Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.10.2002, Page 137
Á GRÆNUM GRUNDUM LÆTUR HANN MIG HVÍLAST
eins og gert var í Söndagsengler. Radak vísar á Ljóðaljóðin 1:7-8, en því
má skjóta hér inn að það er gamalt undrunar- og íhugunarefni hvers
vegna Ljóðaljóðin eru yfirleitt í Rimingunni14 þar sem þau virðast, a.m.k.
við fyrsm sýn, vera hrein ástaljóð og Guð er ekki einu sinni nefndur á
nafn þar. I versunum sem Radak vísar til ávarpar unnustan unnusta sinn
með orðunum: ‘Seg mér, þú sem sál mín elskar, hvar heldur þú hjörð
þinni til haga, hvar bælir þú um hádegið? ’ Svar unnustans er: ‘Ef þú veist
það eigi, þú hin fegursta meðal kvenna, þá far þú og rek för hjarðarinn-
ar og hald kiðum þínum.’
Niðurstaðan er sú að notkun kvikmyndanna á Sálmi 23 í tengslum við
tilhugalíf á sér litlar hliðstæður í túlkun ffæðimanna á sálminum en þó
finnst ákveðinn skvddleiki í rabbínskri túlkun, harla einangraðri að vísu.
Snúið út úr sálminum eða honum hreytt
Sýnt hefur verið fram á að notkun sálmsins í Bandaríkjunum nær langt
út fiæir venjulegt kirkjulegt eða trúarlegt samhengi. Afhelgun sálmsins,
ef nota má það orð, birtist meðal annars í því hversu algengt er að snúið
sé út úr sálminum. Eitt slíkt dæmi væri hið vinsæla lag rapparans Coolio
Gangsters Paradise sem margir munu kannast vel við enda var það eitt
vinsælasta lagið hér á landi og víða um heim fyrir fáeinum árum. A ver-
aldarvefhum er hægt að finna ótal dæmi þar sem sálminum er, oft í
gagnrýnisskyni, snúið upp á ýmislegt í samtímanum svo sem Clinton for-
seta og fleira í þeim dúr. Oft er aðeins um það að ræða að aukið er við
sálminn í trúarlegum tilgangi. Sem dæmi um að Sálmi 23 sé breytt nefni
ég kvikmyndirnar Casidties ofWar (1989), Sister Act (1992), The Advent-
ures ofPriscilla, Queen of the Desert (1994) og Pale Rider. Hér mun ég þó
aðeins gera síðastnefndu kvikmyndina að umtalsefni.15 I Pale Rider fer
unglingsstúlka að nafni Megan með sálminn snemma í myndinni eftir að
þorp gullleitarmanna, sem hún býr í, hefur orðið fiæir árás og hundurinn
14 Sjá t.d. Magne Sæbö 1998. „On the Canonicity of the Song of Songs“ í riti sama
höfundar On the -way to the Canon (Journal for the Study of the Old Testament Supp-
lement Series 191). Sheffield Academic Press, bls. 271-284.
15 Pétur Pétursson (2001) hefur fjallað alh'tarlega um kvikmyndina í grein sinni:
„Grettir, Hallgrímur Pétursson og Clint Eastwood. Jesúgervingar í bókmennmm
og kvikmyndum." Guð a' hvíta tjaldinu. Reykjavík. Ritstjórar Bjami R. Sigurvinsson,
Gunnlaugur A. Jónsson og Þorkell A. Ottarsson, bls. 85-110. Þar gerir hann þó ekki
notkun Sálm 23 að umtalsefni.
r35