Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.10.2002, Blaðsíða 110
GAUTI SIGÞORSSON
ist að kennarar stundi rannsóknir og útgáfu. Einkum er þetta mikilvægt
þegar aðstoðarprófessorar eru metnir til fastráðningar (s.k. „tenure“ í
Bandaríkjunum), en einnig við mat á frammistöðu prófessora almennt.
Stundum er þessari kröfu lýst svo að menn eigi val um að gefa út efni
eða farast að öðrum kosti („publish or perish“) og er þá vísað til þess að
rannsóknir og útgáfa eru metin meira en kennsla. Þ\a standa rannsókna-
háskólar ofar í hefðarstiga stofnananna en grunnnámsháskólarnir („coll-
eges“) sem leggja áherslu á nám á B.A.- og B.S.-stigi.12 Rannsóknahá-
skólar hafa tök á að létta kennsluskyldu prófessora með því að láta
meistara- og doktorsnema sjá um hluta kennsltmnar á B.A.-stigi. Fram-
haldsnemar kenna allt að helming allra kennslustunda við flesta af stærri
háskólum í Bandaríkjunum og enn hærra hlutfall allra einkunna er
ákveðið af framhaldsnemum sem kenna sjálfstætt eða sem aðstoðar-
kennarar.13 Þar af leiðandi felur framhaldsnám í menningarfræði við
bandaríska rannsóknaháskóla í sér töluverða vinnu við kennslu af ein-
hverju tagi.
Af því að ánægðir nemendur eru menningarfræðiskorinni það sama og
bragðgóðar fiskafurðir íslensku efnhagslífi fá ffamhaldsnemar talsverða
kennsluþjálfun og starfa alltaf undir gæðaeftirliti prófessora. Við ráðum
ekki hvaða inngangsnámskeið við kennum, en við veljum sjálf námsefn-
ið, semjum fyrirlestra, próf og verkefni, og gefum einkunnir á eigin
ábyrgð. I þjálfuninni er bæði lögð áhersla á hin þrjú klassísku kennslu-
fræðilegu viðföng (nemanda, námsefni og markmið) sem og vinnulag við
kennslu. Þetta vinnulag er ekki bara spurning um gæðakröfur, aðferðir
við einkunnagjöf eða undirbúning fyrirlestra, heldur líka alls konar
„reddingar“ til þess að spara vinnu og forða okkur frá skömm ffammi
fyrir nemendum. Það er einmitt þess vegna sem inér sýnist að í þessum
reddingum og óformlegum ráðleggingum um vinnulag í kennslu birtist
hvað skýrast þær litlu en mikilvægu reglur sem Michel Foucault kallaði
„smátækni valdsins“. Oft er bestu dæmin um þetta einmitt að finna þeg-
12 I Bandaríkjunum er gerður greinarmunur á „college“, þar sem stunduð er kennsla á
B.A.-stígi eingöngu, og „university" sem býður einnig upp á framhaldsnám á meist-
ara- eða doktorsstigi, og þar sem prófessorar stunda frumrannsóknir í sínu fagi.
„Colleges“ geta verið mjög virtar stofnanir, einkum dýrir einkaskólar sem leggja
áherslu á sterk tengsl kennara og nemenda, en innan hvers fags eru rannsóknastöð-
ur alltaf meira metnar.
13 Um atvinnumál framhaldsnema í Bandaríkjunum sjá t.d. greinar um verkfall dokt-
orsnema við Yale veturinn 1995-6 í sérhefti Social Text nr. 49, vetur 1996.
108