Frjáls verslun - 01.01.2012, Page 96
96 FRJÁLS VERSLUN 1. TBL. 2012
Margir möguleikar í Hörpu
Í Hörpu er fjölbreytt úrval af ráðstefnu og fundarsölum sem henta vel
fyrir stærri sem smærri tilefni. „Allir salir Hörpu eru búnir fyrsta flokks
tækjabúnaði en mikið er lagt upp úr hljóðkerfum og lýsingu.“
ráðstefnu og fundahaLd í hörPu
Salurinn Silfurberg er helsti ráðstefnusalur Hörpu og tekur hann allt að 750 manns í sæti en allt að
1.100 manns ef um standandi
viðburð er að ræða. Salurinn er
sérhann aður til ráðstefnuhalds
með fjölbreyttri uppstillingu
sviðs og sæta og stillanlegum
hljómburði fyrir talað mál. Hægt
er að skipta salnum í tvennt
með fellivegg sem er hljóðein
angraður og rúmar þá hvor
hluti hans mest 325 gesti í sæti.
Aðrir stórir salir í Hörpu eru
salirnir Norðurljós, sem rúmar
allt að 450 manns í sæti, og
Kaldalón, sem er með hallandi
sætaröðum eins og bíósalur og
rúmar allt að 195 manns í sæti.
Einnig er fjölbreytt úrval af
minni sölum sem henta vel fyrir
smærri fundi.
Að auki má nefna 2.500 m²
sýningarsvæði sem hentar vel
til sýningarhalds í tengslum við
ráðstefnur og fundi.
Leikið með hljóð og lýsingu
„Það er mikið lagt upp úr
hljóm burði í Hörpu en tvennar
hljóð einangraðar dyr tengja
Silfurberg og Norðurljós,“ segir
Karitas Kjartansdóttir, ráðstefnu
stjóri í Hörpu. „Einnig er hægt
að samnýta salina fyrir stærri
viðburði. Í Silfurbergi t.d. miðast
hljómburður við talað mál en
er stillanlegur og er hægt að
breyta yfir í rafmagnaða tónlist.
Í Hörpu er einnig fyrsta flokks
tækjabúnaður til funda og
ráð stefnuhalds. Allir salirnir eru
búnir HDskjávörpum, stór um
sýningartjöldum, öflugu hljóð
kerfi sem og sérhönnuðum púlt
um. Í Silfurbergi eru inn byggðir
túlkaklefar sem hægt er að nota
þegar alþjóðlegir viðburðir eru í
húsinu og þörf á túlkaþjónustu.
Salurinn Norðurljós er búinn
sérhönnuðum ljósabúnaði sem
hægt er að stilla í ýmsum lit
brigð um og búa þannig til þá
stemningu sem óskað er eftir;
ef sterkur rauður eða blár litur
er í lógóinu er hægt að hafa
þá liti sem þema í lýsingunni á
veggjunum. Salurinn Kaldalón
býr einnig yfir þessum mögu
leika.“
Meiri möguleikar
Harpa er í miðborg Reykjavík
ur og segir Karitas það vera
mikinn kost; húsið sé í göngu
færi við hótel, verslanir, veitinga
staði og kaffihús og þetta er eitt
af þeim atriðum sem horft er á
þegar verið er að velja áfanga
stað fyrir ráðstefnur.
Vinsældir ráðstefnu ákvarðast
mikið af staðsetningu hennar
og Ísland er álitið mjög spenn
andi áfangastaður, mitt á milli
Evrópu og Ameríku.
„Við viljum gjarnan að Íslend
ingar átti sig á þeim möguleik
um sem Harpa býður upp á.
Margir íslenskir aðilar sækja
viðburði erlendis og ég vil reyna
að fá fólk til að hugsa meira um
það að við getum öll lagst á eitt
um að selja Ísland sem áfanga
stað. Við getum núna með
tilkomu Hörpu haldið viðburði
á Íslandi sem við höfum ekki
getað haldið áður.“
„Allir salirnir eru búnir HD-skjávörpum, stórum sýningartjöldum, öflugu hljóð-
kerfi sem og sérhönnuðum púltum.“
TExTi: svava jÓnsdÓTTir
karitas kjartansdóttir.