Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.10.2002, Blaðsíða 61
KROPP LÆGÐ VFIR VESTURHEIMI
4. Langlífar dœgurflugur
En stundum lifir ástin fyrsta brímann af og eins lifa popplögin. Það er ekki
lengur hægt að nota góð íslensk orð eins og dægurlög yfir „She Loves You“
og aðra smelli Bítlanna. Þau hafa ekki gleymst á fimm árum eins og mar-
goft var spáð.16 Stúlkumar sem æptu á Bítlana á sjöunda áratugnum hafa
ekki snúið baki við þeim. Nýtt og nýtt fólk kynnist Bítlunum og nánari
greining á lögum þeirra leiðir í ljós að þau em að vísu einföld en þó flók-
in, eins og popplög em alltaf. I góðu popplagi er eitthvað sem grípur ekki
aðeins heldur nær að heltaka marga hlustendur vikum, mánuðum og jafn-
vel árum saman, kannski ívið meiri sannleikur eða innsýni en í ómerkileg-
ustu afurðum iðnaðarins. Um leið er hægt að nálgast það aftur og aftur.
Dæmi um slíkt popplag er Supertramp-lagið „The Logical Song“ sem
ég held að sé ekkert sérstaklega flókin tónlist en eigi að síður gleymist
það ekki.1 Lyrir utan tónlistina er þar hljómur orðanna nýttur sérstak-
lega vel með rímorðum eins og logical, practical, clinical, intellectual,
cynical, radical, liberal, fanatical, criminal og magical annars vegar en
hins vegar sensible, responsible, dependable, acceptable, respectable,
presentable og vegetable. Hér er semsé hjakkað á rímorðum til að skapa
endurtekningarsaman takt og sá taktur er ágengur, eins og boðskapurinn
sem ljóðmælandinn er að andæfa.
I laginu eru borin saman sakleysi og gleði æskunnar og fullorðinshug-
arfarið sem troðið er upp á börn í skólakerfinu - vinsælt efni í popplög-
um á 8. áratugnum - sem rugla ljóðmælandann svo í ríminu að hann veit
ekki lengur hver hann er. I stuttu máli má segja að hér sé fjallað um til-
finningagreind og rökgreind og hvernig ofuráhersla á hið seinna eyði-
leggur fólk. Lagið sjálft, ekki síst saxófónsóló um miðbik lagsins og dá-
lítið skerandi söngur Roger Hodgson, túlkar angistina yfir þessu á
eftirminnilegan hátt. Lag og texti leika semsé mjög vel saman. Lagið er
gott burtséð frá te.xtanum en án hans væri það sýnu áhrifaminna (eins og
raunar nýleg gerð sveitarinnar Scooter hefur leitt í ljós).
16 Fræg er spásögn Deccaútgáfunnar frá árinu 1962 um að gítarhljómur eins og Bítl-
anna ætti skammt eftir ólifað. Eins mun Mick Jagger hafa gefið Rolling Stones tvö ár
í viðbót í viðtali á sjöunda áratugnum en hljómsveitin starfar þó enn, aðdáendum
síhum til óblandinnar ánægju.
1 „The Logical Song“ er ffá árinu 1979, af breiðskífunni Breakfast in America. Asamt
Roger Hodgson var Rick Davis leiðandi í hljómsveitinni sem var fyrst stofnuð árið
1969. Breakfast in America var fjórða breiðskífa hennar.
59