Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.05.2005, Side 30

Læknablaðið - 15.05.2005, Side 30
FRÆÐIGREINAR / GAGNAGRUNNUR Gagnagrunnsrannsóknir: Tímabundin samkeyrsla heilsufars-, erfða- og ættfræðiupplýsinga með aðferðum sem Persónuvernd hefur samþykkt Miðlægur gagnagrunnur Gagnagrunnur með með heilsufarsupplýs- erfðaupplýsingum ingum úr sjúkraskrám: sem aflað er með skrif- Gert er ráð fyrir sam- legu samþykki þátttak- þykki þeirra sem ekki enda í samræmi við hafa sagt sig skriflega reglur Vísindasiðanefndar úr MHG Ættfræðigrunnur: Dulkóðaðar upplýsingar sem fást úr opinberum skrám án samþykkis þátttakenda IVIynd 1. Skýringarmynd og hins vegar að gefa hana upp á bátinn og afla afíslensku gagnagrunna- víðtæks opins samþykkis þátttakenda og eftirláta samstœðunni. Vísindasiðanefndum að gæta hagsmuna þeirra. Slíkt opið samþykki myndi veita rannsakendunt rúmt rannsóknarfrelsi en jafnframt fela raunveru- lega í sér afsal einstaklingssamþykkis sem margir telja óásættanlegt frá siðfræðilegu sjónarmiði (7). Islenska leiðin að ganga einfaldlega út frá sam- þykki þeirra sem ekki skrá sig úr grunninum, en leita skriflegs samþykkis eingöngu fyrir erfðarann- sóknum, er gjarnan höfð sem víti til varnaðar. Ég tel að við endurskoðun Laga um ntiðlægan gagna- grunn á heilbrigðissviði, sem heilbrigðisráðherra hefur boðað, hafi Islendingar gullið tækifæri til að leiða í lög heimild fyrir gagnagrunnsrannsóknum sem færi milliveg afmarkaðs upplýsts og víðtæks opins samþykkis og gæti orðið til fyrirmyndar öðr- um þjóðum. Ákjósanlegt væri að slík lög næðu al- mennt til gagngrunnsrannsókna en einskorðuðust ekki við ntiðlægan gagnagrunn á heilbrigðissviði. Ég mun þó nota hann sem lykildæmi í þessari grein þótt ég taki jafnframt mið af þeim gagna- grunnsrannsóknum sem íslensk erfðagreining vinnur þegar að. Gagnagrunnurinn Til að byrja með er nauðsynlegt að skilja hvað gagnagrunnurinn er. Það gerir málið allt ógagnsætt og ruglandi ef þetta grundvallaratriði er óljóst. I lögunum er að finna eftirfarandi skilgreiningu (3. mgr.): „Gagnagrunnur á heilbrígðissviði: Safn gagna er hefur að geynta heilsufarsupplýsingar sem skráðar eru á samræmdan kerfisbundinn hátt í einn miðlægan gagnagrunn sem ætlaður er til úrvinnslu og upplýsingamiðlunar“ (8). Til samræmis við þetta kalla ég þennan gagnagrunn með ópersónugreinanlegum heilsufarsupplýsing- um sem verða unnar úr sjúkraskrám „miðlægan gagnagrunn á heilbrigðissviði“. Til hagræðis nota ég skammstöfunina MGH. Skýrt dæmi um þennan skilning er bæklingur sent Landlæknisembættið gaf út og sendi á hvert heintili í landinu til að fræða fólk um MGH. Spurningunni „Hvað er miðlæg- ur gagnagrunnur?“ er svarað svona: „Miðlægur gagnagrunnur er safn valdra heilsufarsupplýsinga sem unnar eru úr sjúkraskrám og geymdar eru á tölvutæku formi á einum stað. Upplýsingarnar verða dulkóðaðar og varðar með aðgengishindr- unum. Þær eiga ekki að vera rekjanlegar til einstaklinga (persónugreinanlegar) nema með mikilli fyrirhöfn, tilkostnaði og að viðlögðum missi rekstrarleyfis, fjársektum og fangelsi" (9). Síðar er útskýrt: „Samkvæmt lögunum er gert ráð fyrir möguleikum á samtengingu gagnagrunnsins við gagnagrunn með ættfræðiupplýsingum og gagn- agrunn með erfðafræðilegunt upplýsingum.“ Lögin heimila leyfishafa sem sé að tengja gögn úr MGH við gögn úr tveimur öðrum gagnagrunn- um. Sá fyrri er gagnagrunnur með ættfræðiupp- lýsingum sem hafa verið unnar úr opinberum ætt- arskrám. Sá síðari er gagnagrunnur með erfðaupp- lýsingunt sem hafa verið unnar úr blóðsýnum sem læknar, í samstarfi við Islenska erfðagreiningu, hafa aflað í rannsóknarskyni. Þessir grunnar falla ekki undir lögin um gagnagrunn á heilbrigðissviði, heldur undir önnur lög. Ættfræðigrunnurinn fellur undir lög um persónuvernd og meðferð persónu- upplýsinga (10) og erfðaupplýsingagrunnurinn fellur einkum undir lög um lífsýnasöfn (11), lög urn persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga (10) og lög um réttindi sjúklinga (12). Gagnagrunnurinn umdeildi er því klasi þriggja gagnagrunna með upplýsingum sem með viss- um skilyrðum má tengja (tímabundið) saman í rannsóknarskyni. Þessi samstæða hefur ekkert op- inbert nafn. Lögin um gagnagrunn á heilbrigðissviði (grein 10) segja einfaldlega: „Rekstrarleyfishafi skal móta verklag og vinnuferli sem uppfylla skil- yrði [Persónuverndar] til að tryggja persónuvernd við samtengingu upplýsinga úr gagnagrunni á heilbrigðissviði, gagnagrunni með ættfræðiupplýs- ingum og gagnagrunni með erfðafræðilegum upplýsingum“ (8). Þetta er sá kafli laganna sem þarf einkurn endurskoðunar við í kjölfar dóms Hæstaréttar (151/2003, þar sem fundið er að því að löggjafinn feli það eftirlitsstofnun að móta skilyrði um persónuvernd án þess að hafa við „ákveðnar og lögmæltar viðmiðanir að styðjast í störfum sínum“). Lögin heimila ennfremur að MGH sé tengdur „við aðra gagnagrunna en fyrrgreinda“. Sama ákvæði er í reglugerð heilbrigðisráðuneytis (13). Eitt af því sem ruglar umræðuna er að fólk á við ólíka hluti þegar það talar um gagnagrunninn. Oft vísar orðið „gagnagrunnurinn“ aðeins í MGH, en stundum vísar það til allrar samstæðunnar grunn- anna þriggja. Jafnvel kentur fyrir, sérstaklega á erlendum vettvangi, að gagnagrunnurinn sé allur gerður að lífsýnasafni eða erfðaupplýsingagrunni, yfirleitt í tengslum við þá vafasömu fullyrðingu 426 Læknablaðid 2005/91

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.