Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.05.2004, Síða 74

Læknablaðið - 15.05.2004, Síða 74
UMRÆÐA & FRÉTTIR / ARFUR JÓNS STEFFENSEN fræðileg efni. Hann hafði vald á arabísku, grísku og latínu og var því einstaklega vel fallinn til þess að rann- saka og þýða þessa texta. Hann starfaði í klaustrinu sem Heilagur Benedikt hafði stofnað árið 529 á Monte Cassino, en það er rniðja vegar milli Salernó og Róm- ar. f>ar sneri hann úr arabísku á latínu þrjátíu og sjö bókum, þar á meðal voru tvö verk eftir Isaac Israeli sem uppi var einhvern tímann milli 855 og 955 og starf- aði sem augnlæknir í Norður-Afríku og enn erum við minnt á framlag Gyðinganna. Mikilvægasta afrek Konstantínusar var að koma á framfæri hinni víðtæku þekkingu á grískri læknis- fræði sem Islam bjó yfir, þar á meðal verkum Hippó- kratesar og Galens, svo og bókinni Pantechné (Öll kunnátta og færni), sem er stytt útgáfa af Liber Reg- alis (Kitab al-maliki eða Konungsbókinni) frá tíundu öld eftir persneska lækninn Haly Abbas (Ali ibn al- Abbas). Þýðingar Konstantínusar breiddust um Evrópu með ótrúlegum hraða og þær höfðu óhemjuleg áhrif næstu aldirnar. Þó svo að fram kæmu nákvæmari og fágaðri þýðingar skömmu eftir lát hans 1087, voru verk hans rannsökuð af fræðimönnum allt fram á sextándu öld. í Geschichte der Botanik setur þýzki grasafræð- ingurinn Ernst H.F. Meyer fram þrjár fullyrðingar: Að Salernóskólinn hafi vaxið upp óháð reglu heilags Benedikts í Monte Cassino, að skólinn hafi allt frá byrjun verið undir veraldlegri stjórn, þó svo að klerklærðir fengju líka að starfa þarog að fyrir daga Konstantínusar Afríkanusar hafi skólinn ekki verið opinber kennslustofnun, heldur hafi þar verið eins konar læknagildi og læknarnir hafi haldið þekkingunni leyndri fyrir öðrum en fáum útvöldum. Var það og í samræmi við ævagamlan læknaeið, sem er „miklu eldri en Hippókrates, en sýnir glöggt anda þann, sem ríkti í esklepíadísku, hippokratisku skólunum, en þaðan er hann til vor kominn“ eins og segir í þýðingu Valdimars Steffensens: „Eg vil virða læknisfræðikennara minn sem foreldra mína, taka þátt í lífskjörum hans og, ef nauðsyn krefur, ala önn fyrir honum; ... Fræði mín vil ég kenna sonum mín- um og sonum kennara míns, svo og þeim lærisveinum mínum, sem bundnir eru læknalögum og læknaeiði og engum öðrum.“ Með þýðingunum var gengið af þessari hefð dauðri og eins og fram kemur hér á eftir bættist svo við ann- ar veigamikill þáttur sem varð einnig til að tryggja framgang þeirra fræða sem Constantinus Africanus flutti Evrópubúum og ollu straumhvörfum í læknis- fræðinni. Uppgangur og síðan endalok Salernóskólans Roger II (1095-1154) tók við af föður sínum og árið 1130 var hann krýndur konungur Sikileyjar, Kapúa og Apúlíu af sendimanni páfa. Hann virðist ekki frekar en faðir hans hafa haft bein afskipti af Salernó- skólanum, en þegar læknum tók mjög að fjölga gaf hann út tilskipun árið 1140 þess efnis að í ríkinu mættu þeir einir stunda lækningar sem lokið hefðu læknisprófi. Þetta var gert til þess enginn þegn ætti á hættu að lenda í höndum reynzlulausra manna. Lá við fangelsun og eignamissir ef út af var brugðið. Dóttursonur Rogers, Friðrik annar (1194-1250), sem varð þýzk-rómverskur keisari, rak síðan smiðs- höggið þegar hann kunngjörði í Liber Augustalis að próf vegna veitingar lækningaleyfis skyldu fara fram hjá meisturum læknaskólans í Salernó, en keisarinn eða fulltrúi hans gæfi út leyfið. Aður en gengizt yrði undir prófið skyldi fyrst ljúka þriggja ára undirbún- ingsnámi í náttúruvísindum og heimspeki. Lyflæknis- fræði og skurðlækningar skyldi kenna á fimm árum og síðan tæki við starf í eitt ár hjá reyndum lækni. Vitnað var til þess skaða og óafturkallanlega tjóns sem getur leitt af reynsluleysi lækna og að með þess- um ráðstöfunum sjái konungurinn trúum þegnum sínum fyrir betri þjónustu. Hefir því snemma verið skjalfest að stjórnendur ríkja telja sig bera ábyrgð á heilbrigði þegna sinna og varð þetta upphafið að því að í Evrópu eru það stjórnvöld sem ákveða hverjir mega stunda lækningar og hvernig eftirliti með lækn- um skuli háttað. Með tilskipun sinni viðurkenndi keisarinn ágæti og yfirburði Salernóskólans, en það var einmitt í því sem fall hans var falið: Á tólftu öldinni dreifðust nem- endurnir út um alla Evrópu og margir þeirra urðu kennarar við nýja læknaskóla á Ítalíu og á þrettándu öld voru starfandi góðir læknaskólar í Bólógnía, Padúa, Ferrara, Perúgía, Síena og Róm, auk Salernó. Smátt og smátt færðist forystuhlutverkið til Mont- pellier í Frakklandi. Eins og Salernó lá borgin á mörkum hins íslamska og latneska heims og árið 1180 var leyft að Gyðingar og Arabar mættu sækja skólann og var það til marks um það frelsi sem skólinn í Montpellier naut umfram aðra franska skóla. Árið 1220 setti sendimaður páfa skólanum nákvæmar starfsreglur og í þeim var áfram viðurkenndur réttur nemenda og kennara sem ekki voru kristnir til náms og starfs. Svo virðist sem starfsemi Salernóskólans hafi að mestu fluzt til Napólí um 1268 og síðan hafi hann lið- ið undir lok og er ekki frekar hægt að tímasetja það fremur en upphafið. Á íslandi gætti enn áhrifa frá skólanum á fimm- tándu öld í lækningabók sem lítill gaumur hefir verið gefinn hérlendis fram að þessu og það er í ágætu sam- ræmi við forsöguna að við höfum hvorki hugmynd um það, hvar hún varð til eða hvernig og heldur ekki hvernig og hvenær hún lenti í Dýflinni. Við þessa sögu verður þó ekki skilizt án þess að geta hugsanlegrar vísbendingar: í Mírmanns sögu, 438 Læknablaðið 2004/90
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.