Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.2013, Side 50

Frjáls verslun - 01.04.2013, Side 50
50 FRJÁLS VERSLUN 4. 2013 E nginn óvandabundinn þekkir Ragnheiði Elínu betur en Geir H. Haarde, fyrrverandi for ­ sætis ráðherra. Það var fyrir hans til verknað að hún hóf beina þátt töku í stjónmálum með því að verða að stoðarmaður hans í fjár mála ráðu­ neytinu árið 1998. „Ég þekkti hana ekki áður en hún kom til mín sem aðstoðarmaður,“ segir Geir. „Ég hafði þó fengið ábendingar og kynnt mér menntun hennar og fyrri störf. Ég sá að hún gæti bætt ýmislegt upp það sem á vantaði hjá ráðherra.“ Samstarf þeirra stóð í níu ár og hún að ­ stoðaði Geir sem fjármálaráðherra, utan ­ ríkis ráðherra og forsætisráðherra. Síðan hafa þau verið vinir segir Geir, heimilis vinir. „Ég þekki það að í svona erilsömum stöf ­ um getur komið upp pirringur og leið indi,“ segir Geir. „Þetta er endalaus vakt en aldrei man ég eftir öðru en að Ragn heiður Elín hafi haldið sínu góða skapi. Hún er mjög skemmtileg í umgengni og hefur þægilega nærveru.“ SkeMMtiLeg Og AFgerAndi Í samtölum við fólk, sem þekkir Ragn heiði Elínu, kemur oft fram þáttur í fari hennar sem annars birtist ekki í rifrildi í þinginu. Það er hið góða skap og fyndnin. „Hún er skemmtileg og mjög afgerandi kona,“ segir andstæðingurinn Katrín Júlíusdóttir, sem einu sinni gegndi því em b ætti sem Ragnheiður hefur nú. „Það er gaman að vera með henni því hún er dríf andi og um leið húmoristi. Hún er líka einn harðsnúnasti stjónmálamaður sem ég hef kynnst, toppmannseskja. Hún þarf ekki langa aðlögun til að verða ráðherra.“ Geir þekkir þessa hlið vel og minnir á að Ragnheiður er líka góð eftirherma. „Hún getur skipt um ham ef hún vill,“ segir Geir. „Þetta er manneskja sem getur sér gott orð hvar sem hún kemur, ekki bara vegna þess að hún er dugleg og klár heldur líka svo skemmtileg. Þegar einhver þyngsli eru í vinnunni er gott að hafa einhvern sem getur létt á mönnum brúnina.“ Geir bendir líka á hinn mannlega þátt sem kom á óvart í ráðuneytinu: „Hún hafði eldri drenginn sinn með sér í vinnuna fljótlega eftir að hann fæddist,“ segir hann. „Lét hann sofa í vagni á stigapalli bak við skrifstofu fjár ­ málaráðherra. Þetta var ekki alveg eftir bókinni hjá okkur gamlingjunum en sýnir að vinnuna vildi hún ekki vanrækja.“ SvOLÍtiL tHAtCHer Í Henni Ögmundur Jónasson, Vinstri­grænum, er úr stjórnarandstöðu en hefur ýmislegt gott um Ragnheiði að segja: „Mér sýnist hún vera traustur banda ­ maður og vinur vina sinna,“ segir Ög ­ mundur. „Þetta dæmi ég meðal annars af því hve vel hún vildi standa við hlið Geirs H. Haarde í hans hremmingum en hún var hjálparhella hans í ráðuneyti langa hríð. Þetta er ótvíræður mannkostur.“ En Ögmundur bætir við: „Ég er hins vegar ekki viss um að hún sé sérstakur vinur náttúrunnar, sem er skelfileg til ­ hugsun með hliðsjón af því að hún er iðnaðar ráðherra og getur sem slíkur reynst náttúru perlum okkar skeinuhætt. Svo held ég að það sé svolítil Thatcher í henni. Hugsa að henni finnist það jafnvel vera hrós.“ Sterk Í HeiMAkjÖrdæMi Ásdís Halla Bragadóttir þekkir Ragn ­ heiði Elínu vel úr starfi innan Sjálfstæðis ­ flokksins, m.a. meðan hún var aðstoðar ­ mað ur Geirs H. Haarde. Hún leggur áherslu á hve mannblendin Ragn heiður er: „Hún er dugleg að sækja manna mót og hún notar sumarfríið til að tala við fólk í kjördæminu,“ segir Ásdís Halla. „Hún á mjög auðvelt með að umgangast fólk og er skemmtileg,“ segir Ásdís Halla ennfremur. „En hún er nagli og dugleg, ofboðslega dugleg og kraftmikil. Hún lifir og hrærist í því sem hún gerir og vill gera allt vel enda er hún sterk í sínu heima ­ kjördæmi.“ uMdeiLd AtvinnuSteFnA Það er stóriðjustefna sem veldur mestri gagnrýni á Ragnheiði Elínu eins og fram kom hjá Ögmundi. Katrín Júlíusdóttir er líka gagnrýnin á þennan þátt: „Mér finnst hún vilja ganga mjög langt í að beita ríkisvaldinu í atvinnumálum,“ segir Katrín Júlíusdóttir. „Það er ekki alveg kórrétt sjálfstæðisstefna. Hún hefur áður beitt sér fyrir sitt kjördæmi og yfirlýsingar hennar nú um Helguvík benda til að hún vilja nota ríkisvaldið til að koma því máli í höfn. En hún hefur líka sett sig vel inn í atvinnu­ og orkumál.“ Geir vill ekki gagnrýna Ragnheiði fyrir atvinnustefnuna en segir: „Hún er hörkudugleg og þrælskemmtileg. Líka hörð og fylgin sér ef því er að skipta og lætur ekki sinn hlut; fljót að setja sig inn í mál og varð að gera það frá ólíkum sjónarhornum í ólíkum ráðuneytum. Ég mælti eindregið með því að hún færi í framboð fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Hún spurði mig álits.“ Ragnheiður Elín Árnadóttir er sá ráðherra í núverandi ríkisstjórn sem kemst næst því að hafa verið ráðherra áður. Það er eftir níu ára störf við hlið ráðherra í þremur ráðuneytum. HúMOriStinn Ragnheiður Elín árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra: ragnHeiður eLín árnadóttir fædd í reykjavík 30. september 1967. Stú d­ enspróf Kvennaskólanum í reykjavík 1987. Ba­próf í stjórnmálafræði HÍ 1991. MS­próf í alþjóðasamskiptum frá Georgetown uni­ versity í Bandaríkjunum. Starfsmaður Útflutningsráðs Íslands 1995­ 1998, aðstoðarviðskiptafulltrúi 1995­1996, viðskiptafulltrúi í New York 1996­1997 og verkefnisstjóri í reykjavík 1997­1998. að­ stoðar maður Geirs H. Haarde í fjármála­, utan ríkis­ og forsætisráðuneytum 1998­2007. fjölþætt nefndarstörf og stjórnarseta. alþingismaður Sjálfstæðisflokks í Suðvesturkjördæmi 2007­2009 og Suður kjör ­ dæmi frá 2009. formaður þingflokks sjálf ­ stæðismanna 2010­2012. iðnaðar­ og viðskiptaráðherra frá 23. maí 2013. Eiginmaður: Guðjón ingi Guðjónsson fram­ kvæmdastjóri. Tveir synir og tvær stjúpdætur. „Hún er hörkudugleg og þrælskemmtileg.“ Geir H. Haarde. 100 ÁhRiFamEStU koNURNaR 2013 TexTi: Gísli KrisTjánsson / Myndir: Geir ólafsson
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.