Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.05.2004, Page 84

Læknablaðið - 15.05.2004, Page 84
LAUSAR STÖÐUR / NÁMSKEIÐ / OKKAR Á MILLI Sérfræðingur og aðstoðarlæknir Staða sérfræðings við sjúkrahúsið Vog er laus til umsóknar. Sérmenntun í geðlækningum, lyflækn- ingum eða heimilislækningum æskileg. Einnig er laus staða deildarlæknis. Nánari upplýsingar veitir Þórarinn Tyrfingsson for- stöðulæknir á staðnum eða í síma 824 7600. Um- sóknir sendist SÁÁ Ármúla 18, 108 Reykjavík, merkt- ar „læknir". íbúð til leigu í París 50 fermetra íbúð til leigu í París frá 12. til 23. júní. íbúóin er miósvæðis og með öllum þægindum. Upplýsingar í síma 565-7642 e. kl. 18, netfang: raggalovdal@hotmail.com Námskeið í stoðkerfisfræði að Reykjalundi dagana 28.-30. maí Hálshryggur Námskeið í stoðkerfisfræði (ortópedískri medisín) verður haldið að Reykjalundi dagana 28.-30. maí 2004. Er þetta annað í röð fjögurra slíkra námskeiða. Aðalkennari verður sem fyrr Bernt Ersson læknir frá Gávle. Farið er í líffærafræði og líftækni (bíomeka- nik), en aðaláhersla verður lögð á meðferð. Á nám- skeiðinu verður farið í greiningu og meðferð vanda- mála í hálshrygg og verður stuðst við bók Bernts sem verður seld á niðursettu verði á námskeiðinu. Kennt verður á sænsku eða ensku eftir þörfum. Námskeiðin eru ætluð læknum og sjúkraþjálfurum en fjöldi þátttakenda verður takmarkaður og gert ráð fyrir að þeir sem fyrstir sækja gangi fyrir. Upplýsingar og skráning á námskeiðin er hjá Magn- úsi Ólasyni, lækni á Reykjalundi (s. 566 6200, magn- uso@reykjalundur.is) og Óskari Reykdalssyni, lækni, heilbrigðisstofnuninni á Selfossi (s. 482 1300). Frá Félagi íslenskra lækna í Svíþjóð Um áramótin tók við ný stjórn FÍLÍS. Aðsetur hennar er í Lundi og samkvæmt venju starfar hún í tvö ár. Stjórnin hefur tekið við embættum af fráfarandi stjórn sem sat í Gautaborg. Embættisskip- an er eftirfarandi: Tómas Guðbjartssoii forntaður (hjarta- og lungnaskurðdeild), Kristín Huld Huraldsdóttir. ritari (skurðdeild), Hjálmar Bjartmurz (heila- og taugaskurðdeild), Jóhannes Jóhann- esson meðstjórnandi (kvennadeild) og Olai'ur Guðmundsson með- stjórnandi (háls-, nef- og eyrnadeild). Endurskoðendur eru Anna Steíánsdóttir (bæklunarskurðdeild) og Þorgerður Sigurðardóttir (svæfinga- og gjörgæsludeild). Allir stjórnarmenn eru starfandi við háskólasjúkrahúsið í Lundi nema Jóhannes sem starfar við háskólasjúkrahúsið í Malmö. Stjórn- in fundar á tveggja mánaða fresti og oftar ef þurfa þykir. Eins og stendur bíða engin sérstök hitamál nýju stjórnarinnar. Afram verð- ur lögð áhersla á að kynna sérnámið í Svíþjóð og möguleika á rann- sóknum samhliða klínísku sérnámi. Fréttabréf er gefið út tvisvar til þrisvar á ári og símaskrá er send til allra félaga FÍLÍS. Þeim sem þurfa að hafa samband við FÍLÍS er bent á að hafa samband beint við formann eða ritara. Annars eru upplýsingar um sérnám í Sví- þjóð að finna í nýlegri grein eftir undirrituð á heimasíðu Læknafé- lagsins. Tómas Guðbjartsson formaður Grönegatan 19B 222 24 Lund, Svíþjóð tomasgudbjartsson@iwtmail.com Kristín Huld Haraldsdóttir ritari Fágelhundsvagen 62, 226 53 Lund, Svíþjóð kristinhh@hotmail.com Nýkjörin stjórn FÍLÍS: Jóhannes Jóhannesson, Hjálmar Bjartmarz, Kristín Huld Haraldsdóttir, Hákon Helgi Hallgrímsson „meðstjórnandi", Ólafur Guðmundsson og Tómas Guðbjartsson. 448 Læknablaðið 2004/90

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.