýðendur til þess að snúa á latínu þeim arabísku og grísku bókum sem þeir komust yfir í Palermó. í læknisfræðinni var það hins vegar Salernó sem tók forustuna. Örn Bjarnason Læknaskólinn í Salernó Salernó liggur á vesturströnd Ítalíuskagans við botn samnefnds flóa um fimmtíu kílómetra sunnan við Napólí. Á velmektartímum Rómarveldisins var þar vinsæll heilsulindastaður og álitið er að munkar af Benediktsreglu hafi verið farnir að reka þar spítala í byrjun níundu aldar, en auk þess var spítali á Monte Cassino í tengslum við klaustrið þar. Ekki er ágreiningur um það að í Salernó varð til fyrsti læknaskóli í Evrópu, en margt er á huldu um upphaf hans. Það hefir líklega verið á níundu öld og heimildir eru til um það að seint á öldinni hafi stúd- entar verið farnir að sækja þangað úr fjarlægum hér- uðum. Munnmæli herma að stofnendur hans hafi ver- ið Gyðingurinn Elínus, Grikkinn Pontínus, Arabinn Adala og Rómverjinn Meistari Salernus. Þó svo að sögnin sé vafasöm í betra lagi má segja að hún lýsi vel þeim menningarþáttum sem tryggðu velgengni skól- ans. í Salernó var skurðlækningum gert jafn hátt undir höfði og lyflækningum og konur fengu aðgang að náminu. Frægust þeirra var Trotula sem við er kennd ritgerð um fæðingarfræði. Eitt frægasta ritið sem frá Salernó kom var Regi- men Sanitatis Salernitanum, latneskt ljóð um forsend- ur mataræðis og hreinlætis. Elstu uppskriftir geyma um 362 vers og sumar allt að 3500. Ljóðið var fyrst gefið út í Písa 1480 og síðan fylgdu fjórtán útgáfur víðs vegar í Evrópu og bókin var staðalrit fyrir lækna út sextándu öldina og fram eftir sautjándu öldinni. Tilefni þessarar frásagnar um ríki Normanna og um Salemóskólann var að geta sagt deili á þeim manni sem Henrik Harpestræng fékk efnivið sinn hjá að verulegum hluta. Constantínus Africanus var fæddur í Karþagó eða á Sikiley snemma á elleftu öld. Hann lærði læknisfræði í Salernó og ferðaðist um Sýrland, Persíu, Indland, Eg- yptaland og Eþíópíu og safnaði handritum um læknis- Fyrri hluti þessarar greinar birtist í aprílhefti Læknablaðsins. Höfundur var ritstjóri Lækna- blaðsins 1976-1993. Hann er að mestu hættur lækningum og vinnur nú að undirbúningi að útgáfu á norrænum lækninga- handritum frá miðöldum og skýringum á þeim. Læknablaðið 2004/90 437
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.