Læknablaðið - 15.05.2005, Síða 69
UMRÆÐA & FRÉTTIR / H EI L B RIG ÐIS MÁ L
Um óseðjandí miðstýringarhungur embættismanna
Atvik geta raðast þannig í tímans rás að kenna
megi þar samfelldan vegarslóða. Eins og dýrin
skilja eftir sig slóð við vatnsbólin, þangað sem
þeim er lífsnauðsyn að komast, skilja framagjarn-
ir menn eftir sig slóð við stofnanir þar sem þeir
sækjast eftir auknum áhrifum. Röð atvika getur
þá orðið að rekjanlegri slóð þyrstra, kraftmikilla
en ekki endilega framsýnna einstaklinga og fylgi-
sveina þeirra.
Hér á eftir verða skráðar nokkrar ákvarðanir
heilbrigðisyfirvalda á framkvæmd heilbrigðisþjón-
ustunnar í landinu og þær tímasettar í grófum
dráttum. Akvarðanir þessar hafa allar minnkað
valfrelsi sjúklinga og möguleika lækna til að þróa
skipulag og gæði þjónustunnar. Allar minnka þær
frelsi starfsfólks til að starfa sjálfstætt, til dæmis
hjúkrunarkvenna og lækna sem bera ábyrgðina.
Sérkennilegt, en á sama tíma og þetta gerist í
heilbrigðisgeiranum, fer fram frelsisbylting í þjóð-
félaginu, til dæmis í bankamálum og hvers kyns
atvinnurekstri, og hefur skilað þjóðinni arði og al-
mennri ánægju. Starfsfólk hefur haldið uppi þeirri
læknis- og sjúkraþjónustu sem enn er við lýði en
mun ekki lengi una því að sérfræðiþekking þeirra
fái ekki að móta vinnubrögðin.
1980 Kosnir stjórnmálamenn koma og fara en
embættismenn, umboðslausir, sitja að málum árum
saman. Uppúr 1980 komu til starfa á Landspítala
kerfiskarlar sem töldu að skrifstofa spítalanna
ætti ekki að þjóna starfsfólkinu og sjúklingunum
eins og verið hafði heldur öfugt, skrifstofan gæfi
skipanir til starfsfólksins. Var nú sett á stofn innan
skrifstofunnar „Aætlana- og hagdeild“ og „gæða-
stofa“ svo og ýmsar nefndir sem læknaráð spítal-
ans og önnur samtök starfsmanna höfðu áður haft
á sinni könnu. Einn skrifstofumaðurinn klæddist
grænum búningi skurðstofulækna með rykkhúfu á
höfði og andlitsmaska og skók hvítvoðung framan
í sjónvarpsmyndavélar. Ekki er örgrannt um að
sumir sem íhuguðu stöðu sína meira en starf hafi
haft nokkra unun af búlúlala-tali manns þessa.
1986 Ungum læknum, sérfræðingum í heimilis-
lækningum, er meinað að byrja störf sem sjálfstætt
starfandi heimilislæknar. Pess er krafist að þeir
vinni á miðstýrðum heilsugæslustöðvum kerfisins.
1989 Sviðsstjórar ráðnir á sjúkrahúsin (hæfnis-
kröfur óljósar, starfsheitið ekki í lögum) og heyra
sviðin undir skrifstofu ríkisspítala og þar með
heilbrigðis- og tryggingaráðuneytið. Þar með er
talið „fræðasvið", stofnað síðar og var undanfari
„Skrifstofu kennslu, vísinda og þróunar", en lækna-
deild HI kemur sérkennilega lítið við sögu þess
sviðs.
1990 Starfsemi göngudeildar kvennadeildar Land-
spítala er rekin af almannafé með tapi til þess að
koma sjálfstæðum rekstri kvensjúkdómalækna á
kné. Þetta er kært og spítalinn tapar málinu fyrir
dómstólum og borgar skaðabætur.
1991 Skriffinni telur sig þess umkominn að
annast afhendingu styrkja úr vísindasjóði lækna á
Landspítala sem læknar greiða í af launum sínum,
en á erfitt með fræðiheiti og gefst upp við þetta.
Reynir nokkru síðar að bola læknum burt vegna
árangurs þeirra og sjálfstæðis í starfi. Notar til þess
hjálp sakleysingja í stjórnarnefnd ríkisspítalanna,
en einn þeirra boðaði óvænt, í rómantískri upp-
hafningu, afturhvarf til náttúrunnar og mælti með
fæðingum í heimahúsum að nýju.
1995 Ráðherra reynir að loka frjálsum aðgangi
sjúklinga að sjálfstætt starfandi sérfræðingum með
skyldutilvísunum. Læknar sýndu í þetta skiptið
órofa samstöðu og ráðherra lét í minni pokann.
Læknisþjónustan varð því ekki eins slæm eins og
hún hefði getað orðið.
1996 Þau nýmæli eru boðuð að ökutæki héraðs-
lækna skuli vera í eigu ríkisins. Ekki er vitað um
bílakost (Fiat pútur eða Hummer jeppar) né fjölda
starfsmanna í ráðuneytinu sem sjá um úthlutun,
afhendingu, eftirlit og viðgerðir.
1997 Læknum sem stunda glasafrjóvganir er
neitað um fullnægjandi aðstöðu á Landspítala en
jafnframt bannað að veita þjónustu sína annars
staðar.
1997 Embætti lækningaforstjóra búin til á sjúkra-
húsunum. Hæfniskröfur óljósar enda embættin
ekki til í lögum. Ahrif læknaráða á stjórn sjúkra-
húsanna minnka. Nefndir læknaráðanna fluttar á
skrifstofur spítalanna.
1999 Hjúkrunarfræðingar í heimahjúkrun gera
sjúklingum kleift að vera heima hjá sér og spara rík-
inu stórfé og þarf að auðvelda þeim sem mest störf
þeirra. Þeir höfðu keypt sér litla bíla til að skutlast
á milli sjúkra. Þetta var of mikið sjálfstæði og heilsu-
gæslan keypti sér sjálf bíla, jók með öðrum orðum
útgjöld til að tryggja völd sín og umsvif.
2000 Sjúkrahúsin í Reykjavík eru sameinuð án
verulegrar könnunar á áhrifum til hagræðis, þjón-
ustu eða gæða í kennslu, vísindum og svo framveg-
Matthías Kjeld
Höfundur er læknir og
efnameinafræöingur.
Læknablaðið 2005/91 465