Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.2012, Side 114

Frjáls verslun - 01.01.2012, Side 114
114 FRJÁLS VERSLUN 1. TBL. 2012 Stoð hefur ekki verið áberandi fyrirtæki utan heilbrigðisgeir­ans á Íslandi. Fagleg vinnubrögð, sérfræði þekking og gott starfs­ fólk hefur hins vegar sann arlega skilað sínu til samfélagsins fyrir þá sem eiga við stoðkerfis­ vanda mál að stríða eða þurfa á hjálpartækjum að halda,“ segir Elías Gunnarsson, framkvæmda­ stjóri Stoðar, en fyrirtækið fagnar þrjátíu ára afmæli á þessu ári og stendur af því tilefni fyrir opn um fræðslufundum reglu­ lega allt afmælisárið. Hjá Stoð starfa nú 29 manns á Íslandi og fimm í Danmörku. Í starfsmannahópnum eru stoðtækjafræðingar, skósmiðir, stoðtækjasmiðir, þroskaþjálfi, íþróttafræðingur og fleira reynt fólk. Starfsstöðvar fyrirtækisins eru fjórar: Í Trönuhrauni 8 í Hafnarfirði er verkstæði og mót­ taka, á annarri hæð í Orkuhús­ inu, Suðurlandsbraut 34 í Reykjavík, er megináhersla á fótavandamál, skósmíði og inn­ leggjagerð og dótturfyrirtækið Bandagist.dk hefur aðsetur á tveimur stöðum í Danmörku; í Hróarskeldu og Glostrup. „Stoð leitast við að veita ein­ staklingum sem vegna meiðsla, fötlunar eða veikinda þurfa á stuðningi við líkama sinn að halda framúrskarandi þjónustu sem byggð er á sérþekkingu og reynslu starfsmanna. Ennfremur kappkostar Stoð að veita sér­ fræðingum og starfsmönnum á endurhæfingar­ og bæklun­ arsviði þjónustu með upplý s­ ingamiðlun og stuðningi, svo þeir eigi auðveldara með að sinna skjólstæðingum sínum.“ Í tilefni af tímamótunum stendur Stoð fyrir ellefu opnum fyrirlestrum og kynningum, allt afmælisárið. Þar fjalla sér fræðingar Stoðar og ýmsir sam starfsaðilar, erlendir jafnt sem innlendir, um ýmis mál sem tengjast stoð­ og hjálpartækjum og öðru því sem getur auð veld­ að þeim lífið sem þurfa á slíkum stuðningi að halda. Fræðslu­ fund irnir eru öllum opnir en er ætlað að höfða sérstaklega til starfsfólks og nemenda í heil brigðisgeiranum, sem og viðskiptavina. Fræðslufundirnir verða ýmist í hjálpartækjasal Stoðar í Trönuhrauni 8 eða á Hótel Hafnarfirði, sem er til húsa steinsnar frá Stoð, á Reykjavíkur­ vegi 72. Fyrsti fræðslufundurinn, „Stutt við bakið“, var 26. janúar og hinn 23. febrúar er svo komið að þeim Ástu S. Halldórsdóttur og Guðmundi R. Magnússyni stoðtækjafræðingum að segja frá nýjustu straumum í þróun gervilima og gestafyrirlesari með þeim verður John Mortimer frá samstarfsaðilanum Otto Bock í Þýskalandi. Sá fræðslufundur verður á Hótel Hafnarfirði. „Ég hef almenna ánægju og áhuga á vinnunni enda með skemmtilegu fólki nánast allan daginn. Áhugamálin eru algjör­ lega árstíðabundin, á vetrum er stundað hnit í TBR tvisvar í viku, leikfimi tvisvar í viku með hinum fræknu AGGF (Afrekshópi Gauta Grétarssonar fimleika­ stjóra) og svo skíðaiðkun, helst í Ölpunum ef hægt er að koma því við. Á sumrin er það aðal­ lega útivera eins og gönguferð­ ir, golf og stangveiði og svo skotveiði á haustin. Við eigum einnig lítinn bóndabæ í Suður­ sveit með öðrum hjónum og þar skortir ekki verkefnin.“ Elías Gunnarsson – framkvæmdastjóri Stoðar „Stoð leitast við að veita einstaklingum sem vegna meiðsla, fötlunar eða veikinda þurfa á stuðn­ ingi við líkama sinn að halda framúrskarandi þjónustu sem byggð er á sérþekkingu og reynslu starfsmanna.“ Nafn: Elías Gunnarsson Fæðingarstaður: Reykjavík, 17. janúar 1953 Foreldrar: Gunnar Runólfsson og Ingibjörg Elíasdóttir Maki: Ingunn Sæmundsdóttir verk­ fræðingur Börn: Sæmundur verkfræðingur, Kjartan verkfræðingur og Elías Ingi verslunarmaður Menntun: Verkfræðingur frá Technische Universität Berlin 1979. Löggiltur verðbréfamiðlari 2005. FÓlk ÍS L E N S K A S IA .I S I C E 5 5 2 8 4 0 6 /2 0 1 1 Fyrirtæki sem eru með samning við Icelandair njóta þess í hagkvæmari rekstri, betri tímanýtingu og ánægðara starfsfólki. Hlunnindi sem fyrirtækjasamningur veitir: I Sérstakur ferðaráðgjafi hefur umsjón með hverju fyrirtæki. I Neyðarnúmer sem er opið allan sólarhringinn – alla daga ársins. I Afsláttur sem býðst af fargjöldum til áfangastaða Icelandair. I Nákvæmt viðskiptayfirlit á vefnum. + Allar nánari upplýsingar á www.icelandair.is/fyrirtaeki eða sendið fyrirspurnir á fyrirtaeki@icelandair.is ER ÞITT FYRIRTÆKI MEÐ SAMNING? ECONOMY COMFORT Meiri þægindi, góð vinnuaðstaða, rafmagnsinnstunga fyrir tölvu.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.