Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.2012, Side 27

Frjáls verslun - 01.01.2012, Side 27
FRJÁLS VERSLUN 1TBL. 2012 27 Þekktu sjálfan þig þau hafa orðið Þjálfum heilabúið! Thomas Möller, framkvæmdastjóri Rýmis: STJÓRNUN Hurðaskellir Fjöldi þeirra kvenna sem eru við stýrið hjá fimm hundr uð stærstu banda­ rísku fyrir tækjunum hafði rétt náð átján – sem er met eins furðul ega og það hljómar – þegar snyrti­ vörufyrirtækið Avon Pro ducts tilkynnti fyrir stuttu að hafin væri leit að eftirmanni Andreu Jung, framkvæmda stjóra fyrir tækisins til fjölda ára. Í 125 ára sögu fyrir ­ tækisins hefur rekst urinn byggst á sjálfstæðum sölufulltrúum, hinni svokölluðu „Avon­konu“. Kjör orð Avon, „fyrir tækið fyrir konur“, stendur sæmi lega fyrir sínu. Það skapaði á sínum tíma tækifæri til sjálfstæðs atvinnu ­ rekstrar fyrir konur, 95 árum áður en fyrsta konan tók sæti í Hæstarétti Bandaríkjanna, 76 árum áður en fyrsta konan stýrði Fortune 500­fyrirtæki og 34 ár ­ um áður en bandarískar konur fengu kosningarétt. Í dag ræðir um 6,5 milljónir leikmanna sem selja milliliðalaust, í heimasölu, til viðskiptavina. Þegar Andrea tók við stjórnar ­ taumunum fyrir tólf árum var Avon í vanda en hún lét strax kröftuglega til sín taka og tók fram leiðslu, umbúðir, auglýsingar og önnur sölumál í gegn. Framan af jókst velta fyrirtækisins hægt og bítandi en undanfarin ár hefur heldur gefið á bátinn. Og ekki ein ungis í hinum beinharða rekstri. Fyrirtækið hefur dregist inn í mútumál en svo virðist sem fé hafi verið borið á embættismenn m.a. í Kína, Brasilíu, Mexíkó og Argentínu. Yfirstjórnendur Avon sögðu upp nokkrum starfsmönn ­ um sem tengdust þeim málum. Að sögn var það Andrea sjálf sem viðraði þá tillögu að nýr fram kvæmdastjóri yrði fundinn í hennar stað og að hún starfaði áfram sem formaður stjórnar fyrir tækisins, en bæði störfin hafa verið á hennar herðum. Andrea segir að nýr framkvæmdastjóri muni sjá hlutina ferskum augum og efla forystu fyrirtækisins. Einhverjir myndu segja að það væri ekki daglegt brauð að fram ­ kvæmdastjóri stórfyrirtækis segði, ótilneyddur, að gagn gæti verið að því að fá nýjan fyrirliða.“ Skemmtileg heilræði um þjálfun manns­heilans er að finna í nýlegri grein í Newsweek. Við þurf um sem sagt að þjálfa gráu sellurnar ekki síður en skrokkinn og felst ein besta heilaleikfimin í að læra nýtt tungumál,“ segir Thomas Möller. Hann segir að í greininni sé fólki ráðlagt að horfa á Shakespeare­leikrit af og til, fara reglulega á söfn, tefla, prjóna peysur og læra á hljóð færi. „Rafleiðni heilans eykst við að drekka fjóra kaffibolla á dag og í greininni erum við hvött til að nota handskrift í auknum mæli. Handskrift setur fleiri heilasellur í gang en lyklaborðsskrift og við munum lengur það sem við handskrifum. Einnig er mælt með því að við gerum hlé á vinnu okkar á 25 mínútna fresti en við aukum í rauninni afköstin með stuttu hléi. Þá þykir gott fyrir heilastarf ­ sem ina að fara reglulega út úr bænum en með því að komast í snertingu við náttúr una af og til náum við betur að vinna úr því gífurlega upplýsingamagni sem við innbyrðum í borginni. Þessi ráð bæta minnið, hækka greindarvísitöluna og eiga að undirbúa okkur betur fyrir efri árin og ekki síst að bæta mögu­ leika okkar á vinnumarkaði að sögn Newsweek. Öll símenntun eflir heilastarf­ semina og allt er betra en sófi, skjár og sjónvarp sem virðist vera helsta tómstundastarfsemi nútímamannsins sem ver allt að 35 klukkustundum á viku í fjölmiðla, netið og afþreyingu. Vel þjálfaður heili á auðveldara með að vinna úr upplýsingum, er hugmyndaríkari, er fljótari að leysa vandamál og sneggri að greina aðalatriðin frá auka­ atrið unum. Allt þetta staðfestir eld gamlan og góðan íslenskan máls hátt sem á vel við í dag: Meira vinnur vit en strit.“ Loftur Ólafsson, sérfræðingur hjá Íslandssjóðum: ERLENDI FORSTJÓRINN „Að læra að þekkja eigin hæfi­ leika og ann arra er ekki aðeins gagnlegt fyrir stjórnand ann sjálf ­ an því hópar, deildir og fyrir ­ tæki hafa einnig kjarna hæfi leika og eiginleika sem gagnlegt er að þekkja.“ – Ingrid Kuhlman Ingibjörg Þórðardóttir segir fasteignamarkaðinn hafa tekið vel við sér í upphafi árs og umsvif aukist umtalsvert frá sama tímabili á síðasta ári. Einn­ ig hafi fasteignaverð hækkað jafnt og þétt síðastliðið ár eða um 9%. „Það er undirliggjandi eftir­ spurn og trú á markaðnum. Almenningur á ýmsa möguleika nú hvað lánafyrirgreiðslu varðar í íbúðakaupum og eru bank­ arnir á ný farnir að bjóða lán til húsnæðiskaupa. Þar ber mest á óverðtryggðum lánum, sem meirihluti kaupenda tekur. Ég tel það vera eina af þeim leiðum sem færar eru til þess að útrýma verðtryggðum húsnæðislánum og geri jafnframt ráð fyrir því að lífeyrissjóðirnir komi inn á þann lánamarkað. Íbúðalána­ sjóður hefur tilkynnt að á sumri komanda fari hann að veita óverðtryggð lán. Fjárfesting á húsnæðismarkaði hefur sýnt sig að vera góð á umliðnum mán uðum og tel ég að svo verði áfram.“ Eftirspurn á mark­ aðnum Ingibjörg Þórðardóttir, formaður Félags fasteignasala: FASTEIGNAMARKAÐURINN
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.