Frjáls verslun - 01.01.2012, Page 11
FRJÁLS VERSLUN 1TBL. 2012 11
tengd orkumálum og iðnaði.
„Við höfum átt þátt í uppbygg
ingu á nær öllu hitaveitukerfi
landsins og öllum jarðvarma
virkjunum sem byggðar hafa
verið á landinu. Einnig höfum
við komið að langflestum
vatnsaflsvirkjunum landsins og
leiddum hópinn sem hannaði
Kárahnjúkavirkjun. Reynsla
okkar er því mikil á sviði orku
mála og þar er kjarninn í starf
semi okkar en við höfum einnig
mikla reynslu í byggingum og
verkefnum fyrir sveitarfélög og
verktaka.
Stærstu verkefnin okkar í dag
eru á sviði orku og stóriðju en
það stærsta á þeim vettvangi er
stækkun álversins í Straumsvík.
Við erum einnig í alls kyns öðr
um verkefnum, svo sem stærri
byggingum, samgöngum og
veitum svo eitthvað sé nefnt. Hjá
okkur starfa einnig sér hæfðir
ráðgjafar í lýsingu, hljóð vist og
umhverfis og ör yggismálum en
starfsmenn Verkís eru um 320
talsins.“
Afmælishátíð
Það stendur mikið til á afmælis
árinu og víða komið við. „Við
gefum venjulega út fréttabréf
tvisvar á ári en á afmælisárinu
ætlum við að gefa það út fimm
sinnum og leggjum áherslu á að
segja frá atvikum í sögu Verkís,
þeim mönnum sem lögðu hvað
mest á plóginn, ásamt því að
skoða hvernig stofan hefur átt
þátt í uppbyggingu samfélags
ins. Í fréttabréfunum munum
við einnig tilgreina dæmi um
ýmis verkefni sem við höfum
komið að, sem tengjast atvinnu
sögu þjóðarinnar sterkum bönd
um, sem og segja frá nýjum og
spennandi viðfangsefnum.
Þá verðum við með tilkomu
miklar ljósasýningar á Suður
landsbraut 4 á árinu en þar er
LEDlýsing í hverjum glugga
sem hægt er að stýra til að kalla
fram margskonar áhrif og liti.
Byggingin er þar með orðin
vettvangur fyrir það sem kallast
Pixel list og við hlökkum til að
vinna frekar með listamönnum
þar. Einnig ætlum við að lýsa
upp hinar starfsstöðvarnar og
gefa þeim sjö bæjarfélögum þar
sem við erum með starfsstöð
rauða lýsingu á tré. Við erum
þegar búin að afhenda Reykja
vík fyrstu lampana, sem hef ur
verið komið fyrir á horni Lækjar
götu og Amtmannsstígs.
Í maí er komið að því að fagna
áfanganum með starfs fólki,
viðskiptavinum og velunn urum
með tónlistarhátíð sem haldin
verður í Eldborgar salnum í
Hörpu og verður lögð áhersla
á íslenska tónlist undanfarin
80 ár. Er vel við hæfi að hafa
hátíðarkvöldið í Hörpu þar
sem Verkís hefur verið ráðgjafi
húseigandans frá upphafi og
okkar fólk komið nálægt ýms
um þáttum byggingarinnar,
m.a. lýsingarhönnun á torginu
fyrir utan og hljóðhönnun inn
anh úss. Um leið og við fögnum
afmælisárinu með ýmsum
hætti viljum við sýna fram á að
við séum lifandi og margslungið
fyrir tæki sem er í stanslausri
þróun, fyrirtæki sem er að sækja
inn á ný svið með nýju fólki.
Starfs fólk okkar er góð blanda af
reyndu fólki og ungu fólki sem
kemur með nýja strauma og lærir
um leið af þeim reyndari.“
Sameiningin hefur skilað sér
Sveinn Ingi er að lokum spurð
ur hvort sameiningin hafi
skil að tilætluðum árangri. „Það
er engin spurning, sameiningin
hefur skilað sér og þó að við
höf um byrjað á frekar erfiðum
tíma höfum við aldrei fengið
bakþanka. Sameiningin var
nauð synleg því markaðurinn
kallar á stærri fyrirtæki til að
vinna flókin verkefni. Þá gerir
stærð fyrirtækisins okkur kleift
að leita meira til útlanda og
við erum með verkefni víða
erl endis, flest á sviði orkumála.
Stærstu verkefnin í útlöndum
um þessar mundir eru vatns
aflsvirkjanir í Georgíu og á
Grænlandi, en þar erum við
nú að vinna þriðju virkjunina í
samstarfi við Ístak og sjáum um
alla hönnun. Einnig höfum við
unnið að jarðvarmaverkefnum
í Afríku og SuðurAmeríku í
samstarfi við önnur fyrirtæki.
Frá upphafi hefur Verkís
lagt áherslu á jafnrétti og því
til staðfestingar hefur Verkís
fengið, fyrst allra fyrirtækja,
viðurkenningu jafnlaunakönn
unar PWC. Þess má svo einnig
geta að Verkís er annað árið
í röð eitt af framúrskarandi
fyrirtækjum á Íslandi sam
kvæmt úttekt Creditinfo og
því í hópi öflugustu fyrirtækja
landsins.“
Tilkomumiklar ljósasýningar verða á Suðurlandsbraut 4 á árinu en
það má segja að byggingin sé orðin að tómum striga listarinnar.
„Verkís hefur átt þátt í uppbyggingu á nær öllu hitaveitu kerfi landsins og öllum
jarð varmavirkj un um sem byggðar hafa verið á land inu.“