Frjáls verslun - 01.01.2012, Side 60
60 FRJÁLS VERSLUN 1. TBL. 2012
félaginu en engar upplýsingar styðja það. Í
samtali við Skúla aftók hann það með öllu.
Það var djörf ákvörðun að fara með fél
ag ið til Kanada en þar fékk það hins vegar
fyrir greiðslu og stuðning frá þarlendum
yfir völdum enda umhverfi sprotafyrirtækja
mun hagstæðara en hér á landi. Til að skilja
tækifæri félagsins betur verður að skoða það
sem Oz var að starfa við und ir það síðasta. Þá
var félagið að hanna við mót milli netsins og
farsíma og hafði góða samninga við sænska
farsímarisann Erics son um þróun á slíku. Var
svo komið að Oz hafði fengið tilkynningu
um að banda ríski fjarskiptarisinn AT&T
hygðist taka búnaðinn í reynsluprófanir.
Daginn eftir að tilkynning um það
barst kom áfallið. Skelfilegt uppgjör hjá
Ericsson hafði knúið stjórnendur félagsins
til að end ur skoða starfsemina. Deildin
sem hafði verið í samstarfi við Oz var lögð
niður. Tekjur félagsins hurfu og ástandið á
fjárfestingamörkuðum, í kjölfar þess að net
bólan sprakk, gerði það að verkum að nýir
fjárfestar fengust ekki að félaginu. Ævintýrið
um Oz virtist búið spil.
Tíminn í Kanada reyndist hins vegar gjöfull og að lokum tókst að leiða
finnska fjar skiptarisann Nokia að borðinu
og keyptu þeir félagið með húð og hári.
Ná kvæmar sölutölur hafa ekki legið fyrir
en þeir sem til þekkja áætla að salan hafi
verið einhvers staðar á bilinu 130 til 180
milljónir dala (16 til 22 milljarðar kr. m.v.
gengi 122 á dollar). Enn og aftur er ekki hægt
annað en að horfa á líkindi með Björgólfi
Thor sem seldi Bravobjórverksmiðjuna fyrir
350 milljónir dala til Heineken en Deutsche
Bank fékk um helming þess. Og rétt eins og
Björg ólfur Thor kom Skúli heim og keypti
banka!
Bankamaður
Síðan Skúli hóf að fjárfesta markvisst hér
á Íslandi fyrir rúmum tveimur árum má
áætla að hann hafi fjárfest fyrir ríflega tvo
milljarða króna. Í ljósi fjárfestingaæðis
áranna 2002 til 2008 eru það ekki tiltakan
lega háar upphæðir en skipta samt máli í
samhengi hlutanna á Íslandi í dag. Sé Skúli
með eiginfjárstöðu upp á 8 til 10 millj arða
króna lætur nærri að hann hafi bundið
um tíunda hlut af eigin fé sínu í MP banka
en þar stærsta einstaka fjárfesting hans
á Íslandi. Skúli á í gegnum Títan 17,5%
hlut en skráð hlutafé bankans er um 5,5
milljarðar króna. Skúli fékk Þorstein Páls
son, fyrrverandi forsætisráðherra, til að
gegna stjórnarformennsku en aug ljóst er
að aðrir hluthafar líta svo á að Skúli leiði
verkefnið. Þess má geta að í því eftir lits
umhverfi sem er á Íslandi í dag þurfti Skúli
að fara í gegnum harða rann sókn af hálfu
Fjármálaeftirlitsins áður en hann fékk að
kaupa kjölfestuhlut í bank an um. Það að
standast slíka skoðun hlýtur að teljast
nokkuð sterk meðmæli.
Það er hins vegar ekki víst að allir átti
sig á því að það var Jón Gunnar Jónsson,
núverandi forstjóri Bankasýslu ríkisins,
sem hafði að nokkru frumkvæði að því
að fá Skúla sem fjárfesti að MP banka en
þeir eru kunningjar frá æskuárunum. Jón
Gunnar starfaði hjá fjárfestingabankanum
Merrill Lynch frá 1992 til 2008. Frá sumrinu
2010 hafði Jón Gunnar að langmestu
leyti verið á Íslandi en hann vann að fjár
hagslegri endurskipulagningu MP banka
20102011 og sat í stjórn hans um tíma.
Meðal annarra kjölfestuhluthafa í MP
banka eru Sjólasystkinin svokölluðu (börn
Jóns Guðmundssonar, útgerðarmanns í Sjóla)
sem hafa sterka eiginfjárstöðu og eru meðal
annars í hluthafahópi fjár fest ingafélagsins
Eyris. Þess er án efa vænst af meðhluthöfum
Skúla að hann leiði og stýri MB banka sem
er að reyna að marka sér stöðu sem val
kost ur við stóru viðskiptabankana þrjá.
Það er án efa ekki auðvelt að brjótast áfram
með nýjan banka í því umhverfi sem bank
arn ir starfa nú í á Íslandi. Sjálfsagt hefur
það ekki verið til að létta brúnina á fjár
fest unum að lög um fjársýsluskatt tóku
gildi um síðustu áramót en þau kveða á
um skatt á laun upp á 5,45% af launum
starfsmanna fjármálafyrirtækja. Þessi
skattur er einstakt fyrirbæri í heiminum sem
rýrir samkeppnisstöðu íslenskra banka í
samkeppni við erlenda, sem hjálpa ekki eins
og sakir standa. Það eru mikl ar áskoranir
framundan og ekki allir bjart sýnir á að
banki með svo lítið eigið fé eigi auðvelt
með að keppa við stóru viðskiptabankana.
Fjárfestingin í MP banka er ekki eina fjár
málatengda fjárfesting Skúla því árið 2010
varð hann einn af hluthöfum Tinda verð
bréfa sem runnu inn í Auði Capital um síð
ustu áramót. Greitt var með hlutabréfum
en hlutur hans í Auði er óverulegur.
Tekur flugið
Nú í haust vakti síðan mikla athygli þegar
greint var frá stofnun nýs flugfélags þar
sem Skúli leiðir fjárfestahópinn. Flug
félagið WOWair mun byrja að fljúga í vor
og þang að til geta menn reynt að venjast
nafn inu en vissulega kom mörgum á óvart
að Skúli skyldi stíga þar niður fæti. Aðild
Matthíasar Imsland, fyrrverandi fram
kvæmda stjóra Iceland Express, skapaði úlfúð
hjá Iceland Express enda má segja að sam
keppninni sé augljóslega beint að þeim.
En rétt eins og á við um Iceland Express
verður hér fremur um að ræða ferða skrif
stofu en flugrekstur. Fjárbinding lítil en
fjárstreymi gott, ef allt gengur að óskum!
Flug og ferðaskrifstofurekstur hefur
reynst mörgum fjárfestum skeinuhættur
samanber brandarannn um það hvernig
eigi að verða ríkur flugrekandi, jú með því
að byrja sem ofsalega ríkur fjárfestir! En
vitaskuld er ekki hægt að horfa framhjá
því að mörgum Íslendingum hefur gengið
ágætlega að byggja upp ferðaskrifstofu
og flugrekstur. Andri Már Ingólfsson er
skýrt dæmi um það og hafa glöggir menn
í flugrekstri talið sig sjá að þangað séu
fyrir myndir sóttar. Matthías og Baldur
Oddur Baldursson munu bera daglega
ábyrgð á rekstri WO Wair og eru gefnir
upp sem meðfjár festar Skúla. Baldur, sem
fæddist árið 1967, er framkvæmdastjóri
og jafn framt framkvæmdastjóri Títan
fjárfestinga fé lags. Þrátt fyrir að Baldur hafi
víða komið við í íslensku viðskiptalífi á
undan förnum árum og setið í stjórnum og
gegnt stjórnarformennsku í fjölda íslenskra
fyrirtækja, meðal annars Húsa smiðjunni,
Allianz, Skeljungi og Verði vátrygg inga
félagi, hefur hann fram til þessa haldið
sig fjarri kastljósi fjölmiðla. Baldur er nú
stjórnarformaður Securitas, situr í stjórn
Thor Datacenter og WOWair og þá er
hann einnig varamaður í stjórn MP Banka.
Allt félög sem Skúli á hlut í og er því ekki
óeðlilegt að telja Baldur hægri hönd Skúla.
Áfram í upplýsingatækninni
Í ljósi ferils Skúla þarf ekki að koma á óvart
að hann hafi fjárfest í upplýsinga tækni
fyrir tækjum. Nú síðast keypti hann 5%
hlut í Skýrr sem nú hefur fengið framandi
heiti við hæfi, Advania. Skúli mun setjast í
stjórn fyrirtækisins á næsta aðalfundi. Títan
greiddi 150 milljónir króna fyrir hlutinn
en fjárfestingin er vissulega áhugaverð
í ljósi þess Advania er eitt af tíu stærstu
upplý singatæknifyrirtækjum Norðurlanda,
með víðtæka starfsemi í fjórum löndum.
Áður hafði gagnavörslufyrirtækið Thor
Datacenter verið selt til Skýrr en Skúli
átti þá helmingshlut í félaginu. Hvaða
hlutverk Skúli ætlar sér innan Advania
á eftir að koma á daginn en í tilkynn ingu
sem send var út við kaupin sagði hann
að fyrirtækið smellpassaði inn í fjár fest
inga stefnu Títan. Óhætt er að segja að
félagið standi á gömlum grunni, en hefur
tekið grundvallarbreytingum og vaxið hratt
undan farin tvö ár gegnum sam einingar á
átta fyrirtækjum bæði hér heima og erl endis.
Advania hefur gengið í gegn um mikla endur
skipulagningu síðustu misseri og greint hefur
verið frá áformum um skrán ingu félagsins
í kauphöll, jafnvel tvöfaldri skráningu.
Almennt er því gert ráð fyrir að Skúli muni
auka hlut sinn fram að skrán ingu félagsins.
Þá fer að reyna á hve stórt hlutverk hann
ætlar sér hjá félaginu til frambúðar.