Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.2012, Síða 94

Frjáls verslun - 01.01.2012, Síða 94
94 FRJÁLS VERSLUN 1. TBL. 2012 eins og langt kvæði „Ég man að eftir þessa miklu ræðu hans voru menn á því að hann hefði farið offari – væri bitur og velktur af langri fangavist og illri meðhöndlun – en síðar kom í ljós að hann hafði mikið til síns máls og má segja að þarna hafi hann sagt fyrir um það sem síðar varð,“ segir Sigmar B. Hauksson um fyrirlestur rússneska rithöfundarins Alexandrs Solzhenitsyns. Sigmar B. Hauksson ráðgjafi segir að einn eftirminnilegasti erlendi fyrirlesarinn að sínu mati sé rúss­ neski rithöfundurinn Alexandr Solzhenitsyn en Sigmar hlustaði á fyrirlestur hans í Stokkhólmi fyrir um 34 árum. Solzhenitsyn hafði hlotið bókmenntaverðlaun Nóbels árið 1970 en ekki haft tök á að veita þeim viðtöku þar sem hann sat þá í fangelsi. „Hann kom inn á sviðið í fylgd öryggisvarða sem gættu örygg­ is hans; þetta voru burstaklippt­ ir menn með eitthvað í eyrun­ um. Rétt áður en hann byrjaði á fyrirlestrinum hrundi tjald fyrir aftan hann sem nota átti í tengslum við myndvarpa og brá fólki og þá ekki síst öryggisvörð­ unum. Menn stóðu upp og þetta vakti mikla athygli. En það var einn maður sem brá ekki og það var sjálfur Solzhenitsyn. Hann sýndi engin svipbrigði.“ Síðan hófst fyrirlesturinn. Solzhenitsyn talaði blaðlaust í rúman klukkutíma og af miklum ákafa að sögn Sigmars. „Hann talaði af mikilli ástríðu. Það var eins og hann væri að flytja eitt langt kvæði. Hann fjallaði aðeins um Sovét ríkin en hann vildi ekki eyða of miklum tíma í það því hann sagði að þau myndu hrynja. Það sem var merkilegt var að hann sagði eiginlega fyrir um fjármálakreppuna sem varð 2008. Hann fjallaði um þá vegferð sem Vesturlönd væru á leiðinni í. Hann fjallaði um græðgisvæðinguna og rangar áherslur og hélt því fram að þessi stefna og lífsstíll nærði fjármálageirann sem væri þá eftirlitslaus og að þetta myndi enda með ósköpum eða hruni. Honum varð mjög tíðrætt um hlutverk manneskjunnar í vest ­ rænu samfélagi sem leiksopp neyslunnar og að það samfélag sem fólk lifði í fram að kreppu væri hreint og beint mann ­ fjandsamlegt og raunar hættu ­ legt manninum. Ég man að eftir þessa miklu ræðu hans voru menn á því að hann hefði farið offari – væri bitur og velktur af langri fanga ­ vist og illri meðhöndlun – en síðar kom í ljós að hann hafði mikið til síns máls og má segja að þarna hafi hann sagt fyrir um það sem síðar varð. Hann var eins og spámaður og þetta voru algjörlega ný viðhorf sem hann flutti því að á þessum tíma voru allir á því að við værum á réttri leið.“ TExTi: svava jÓnsdÓTTir Sigmar B. Hauksson. Undirbúningur er aðalatriðið vegna þess að ræða verður aldrei betri en undir bún ­ ingurinn sem lagður er í hana. Ræðumaður þarf að vera með það á hreinu hvert efnið er og nota góðan tíma til undir bún ­ ings til þess að kynna sér það, setja nákvæmlega niður það sem hann ætlar að tala um og skrifa annaðhvort niður punkta eða ræðuna í heild. Og það þarf að æfa sig. Það gleymist oft að það er ekki það sama að þekkja efnið vel og koma því frá sér í ræðu fyrir framan fólk.“ Jóhannes Þór segir að þegar ræðumaður er kominn í pontu þurfi hann að halda athygli áheyr enda. „Ef ræðumaður nær ekki strax athygli áheyrenda er meiri hætta á að þeir hætti að fylgj ast með í miðri ræðu eða fái aldrei áhuga á því sem er verið að segja jafnvel þótt það sé áhugavert. Efnið verður ekki áhugavert sjálfkrafa þegar það er sett fram; það verður að gera það áhugavert. Það þarf að setja það fram á einhvern hátt sem gerir það að verkum að áheyrandann langar til að fylgj ast með. Það er eiginlega gald urinn við ræðumennsku hvern ig menn gera það.“ Að halda athygli áheyrenda Jóhannes Þór segir að það sé stundum vandi að halda athygli áheyrenda þegar um langar ræður er að ræða. „Það getur verið erfitt að halda athyglinni eftir kannski fjóra fyrirlestra fyrir hádegi. Þá kemur það í hlut ræðumannsins að reyna að ná til áheyrenda með því að hafa efnið áhugavert og koma reglu ­ lega með punkta sem vekja athygli. Það má gera á margan hátt – það er hægt að vera með einfalda glærusýningu sem vek ur athygli á grundvallarpunkt unum en menn verða að passa sig á að vera ekki með glærur sem eru með miklum texta því það svæfir áheyrendur fyrr en flest annað. Það á frekar að vera með ein­ faldar glærur með myndum eða einföldum texta; einni setningu eða einhverju slíku á hverri glæru sem kemst að kjarna þess sem ræðumað urinn er að segja.“ Jóhannes Þór segir að ræða þurfi að vera uppbyggð á þann hátt að hún haldi athyglinni á aðalatriðinu; því sem er verið að kynna. Ef það eru nokkur atriði sem skipta máli þá geti verið gott að byggja hana upp á þann hátt að menn byrji á einu atriði og af því leiðir annað. „Það getur verið gott að endur taka – koma aftur að sama punkt inum og útskýra hann á nokkra mismunandi máta.“ Jóhannes Þór segir að áhersl­ an eigi að vera á aðalatriði ræðunnar. „Það er helsta trikkið sem ég hef séð ótal ræðumenn á ótal ráðstefnum einfaldlega klúðra. Stundum vita menn of mikið um efnið, sérstaklega á fræðiráðstefnum, og gera þau mistök að ætla að koma of mörgu að. Það er oft mun áhrifa­ rík ara að vera með einfaldara efni og leggja áherslu á að koma kjarnanum vel til skila.“ TExTi: svava jÓnsdÓTTir Jóhannes Þór Skúlason. „Það þarf að setja það fram á ein­ hvern hátt sem gerir það að verk­ um að áheyrand­ ann langar til að fylgjast með. Það er eiginlega gald­ urinn við ræðu­ mennsku.“ undirbúningur og æfing mikilvæg Jóhannes Þór Skúlason hefur þjálfað fólk í ræðumennsku og segir að undirbúningur- inn sé aðalatriðið og nauðsynlegt sé að halda athygli áheyrenda.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.