Frjáls verslun - 01.04.2013, Page 86
86 FRJÁLS VERSLUN 4. 2013
100 ÁhRiFamEStU koNURNaR 2013
„Mörg brýn verkefni eru á döfinni og þar ber
hæst kjarasamningana, en þar er undir bún
ingur á fullu og að mörgu að huga. Auk þess
hefur VR lagt fram aðalstefnumálið sitt, sem
er starfsmenntamál, en það á að vera eitt af
verkefnum stéttarfélagsins að hefja þjónustu
og verslunarstörf til virðingar. Við vonumst
einnig til að hefja vinnu við undirbúning á
sveigjanlegum starfslokum en það er að okkar
mati mannréttindamál að launamenn hafi val
um hvenær og hvernig þeir hætta störfum.“
Ólafía segir að sex orða ævisagan sé móð
ir, amma, tengdamamma, stjórnandi og
formaður VR.
Ólafía segir að sér finnist það afar brýnt
að sett verði sérstök jafnlaunastefna innan
fyrirtækja. „VR hefur ávallt verið framarlega í
því að vekja athygli á launamismun kynjanna,
nú síðast með verkefninu „Jafnlaunavottun
VR“ en VR hefur á síðustu áratugum lagt
áherslu á að berjast gegn launamun kynj
anna.“
Hún segir að ungir stjórnendur ættu að
setja sig í spor annarra og auka hæfni sína
í mannlegum samskiptum. „Þegar upp er
staðið eru það oft góð mannleg samskipti sem
eru eitt af aðalsmerkjum afburðastjórnanda.“
Ólafía telur að brýnasta verkefni nýrrar
ríkisstjórnar sé að skapa stöðugleika, sem sé
grundvöllur að bættum kjörum. „Áskorun til
nýrrar ríkisstjórnar er að ná sátt við launafólk
og auka velferð, atvinnu og kaupmátt.“
ólafía er í stjórn virk og Starf.
Barist gegn launaMun kYnjanna
Ólafía B. Rafnsdóttir, formaður VR:
Ólafía B. Rafnsdóttir segir að formannskosningarnar séu það sem hafi staðið
upp úr hjá VR á árinu en þetta er í fyrsta skipti í 122 ára sögu félagsins sem kona
er kosin formaður. VR er stærsta stéttarfélagið á landinu og eru félagsmenn um
þrjátíu þúsund.
Ragnhildur geirsdóttir,
frkvstj. rekstrar og
upplýsingatækni.
Ellý katrín
guðmundsdóttir,
borgarritari.