Læknablaðið - 15.05.2005, Side 47
FRÆÐIGREINAR / BLÆÐING EFTIR FÆÐINGU
tapi, en ekki betur og það lyf hafði meiri aukaverk-
anir (5, 6). Mísóprostól er ekki enn framleitt fyrir
þessa ábendingu. Þá skortir enn rannsóknir á þeiri
lyfjagjöf. Prostaglandín E1 lyf (Prostinfenem®)
í legvöðva eru einnig virk sem viðbótarmeðferð
þegar asablæðing er að hefjast. I tilvikum, þar
sem fæðing gengur mjög vel fyrir sig, má hugleiða
að sleppa gjöf lyfjanna, en þá verður skráning
slíkrar ákvörðunar, ábyrgð og eftirlit að vera með
skýru móti. Sú aðferð hefur verið notuð talsvert
hér á landi síðastliðinn áratug (svonefnd lífeðlis-
fræðileg umönnun, e. expectant management),
en ætti nú að vera undantekning fremur en regla.
Alþjóðasamtökin taka fram að verklagsreglurnar
geti breyst og að stofnanir séu ekki skuldbundnar
til að fylgja þeim í öllu. Þær geti haft einstaka þætti
með öðru móti en þar segir, en þá þurfi að skilgre-
ina frávikin vel.
A fæðingadeild kvennasviðs Landspítala eru til
lyfin Methergin® = ergómetrín 200 mikrógrömm
(0,2 mg) og Syntocinon® = 10 a.e. oxytósín. Pro-
stinfenem® hefur einnig verið til sem varalyf og
mísópróstól (Cytotec®) er einnig tiltækt. Á tímabili
var til Syntometrine® = ergómetrín 500 míkróg
(0,5 mg) + 5 a.e. oxytósín. Síðasttalda sérlyfið er
allnokkru dýrara en hin tvö sem bæði eru meðal
ódýrustu lyfja. Ergómetrín eða annað hvort hinna
lyfjanna á að vera tilbúið og uppdregið til inngjafar
við fæðinguna. Vert er að minna sérstaklega á að
gæta varúðar þegar um er að ræða konur í áhættu-
hóp varðandi blæðingu, þær sem hafa sögu um fyrri
asablæðingu, blæðingu fyrir fæðingu, fyrri keisara-
skurð, blóðleysi, andvana fóstur, ungar mæður (<20
ára), eldri mæður, þær sem taldar ganga með stórt
barn, hafa átt fleiri en fimm börn áður, ganga með
fleirbura og hafa þekkta blæðingatilhneigingu (til
dæmis von Willebrandssjúkdóm). Muna þarf að
ekkert kemur í stað forvarna og undirbúnings undir
möguleg vandamál, eða skjót viðbrögð þegar blæð-
ing byrjar. Mæla og meta á blæðinguna. Muna þarf
að margar smáskvettur skipta máli og eru hættuleg-
ar. Þvagblaðran þarf að vera tóm/tæmd. Læknar og
ljósmæður eru í þessum tilvikum oft á eftir orðnum
hlut í meðferðinni og meðvitund um það skiptir
miklu. Blóð konunnar sjálfrar, sem hún hefur ekki
misst, verður ávallt miklu betra en blóðgjöf.
Heimildir
1. Moir JC. The action of ergot preparation on the puerperal
uterus. BMJ 1932; 1:119-22.
2. Donald I. Practical Obstetric Poblems. Lloyd-Luke (Medical
Books) Ltd, London 1969.
3. Baird D. Combined Textbook of Obstetrics and Gynaecology.
E.S. Livingstone LTD. Edinburgh, 1969
4. Myles ME Textbook for midwives. Churchill Livingstone,
Edinburgh, 1985.
5. Prendiville WJ, Elbourne D, McDonald S. Active vs. expectant
management in the third stage of labour. In: Cochrane Library,
Issue 3, 2003. Oxford. Update Software http://gateway2.ovid.
com/ovidweb.cgi
6. Villar J, Giilmezoglu AM, Hofmeyr GJ, Forna F. Systematic
review of randomized trials of misoprostol to prevent
postpartum hemorrhage. Obstet Gynecol 2002; 100:1301-12.
Virk meðferð á þriðja stigi fæðingar
samanstendur af inngripum sem ætluð
eru til að auðvelda fylgjufæðingu með
því að auka samdrætti í leginu og koma
í veg fyrir afbrigðilega blæðingu eftir
burð með því að varna samdráttarleysi
í legi. Hefðbundnu þættirnir eru meðal
annars að:
• gefa samdráttarörvandi lyf
• beita stjórnuðu naflastrengstogi
• nudda legið eftir fylgjufæðingu eins
og þörf er á
Hver sá sem er viöstaddur fæðingu
þarf að hafa þá þekkingu, hæfni og dóni-
greind sem nauðsynleg er til að beita
virkri meöferö á þriðja stigi fæöingar,
ásamt aðgangi að nauðsynlegum úrræð-
uni og búnaði.
f þessu samhengi hafa fagsamtök í
hverju landi mikilvægu og sameiginlegu
hlutverki að gegna í:
• málsvörn fyrir að konur fái umönnun
fagfólks við fæðingu;
• útbreiðslu þessarar yfirlýsingar til
allra meðlima fagfélaga heilbrigðis-
starfsfólks, til að greiða fyrir fram-
kvæmd yfirlýsingarinnar;
• fræðslu til almennings um nauðsyn
þess að koma í veg fyrir og með-
höndla blæðingu eftir barnsburð;
• birtingu yfirlýsingarinnar í fagtíma-
ritum, fréttabréfum og á vefsíðum á
starfsvettvangi lækna, ljósmæðra og
fæðinga- og kvensjúkdómalækna;
• skoða hvort lagaleg mörk eða aðrar
hindranir torveldi fyrirbyggjandi með-
ferð og rétta meðhöndlun á blæðingu
eftir barnsburð;
• taka virka meðferð á þriðja stigi fæð-
ingar inn í klínískar leiðbeiningar og
verklagsreglur, eins og við á;
• bæta virkri meðferð á þriðja stigi fæð-
ingar inn í námsefni fyrir allt fagfólk
sem kemur að fæðingum;
• samstarfi við lyfjaeftirlit, löggjafa og
aðra stefnumótandi aðila til að tryggja
að fullnægjandi birgðir af samdráttar-
örvandi lyfjuin og sprautubúnaði séu
til staðar.
Meðferd þriðja stigs fæðingar til að
varna blæðingu eftir burð
Hvernig nota skal samdráttarörvandi lyf
• Innan nn'nútu eftir fæðingu barns, ætti
að þreifa kviðinn til að útiloka fleiri
börn og gefa síðan oxýtósín, 10 ein-
ingar, í vöðva. Oxýtósín er æskilegra
en önnur samdráttarörvandi lyf af því
það er virkt 2-3 mínútum eftir gjöf,
hefur lágmarks aukaverkanir og má
gefa öllum konum.
• Ef oxýtósín er ekki til staðar, er hægt
að nota önnur samdráttarörvandi lyf
eins og: ergómetrín 0,2 mg í vöðva,
blöndu oxýtósíns og ergómetríns
(Syntometrine®) (1 lykja/ampúlla)
í vöðva eða mísóprostól (Cytotec®)
Læknablaðið 2005/91 443