Læknablaðið - 15.05.2005, Side 81
ÞING / LAUSAR STÖÐUR
Yfirlæknar
Fjórðungssjúkrahúsi(
á Akureyri á meinafræðideild
Staða yfirlæknis á meinafræðideild FSA er laus til umsóknar. Deildin sem er vel tækjum búin og er að flytja í nýtt
húsnæði þjónar um 40 þúsund manns, það er mestöllu Norður- og Norðausturlandi. Árlega berast skurðsýni úr 2.400-
2.500 sjúklingum og krufningar eru á bilinu 45-50, um helmingur þeirra réttarfræðilegur.
Umsóknarfrestur er til 15. júní 2005 og staðan veitist frá 1. mars 2006 eða eftir samkomulagi.
Við ráðningu verður sérstaklega tekið mið af sem víðtækastri reynslu í klínískri vefjameinafræði. Færni í túlkun ónæm-
isfræðilegra litunaraðferða er áskilin ásamt hæfileikum á sviði samskipta, samvinnu og sjálfstæðra vinnubragða.
Nánari upplýsingar veitir Þorvaldur Ingvarsson, framkvæmdastjóri lækninga í síma 463 0100 eða tölvupóstur thi@fsa.is
á myndgreiningardeild
Staða yfirlæknis á myndgreiningardeild FSA er laus til umsóknar. Meðal verkefna yfirlæknis verður fagleg umsjón
með tölvusneiðmynda- og segulómrannsóknum. Yfirlæknir mun hafa umsjón með gerð vinnu- og vaktalista lækna.
Umsækjendur skulu hafa lækningaleyfi á íslandi og fullgild réttindi í myndgreiningu (geislagreiningu). Starfinu fylgir
vaktskylda á deildinni og þátttaka í kennslu heilbrigðisstétta.
Umsóknarfrestur er til 1. júlí 2005 og staðan veitist frá 1. nóvember 2005 eða eftir samkomulagi.
Við ráðningu verður lögð áhersla á faglega þekkingu ásamt hæfileikum á sviði samskipta, samvinnu og sjálfstæðra vinnubragða.
Nánari upplýsingar veitir Halldór Benediktsson, forstöðulæknir í síma 463 0268, 860 0525 eða halldorb@fsa.is
í umsóknum skal gerð grein fyrir náms- og starfsferli, rit-, kennslu- og stjórnunarstörfum svo og sérstökum áhugasviðum faglegs efnis.
Umsóknir á þar til gerðum eyðublöðum ásamt fylgiskjölum skulu berast í tvíriti til Þorvaldar Ingvarssonar, framkvæmdastjóra lækninga,
Eyrarlandsvegi, 600 Akureyri.
Öllum umsóknum verður svarað.
ífæ
q Læknadagar
3 2006
Læknadagar verða haldnir 16.-20. janúar næstkomandi á
Hótel Nordica.
Framkvæmdanefnd skipa eftirtalin:
Arna Guðmundsdóttir, formaður Fræðslustofnunar
Læknafélags íslands,
Ólafur Baldursson, framkvæmdastjóri
Framhaldsmenntunarráðs læknadeildar Háskóla íslands,
Jón Steinar Jónsson, í stjórn Fræðslustofnunar lækna,
Guðjón Birgisson, fulltrúi skurðlækna,
Sigurbjörg J. Skarphéðinsdóttir, fulltrúi Félags ungra lækna,
Sædís Sævarsdóttir, fulltrúi Félags ungra lækna og
Margrét Aðalsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Læknadaga.
Þeim sem eiga erindi við nefndina er bent á að hafa samband
við Margréti, á skrifstofu læknafélaganna, í síma 564 4108
eða í netfangið magga@lis.is
Heilsugæslu-
læknir
Laus er til umsóknar staða heilsugæslulæknis við Heil-
brigðisstofnunina Vestmannaeyjum.
Æskilegt er að umsækjandi hafi lokið sérfræðimenntun
í heimilislækningum.
Um er að ræða 100% stöðu auk bakvakta og er ráðning-
artími samkvæmt samkomulagi. Um er að ræða fasta
stöðu en einnig kemur tímabundin ráðning til greina.
Laun samkvæmt kjarasamningum Læknafélags íslands
og fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs.
Nánari upplýsingar veita framkvæmdastjóri, Gunnar
K. Gunnarsson, í síma 481 1955 gghiv@eyjar.is og yfir-
læknir heilsugæslusviðs, Karl Björnsson, í síma 481
1955 kbhiv@eyjar.is
Læknablaðið 2005/91 477