Frjáls verslun - 01.04.2013, Blaðsíða 18
18 FRJÁLS VERSLUN 4. 2013
Jóhanna María Sigmundsdóttir, 21 árs framsóknarmaður, er yngsti þingmaður
sem kjörinn hefur verið á Alþingi. Jóhanna var 21 árs og 303 daga gömul
þegar hún var kjörin á þing 27. apríl sl. Hún sló met Gunnars Thoroddsen sem
var 23 ára og 177 daga gamall þegar hann komst fyrst á þing 1934.
Yngsti þingmaðurinn frá upphafi
þiNgmaðUR
Jóhanna var 21 árs og 303 daga
gömul þegar hún var kjörin á þing
27. apríl sl. Hún sló met Gunnars
Thoroddsen sem var 23 ára og
177 daga gamall þegar hann
komst fyrst á þing 1934.Jóhanna
var að vonum ánægð með árang
urinn og sagði við frétta menn
að þegar hún hefði farið að sofa
um nóttina hefði hún verið inni
sem þingmaður en ekki búist við
að vakna sem þingmað ur. Hún
sagðist afar þakklát fyrir tækifærið
og taldi að kjör sitt sýndi að ungt
fólk gæti látið til sín taka.
Jóhanna maría Sigmundsdóttir, 21 árs framsóknarmaður, er yngsti þingmaður Íslendinga frá upphafi.
opnihaskolinn.is | opnihaskolinn@opnihaskolinn.is | Sími 599 6200
Verkefnastjórnun aPMe
(Applied Project Management Expert)
Nám á háskólastigi. Kennt í fjarnámi. Veitir ígildi 24 ECTS-eininga
inn í grunnnám við tækni- og verkfræðideild HR. Lýkur með
alþjóðlegu IPMA-prófi til vottunar um þekkingu nemenda á
aðferðafræði verkefnastjórnunar. Lögð er áhersla á tölulegar
greiningar við ákvarðanatöku og stjórnun rekstrar og verkefna.
Hefst 7. september
Ábyrgð og Árangur stjórnarManna
Námskeiðið er ætlað stjórnarmönnum fyrirtækja, stofnana og
eftirlitsskyldra aðila samkvæmt skilyrðum FME, sem og þeim sem
hyggjast gefa kost á sér til stjórnarsetu. Markmið námslínunnar
er að efla faglegan grunn þátttakenda m.a. með þjálfun á sviði
lagalegra, fjárhagslegra og siðferðilegra þátta auk umfjöllunar
um endurskoðun og áhættustýringu.
Hefst 11. september
MarkþjÁlfun
(Executive Coaching)
Nám á háskólastigi þar sem áhersla er lögð á stjórnendamark-
þjálfun og helstu áskoranir stjórnenda í íslensku atvinnulífi.
Veitir ígildi allt að 12 ECTS-eininga í valdar námsleiðir innan
viðskiptadeildar HR. Námið undirbýr nemendur fyrir alþjóðlega
ACC/PCC vottun (Associate/Professional Certified Coach) og
veitir þeim traustan grunn til að starfa sjálfstætt sem markþjálfar.
Leiðbeinandi er Cheryl Smith, en hún býr yfir rúmlega 25 ára
reynslu af leiðtogaþjálfun fyrir stórfyrirtæki og ríkisstofnanir
í Bandaríkjunum.
Hefst 12. september
stjórnun aðfangakeðjunnar – nÝtt
(Supply Chain Management Programme)
Lögð er áhersla á að auka þekkingu þátttakenda á heildarmynd
aðfangakeðjunnar. Námið er hannað að alþjóðlegri fyrirmynd og
byggir á fræðilegum grunni en áhersla er lögð á að námið sé
hagnýtt og efnistök því aðlöguð að íslensku atvinnulífi. Námið
er kennt í lotum og hentar sérstaklega sérfræðingum og
stjórnendum fyrirtækja sem starfa á sviði framleiðslu, þjónustu,
dreifingar og inn- eða útflutnings.
Hefst 18. september
PMD – stjórnenDanÁM Hr
(Programme for Management Development)
Námið er hannað að alþjóðlegri fyrirmynd og lagað að íslenskum
aðstæðum til að efla faglega þekkingu og færni stjórnenda.
Sérfræðingar og samstarfsaðilar Háskólans í Reykjavík sjá um
kennsluna sem er byggð að miklu leyti á hagnýtum verkefnum.
Námið hentar vel þeim stjórnendum sem vilja bæta menntun sína
án þess að skuldbinda sig í langtímanám.
Hefst 19. september
strauMlínustjórnun
Þróun viðskiptaferla með stöðugum framförum
(Lean Management Programme)
Heildstætt nám í aðferðum straumlínustjórnunar, stöðugra
umbóta og þróunar viðskiptaferla. Námið miðar að því að varpa
ljósi á þá möguleika til umbóta og framfara sem felast í viðskipta-
ferlum fyrirtækja. Námið hentar sérstaklega sérfræðingum og
stjórnendum framleiðslu- og þjónustufyrirtækja sem hafa áhuga
á að skoða nánar möguleika þessara aðferðafræða.
Hefst 19. september
stafræn Markaðssetning – nÝtt
(Professional Digital Marketing)
Námið miðar að því að auka skilning nemenda á markaðssetningu
og viðskiptum á netinu og efla færni þeirra við notkun á þeim
tækjum og tólum sem til staðar eru. Námið er ætlað markaðsfólki
og því gert ráð fyrir að umsækjendur búi yfir skilningi á grunn-
þáttum markaðsfræðinnar. Um er að ræða metnaðarfullt og
hagnýtt nám sem byggt er upp í samstarfi við viðskiptadeild HR
og fremstu sérfræðinga landsins á sviði viðskipta og markaðs-
setningar á netinu.
Hefst 26. september
skaPaðu þér sérstöðu Á VinnuMarkaði
Opið er fyrir umsóknir í lengri námskeið Opna háskólans í HR sem hefjast á haustönn.
„Við vorum með stóran hóp stjórnenda með ólíkan
bakgrunn á sérsniðnu námskeiði þar sem lögð var
áhersla á stjórnun, mannleg samskipti og aukið
fjármálalæsi. Námskeiðin voru blanda af fræðilegu
efni og verklegu, námsefnið og kennslan voru
fagleg og áhugi á okkar fyrirtæki skein í gegn hjá
leiðbeinendunum. Við vorum mjög ánægð með
námskeiðið.“
þórhildur ólöf Helgadóttir
Framkvæmdastjóri fjármálasviðs Securitas.
OPNI HÁSKÓLINN Í HR BÝÐUR FJÖLBREYTT ÚRVAL VANDAÐRA NÁMSKEIÐA
FYRIR STJÓRNENDUR OG SÉRFRÆÐINGA Á SVIÐUM TÆKNI, VIÐSKIPTA OG
LAGA. NÁLGUN NÁMSEFNISINS ER HAGNÝT OG Í TAKT VIÐ STRAUMA OG
STEFNUR ATVINNULÍFSINS.
Menntun fyrir atvinnulíf og saMfélag