Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.05.2005, Side 69

Læknablaðið - 15.05.2005, Side 69
UMRÆÐA & FRÉTTIR / H EI L B RIG ÐIS MÁ L Um óseðjandí miðstýringarhungur embættismanna Atvik geta raðast þannig í tímans rás að kenna megi þar samfelldan vegarslóða. Eins og dýrin skilja eftir sig slóð við vatnsbólin, þangað sem þeim er lífsnauðsyn að komast, skilja framagjarn- ir menn eftir sig slóð við stofnanir þar sem þeir sækjast eftir auknum áhrifum. Röð atvika getur þá orðið að rekjanlegri slóð þyrstra, kraftmikilla en ekki endilega framsýnna einstaklinga og fylgi- sveina þeirra. Hér á eftir verða skráðar nokkrar ákvarðanir heilbrigðisyfirvalda á framkvæmd heilbrigðisþjón- ustunnar í landinu og þær tímasettar í grófum dráttum. Akvarðanir þessar hafa allar minnkað valfrelsi sjúklinga og möguleika lækna til að þróa skipulag og gæði þjónustunnar. Allar minnka þær frelsi starfsfólks til að starfa sjálfstætt, til dæmis hjúkrunarkvenna og lækna sem bera ábyrgðina. Sérkennilegt, en á sama tíma og þetta gerist í heilbrigðisgeiranum, fer fram frelsisbylting í þjóð- félaginu, til dæmis í bankamálum og hvers kyns atvinnurekstri, og hefur skilað þjóðinni arði og al- mennri ánægju. Starfsfólk hefur haldið uppi þeirri læknis- og sjúkraþjónustu sem enn er við lýði en mun ekki lengi una því að sérfræðiþekking þeirra fái ekki að móta vinnubrögðin. 1980 Kosnir stjórnmálamenn koma og fara en embættismenn, umboðslausir, sitja að málum árum saman. Uppúr 1980 komu til starfa á Landspítala kerfiskarlar sem töldu að skrifstofa spítalanna ætti ekki að þjóna starfsfólkinu og sjúklingunum eins og verið hafði heldur öfugt, skrifstofan gæfi skipanir til starfsfólksins. Var nú sett á stofn innan skrifstofunnar „Aætlana- og hagdeild“ og „gæða- stofa“ svo og ýmsar nefndir sem læknaráð spítal- ans og önnur samtök starfsmanna höfðu áður haft á sinni könnu. Einn skrifstofumaðurinn klæddist grænum búningi skurðstofulækna með rykkhúfu á höfði og andlitsmaska og skók hvítvoðung framan í sjónvarpsmyndavélar. Ekki er örgrannt um að sumir sem íhuguðu stöðu sína meira en starf hafi haft nokkra unun af búlúlala-tali manns þessa. 1986 Ungum læknum, sérfræðingum í heimilis- lækningum, er meinað að byrja störf sem sjálfstætt starfandi heimilislæknar. Pess er krafist að þeir vinni á miðstýrðum heilsugæslustöðvum kerfisins. 1989 Sviðsstjórar ráðnir á sjúkrahúsin (hæfnis- kröfur óljósar, starfsheitið ekki í lögum) og heyra sviðin undir skrifstofu ríkisspítala og þar með heilbrigðis- og tryggingaráðuneytið. Þar með er talið „fræðasvið", stofnað síðar og var undanfari „Skrifstofu kennslu, vísinda og þróunar", en lækna- deild HI kemur sérkennilega lítið við sögu þess sviðs. 1990 Starfsemi göngudeildar kvennadeildar Land- spítala er rekin af almannafé með tapi til þess að koma sjálfstæðum rekstri kvensjúkdómalækna á kné. Þetta er kært og spítalinn tapar málinu fyrir dómstólum og borgar skaðabætur. 1991 Skriffinni telur sig þess umkominn að annast afhendingu styrkja úr vísindasjóði lækna á Landspítala sem læknar greiða í af launum sínum, en á erfitt með fræðiheiti og gefst upp við þetta. Reynir nokkru síðar að bola læknum burt vegna árangurs þeirra og sjálfstæðis í starfi. Notar til þess hjálp sakleysingja í stjórnarnefnd ríkisspítalanna, en einn þeirra boðaði óvænt, í rómantískri upp- hafningu, afturhvarf til náttúrunnar og mælti með fæðingum í heimahúsum að nýju. 1995 Ráðherra reynir að loka frjálsum aðgangi sjúklinga að sjálfstætt starfandi sérfræðingum með skyldutilvísunum. Læknar sýndu í þetta skiptið órofa samstöðu og ráðherra lét í minni pokann. Læknisþjónustan varð því ekki eins slæm eins og hún hefði getað orðið. 1996 Þau nýmæli eru boðuð að ökutæki héraðs- lækna skuli vera í eigu ríkisins. Ekki er vitað um bílakost (Fiat pútur eða Hummer jeppar) né fjölda starfsmanna í ráðuneytinu sem sjá um úthlutun, afhendingu, eftirlit og viðgerðir. 1997 Læknum sem stunda glasafrjóvganir er neitað um fullnægjandi aðstöðu á Landspítala en jafnframt bannað að veita þjónustu sína annars staðar. 1997 Embætti lækningaforstjóra búin til á sjúkra- húsunum. Hæfniskröfur óljósar enda embættin ekki til í lögum. Ahrif læknaráða á stjórn sjúkra- húsanna minnka. Nefndir læknaráðanna fluttar á skrifstofur spítalanna. 1999 Hjúkrunarfræðingar í heimahjúkrun gera sjúklingum kleift að vera heima hjá sér og spara rík- inu stórfé og þarf að auðvelda þeim sem mest störf þeirra. Þeir höfðu keypt sér litla bíla til að skutlast á milli sjúkra. Þetta var of mikið sjálfstæði og heilsu- gæslan keypti sér sjálf bíla, jók með öðrum orðum útgjöld til að tryggja völd sín og umsvif. 2000 Sjúkrahúsin í Reykjavík eru sameinuð án verulegrar könnunar á áhrifum til hagræðis, þjón- ustu eða gæða í kennslu, vísindum og svo framveg- Matthías Kjeld Höfundur er læknir og efnameinafræöingur. Læknablaðið 2005/91 465

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.