Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.05.2004, Page 82

Læknablaðið - 15.05.2004, Page 82
ÞING / STYRKIR 3. norræna þingið um lækninga- húmor í Reykjavík 9.-13. júní „Praktisk bruk av medisinsk humor“ Þingið verður haldið í Hringsal Barnaspítala Hringsins og er opið öllu áhugafólki um lækningahúmor. Dag- skrá, skráningarblað og kynningarbækling er að finna á slóðinni http://kmh.mirrorz.com Eins og yfirskrift þingsins ber með sér verður lögð sérstök áhersla á hvernig nota má húmor í starfi heil- brigðisstarfsfólks. Von er á tveimur heimsfrægum fyrir- lesurum, dr. Madan Kataria og prófessor Rod A. Martin. Dr. Kataria er heimilislæknir frá Bombay á Ind- landi. Hann er stofnandi Hláturklúbba-hreyfingarinnar og er eftirsóttur fyrirlesari og leiðbeinandi. Rod A. Martin er prófessor í sálfræði í London, Ontario í Kan- ada. Hann hefur setið lengi í stjórn The International Society of Humor Studies og byggir vísindavinnu sína að miklu leyti á rannsóknum á skopskyni og á því hvernig nota má húmor sem vörn gegn streitu. Auk þessara tveggja verða víðfrægir fyrirlesarar, bæði erlendir og innlendir. Má þar nefna Mats Falk, heimilis- lækni frá Svíþjóð, Stein Tyrdal, bæklunarlækni og for- seta Nordisk Selskap for Medisinsk Humor frá Noregi, Hildi Helgadóttur, hjúkrunarforstjóra, Braga Skúlason, sjúkrahúsprest, Sigurð Guðmundsson, landlækni, Ottar Guðmundsson, geðlækni og Pétur Lúðvígs- son, barnalækni. Q Lækna- dagar O 2005 Læknadagar verða nú haldnir 17.-21. janúar næst- komandi. Fjöldi tillagna til dagskrár Læknadaga 2005 hefur nú borist til Fræðslustofnunar. Fyrirhug- að er að ganga frá stærstum hluta dagskrárinnar fyrir sumarið. Undirbúningsnefndin hyggst fara yfir tillögurnar fyrir 15. maí og mun í kjölfarið senda svör til viðkomandi. Þeir sem enn hafa tillögur geta sent þærtil Margrétar Aðalsteinsdóttur hjá Fræðslustofn- un lækna, Hlíðasmára 8, 201 Kópavogi, eða með tölvupósti magga@lis.is Undirbúningsnefnd Novo Nordisk Foundation Research Meetings Styrkir til vísindastarfsemi Norræna rannsóknanefndin (Nordisk Forsknings Komité) ráðgerir að veita allt að 300.000 DKR á ári til vísindastarfsemi á Norðurlöndunum, til dæmis til eins til þriggja daga málþinga, jafnvel sem velskil- greinda fundi í tengslum við stærri ráðstefnur (satellite symposium), eða til að bjóöa alþjóðlega viðurkenndum vísindamönnum til styttri dvalar hjá rannsóknahópum í tengslum við fyrirlestrahald eða sambærilega starfsemi. Styrkir verða ekki veittir vegna námskeiða. Starfsemin skal vera á sviði innkirtlafræði eöa tilraunalífeðlisfræði. Hver styrkur nemur að jafnaði 100.000 DKR eða hærri upphæð. Sækja má um styrki vegna starfsemi á árinu 2005 eða 2006. Umsóknir skal senda í fimm eintökum til: Novo Nordisk Fonden Brogárdsvej 70 Postbox 71 DK-2820 Gentofte, Danmark sími: +45 44 43 90 31 bréfasími: +45 44 43 90 98 www. no vonordiskfonden.dk í umsókninni skal koma fram rökstuðningur fyrir mikilvægi þeirrar starfsemi sem sótt er um styrk til (ein síða), lýsing á starfseminni, fjárhagsáætlun og áætluð tímasetning, upplýsingar um virkni rann- sóknarhóps umsækjenda á fræðasviðinu og þýðingu þeirrar starfsemi sem sótt er um styrk til fyrir framhald þeirra rannsókna, ásamt skrá yfir birtingu á helstu nióurstöðum rannsóknarhóps umsækjenda síðastliðin tvö til þrjú ár (tvær síður). Umsóknir ásamt öllum fylgiskjölum skulu hafa borist til Novo Nordisk Fonden í síðasta lagi 17. ágúst 2004. Ófullnægjandi umsóknir og umsóknir sem berast á bréfasíma eða í tölvupósti verða ekki teknar til greina. Umsóknum verður svarað um miðjan október 2004. 446 Læknablaðið 2004/90

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.