Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.10.2002, Blaðsíða 135
Á GRÆNUM GRUNDUM LÆTUR HANN MIG HVÍLAST
Japana sem finnur dauðann nálgast fer með sálminn allan og segir síðan:
‘Það var þetta sem ég þurfti.’ Að svo mæltu gefur hún upp andann. I
kvikmyndinni Revolution (1985) þar sem A1 Pacino leikur aðalhlutverkið
er farið með sálminn í miðri orrustu og í þeirri mynd gegnir sálmurinn
raunar allstóru hlutverki. Þannig mætti lengi telja. Hér skal látið nægja
að nefna nokkrar stríðsmyndir til viðbótar þar sem Sálmur 2 3 kemur við
sögu: Catch 22 (1970), Soldier Blue (1970), Fyrir regnið (Pred dozhdot,
1995) og Miracle at Midnight (1998).
I ljósi gamlatestamentisfræðanna væri þess að vænta að aðrir sálmar
Saltarans væru fremur notaðir í stríðsmyndum en Sálmur 23, sálmar þar
sem Drotmi er lýst sem stríðsmanni, eins og t.d. Sálmur 144 sem raun-
ar kemur mjög við sögu í einhverri áhrifamestu stríðsmynd allra tíma,
Saving Private Ryan (1998). Þar kemur Sálmur 23 einnig við sögu. I bók
sem fjallar um myndina af Drottni sem stríðsmanni í Saltaranum er
Sálmur 23 ekki meðal þeirra tíu sálma (Sálmar 7, 44, 46, 68, 74, 76, 78,
105, 110, 144) sem teknir eru til umfjöllunar.11
Niðurstaða kaflans er sú að verulegur munur sé á notkun sálmsins í
k\ ikmyndum og hvaða augum biblíufræðingar líta hann. Ekkert í Gamla
testamentinu bendir til þess að Sálmur 23 hafi verið tengdur hernaði
enda minnist ég þess ekki að neinn gamlatestamentisfræðingur hafi þall-
að um sálminn í samhengi stríðs eða hernaðar ef exodus-aburðirnir eru
undanskildir en hemaður gegnir vissulega ekki stóm hlutverki þar.
Astir og tilhugalíf
Það er til marks um vinsældir Sálms 23 og mjög svo fjölbreytilega notk-
un að þó að langalgengast sé að hann sé notaður í tengslum við dauða og
útfarir er ekki óþekkt að hann sé notaður á rómantískan hátt, svo sem við
giftingar eða í tilhugalífi. Slík dæmi koma vissulega fyrir í kvikmyndum,
þar á meðal í tveimur ef ekki þremur þeirra kvikmynda þar sem Sálmur
23 gegnir hvað stærstu hlutverki. Þetta em bandaríska myndin Liberty
Heights, norska mvTidin Söndagsengler og að nokkm leyti tékkneska
myndin Kolja.
Myndin Liberty Heights gerist í Baltimore 1954 og greinir frá sam-
11 H.Wayne Ballard 1999. The Divine Warrior Motif in the Psalms. Bibal Dissemtion
Series. D. & F. Scott Pub Inc. Texas.
J33