Frjáls verslun - 01.01.2012, Blaðsíða 18
18 FRJÁLS VERSLUN 1. TBL. 2012
Í stuttu máli
Brottrekstur Gunnars Ander sen úr starfi forstjóra Fjármála eftir litsins er sérkennilegur farsi. Það vekur furðu að skipt sé um
hest í miðri á, skipt um forstjóra FME í
miðju uppgjöri bankahrunsins.
Svona lítur þetta út í stuttu máli
gagn vart almenningi: Fínt; við ráð um
þekktan bankamann sem for stjóra í
Fjár málaeftirlitið. Í hverjum fréttatím
an um af öðrum á árunum 1999 til 2001
sagði frá því að hann og fleiri starfs
menn Landsbankans hefðu stofnað afl
andsfélög á Guernsey í Ermarsundi fyrir
ríkisbankann Landsbankann. Allt í einu
uppgötvar stjórn Fjármálaeftirlitsins að
Gunnar hafi gleymt að nefna eitthvert
félag sem hann stofnaði fyrir ellefu
ár um og var á allra vitorði, enda um
ríkisbanka að ræða, þegar hann svaraði
Fjármálaeftirlitinu árið 2001.
Skyndi lega er því haldið fram að svar
hans fyrir ellefu árum hafi verið ófull
nægjandi og beinlínis villandi.
Fleira vekur athygli. Á mánudeginum
eftir að bréf stjórnar FME til Gunnars
og brottrekstur hans var á allra vörum
sagðist Aðalsteinn Leifsson, formaður
stjórnar FME, harma að málefni forstjór
ans væru orðin umfjöllunarefni fjölmiðla
– enda lægi ekkert fyrir um uppsögn hans.
Síðar var upplýst að í bréfi Aðalsteins
til Gunnars hefði þetta staðið: „Með
því að nú er ljóst orðið að ekki verður
af samkomulagi milli FME og þín um
starfs lok er þér með þessu bréfi kynnt sú
fyrirætlan stjórnar FME að segja þér upp
störfum sem forstjóra stofnunarinnar.
Uppsögnin er með sex mánaða fyrirvara
frá næstu mánaðamótum í samræmi
við ákvæði ráðningarsamnings þíns.
Þá er það jafnframt fyrirætlan stjórn
ar að lýsa því yfir að ekki verði óskað
eftir vinnuframlagi þínu á upps agnar
tímanum.“
Brottrekstur gunnars
sérkennilegur
Gunnar Andersen, forstjóri
Fjár mála eftir lits ins.
„Með því að nú er ljóst orðið að ekki verður af samkomulagi milli FME
og þín um starfs lok er þér með þessu bréfi kynnt sú fyrirætlan stjórnar
FME að segja þér upp störfum sem forstjóra stofnunarinnar.“
Það vakti furðu allra þegar frétt ir voru sagðar af því að Gunnari And er sen,
forstjóra Fjár málaeftir lits ins,
var sagt upp í miðju upp gjöri
á banka hrun inu. Ekki vakti
það minni athygli þegar Stein
grímur J. Sig fússon sagðist
fyrst hafa frétt af upp sögninni
í frétt um föstudaginn 16.
febrúar. Það þótti furðulegt að
forstjóra Fjár mála eftirlitsins
væri sagt upp nema stjórn
völd vissu af málinu, ekki síst
Steingrímur, efna hags og við
skiptaráðherra.
Enda kom svo í ljós að Stein
grím ur vissi af málinu frá
byrjun og hafði fundað um
það með Aðalsteini Leifs syni,
stjórnarformanni Fjár mála
eftirlitsins. Svo kom snilldin
hjá Steingrími á Alþingi 21.
febrúar. „Ég sagðist ekki hafa
vitað af því að uppsögnin
hefði farið fram fyrr en ég
heyrði um slíkt í fjölmiðlum,
enda kom á daginn að það var
ekki rétt. Forstjóra Fjármála
eftirlitsins hefur ekki verið
sagt upp heldur hefur stjórnin
rætt við hann um möguleg
starfslok.
Í þessu sambandi er mikil
vægt að hafa það á hreinu
að Fjármála eftirlitið er og á
að vera sjálf stætt í störfum.
Þann ig er um það kveðið í
lögum.“
Hann hafði sem sé ekki heyrt um uppsögnina
vegna þess að hún var ekki
frá gengin; Gunn ar átti and
mæla rétt yfir helgina eða
fram á mánudag. Sá réttur var
síðan framlengd ur um viku.
Það er líka mjög mikilvægt að
það komi skýrt og grein i lega
fram að stjórn Fjár mála eftir
litsins á að vera sjálf stæð.
STEINGRíMUR J. Á ALþINGI:
ég sagðist ekki haFa Vitað aF þVÍ
Steingrímur J. Sigfússon á Alþingi:
„Ég sagðist ekki hafa vitað af því.“