Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.2013, Síða 54

Frjáls verslun - 01.04.2013, Síða 54
54 FRJÁLS VERSLUN 4. 2013 V in sældir formanns Vinstri grænna koma ekki á óvart. Katrín Jakobs dótt ir náði á loka spretti kosningabarátt­ unnar að rétta hlut Vinstri grænna og forða flokkn um frá ljótu tapi. Í nýlegri könnun MMR kom fram að 62,5 prósent aðspurðra sögðust bera mikið traust til Katrínar. Sigmundur Davíð Gunn­ laugssson forsætisráðherra varð að sætta sig við 48,8 prósent í sömu könnun. Niðurstaða könnunarinnar hlýtur að vera umhugsunarefni fyrir aðra stjórn mála ­ menn. Katrín hefur getið sér orð fyrir hóf ­ sama framgöngu. Stjórnmálastíll hennar er annar og stilltari en leiðtogar í íslenskum stjórnmálum hafa tamið sér í meira en öld og er þá langafi hennar, Skúli Thoroddsen, meðtalinn. LAngt inn Í SAMFyLkingu Þetta er sérstaklega eftirtektarverð niður ­ staða því í ljós kom að Katrín nýtur meira trausts samfylkingarfólks en þeirra eigin formaður. Nær undantekningarlaust ber samfylkingarfólk mikið traust til Katrínar en fjórði hver flokksmaður nefnir ekki formann sinn, Árna Pál Árnason. Ef til vill felast í þessu meiri tíðindi. Fylgi flokka til vinstri tvístraðist í síðustu kosn­ ingum. Eigi færri en fimm flokkum er hægt að raða upp á vinstri vænginn með vel yfir 40 prósent fylgi en mikið af því féll dautt vegna sundrungarinnar. Því væri ekki óeðli legt þótt vinstrimenn færu enn á ný að tala um sameiningu og samstöðu. Hver ætti þá að hafa þar forystu? Ja, hver nema Katrín? En fyrst verður að hugsa um nýhafið kjör ­ tímabil. Stjórnarandstaðan er veik burða. Það er eftirtektarvert hve lítið hef ur sést til andstöðuflokkanna. Stjórnar andstaðan er lömuð vegna þess hve hlutur hennar var rýr í kosningunum, sérstaklega þeg ar talin eru þingsætin sem fengust fyrir atkvæðin. ÞegAr SPÁð Í FrjÁLSri verSLun Katrín er í aðstöðu til að taka forystu meðal stjórnar andstæðinga vegna þess trausts sem hún nýtur. Skömmu fyrir kosningar birtist hér í Frjálsri verslun nærmynd af Katrínu sem og öðrum formönnum. Stefanía Óskarsdóttir stjórnmálafræðingur benti þar einmitt á þessa sérstöðu Katrínar: „Hún hefur þótt óumdeild og málefnaleg. Samanborið við Steingrím er hún lág ­ stemmd, sem er bæði kostur og galli. Það á eftir að koma í ljós hvort henni fellur betur að vera hluti af hópnum eða foringi hans,“ sagði Stefanía. Á komandi kjörtímabili kemur í ljós hvort Katrín verður „hluti af hópnum eða foringi hans“. góðir MÖguLeikAr Núna er Katrín óumdeildur foringi Vinstri grænna. Það lá raunar fyrir um leið og hún tók við formennskunni nokkuð óvænt fyrir kosningar af Steingrími J. Sigfússyni. Ólafur Ísleifsson hagfræðingur benti á þetta í nærmyndinni hér í Frjálsri verslun: „Hún virðist hafa óskoraðan stuðning flokksmanna sinna,“ sagði Ólafur og það hefur gengið eftir. Eiríkur Bergmann, prófessor á Birföst, sá líka fyrir sér góða möguleika hjá Katrínu: „Nái hún að forða flokknum frá afhroði ætti Katrín að geta siglt lygnan sjó í forystu VG,“ sagði Eiríkur og einnig það hefur geng ið eftir. vAndræðAMÁLin guFA uPP Katrín erfði líka vandræðamál, sem nú virðast gufa upp. Umsóknin um aðild að Evrópusambandinu varð Vinstri grænum þung í skauti. Hluti þingflokksins fór á síðasta kjörtímabili vegna hennar. Nú hafa kaupfélagsmenn í Framsóknar­ flokkn um tekið að sér að slátra þessu ESB­ máli þannig að Katrín þarf ekki að réttlæta umsókn fyrir flokksmönnum sínum. Eins var kosningaloforð Steingríms J. Sig ­ fússonar um stóriðju á Bakka við Húsa vík með miklum ívilnunum ríkisins. Í stór iðju ­ málum ætlar ríkisstjórnin að ganga enn lengra og tryggja álver í Helguvík með sömu rökum. Sóknarfæri Katrínar eru einmitt í um ­ hverfismálum. Hún á mest fylgi sitt meðal ungs fólks í þéttbýli og það er langur vegur á milli þess og svo fylgismanna ríkis stjórnarinnar á lands byggð inni. Um ­ hverfismálin verða mál stjórnar andstöð­ unnar. Katrín Jakobsdóttir hefur unnið svolítinn sigur eftir kosningar. Hún nýtur meira trausts en nokkur annar íslenskur stjórnmálamaður. FOringi anDStöðUnnaR Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna: TexTi: Gísli KrisTjánsson / Myndir: Geir ólafsson „Það á eftir að koma í ljós hvort henni fellur betur að vera hluti af hópnum eða foringi hans.“ katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna. 100 ÁhRiFamEStU koNURNaR 2013 Spennandi tilboð sem henta öllum kylfingum. 1 PUNKTUR = 1 KRÓNA Í VIÐSKIPTUM VIÐ N1 Meira í leiðinniWWW.N1.IS N1 KORTIÐ MEÐ FORGJÖF SÆKTU UM KORT Á N1.IS ÍS L E N S K A /S IA .I S /E N N 6 4 4 3 0 0 5 /1 3
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159
Síða 160
Síða 161
Síða 162
Síða 163
Síða 164
Síða 165
Síða 166
Síða 167
Síða 168
Síða 169
Síða 170
Síða 171
Síða 172
Síða 173
Síða 174
Síða 175
Síða 176
Síða 177
Síða 178
Síða 179
Síða 180

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.