Frjáls verslun - 01.04.2013, Page 64
64 FRJÁLS VERSLUN 4. 2013
100 ÁhRiFamEStU koNURNaR 2013
„Síðastliðið ár hefur einkennst af
góðum sigrum á sviði samræmingar
og samþáttunar eftir nokkur róstusöm
ár samruna. Mikilvægum verkefnum
er lokið og ferlar myndaðir sem gera
okkur vel í stakk búin fyrir framtíðina.
Af öðrum vettvangi sem ég starfa á var
ég mjög stolt þegar Stefnir fékk vottun
sem fyrirmyndarfyrirtæki í stjórnar
háttum, en ég er stjórnarfor maður
þar, sem og það hlutverk sem Stefnir
hefur tekið að sér með fjárfestingum í
óskráðum félögum, sem hafa verið líf
legar á árinu.“
Hrund segir að sex orða ævisagan sé
fimm orða: Hver er sinnar gæfu smiður.
Hún segir að Birna Einarsdóttir,
banka stjóri Íslandsbanka, sé fyrirmynd
sín í stjórnun. „Hún er ótrúlegur nagli
og dugnaðarforkur. Hún hefur sýnt
mikla staðfestu við að sigla skútunni
farsællega í gegnum úfinn sjó. Hún er
óhrædd við að vera kona í karllægum
heimi og ofan á allt saman hefur hún
dásamlegan húmor.“
Hrund er með því að sett verði sérstök
jafnlaunastefna innan fyrirtækja.
„Ójafnrétti getur laumast inn með ótrú
lega lúmskum hætti í ýmsum stærðum
og gerðum og uppgötvast stundum
ekki nema með kerfisbundnu eftirliti.“
Hún segir að ráð sitt til ungra stjórn
enda sé að vera virkur bæði innan
starfs og utan. „Tækifærin liggja ekki
síst í að taka þátt í þjóðmálaumræðu,
samfélaginu, stjórnmálum, stjórnum
félaga, hagsmunagæslu eða á hvaða
vettvangi öðrum sem getur þrosk
að viðkomandi, þróað og gefið
nauðsynlegt tengslanet.“
Hrund segir að brýnasta verkefni
nýrrar ríkisstjórnar sé að koma
atvinnulífinu í gang.
Hrund er í stjórn eimskipa og veritas
og er stjórnarformaður Stefnis.
hver er sinnar gæFu sMiður
Hrund Rudolfsdóttir, framkvæmdastjóri hjá Marel:
helga margrét Reykdal,
frkvstj. Truenorth ehf.
og í stjórn Hörpu.
Reitir fasteignafélag er stærsta þjónustufyrirtæki
landsins á sviði útleigu atvinnuhúsnæðis. Okkar
sérsvið er að finna þínu fyrirtæki rétt húsnæði.
Atvinnuhúsnæði
sem hentar þér
Kringlunni 4–12
103 Reykjavík
www.Reitir.is
Reitir@Reitir.is
Sími
575 9000