Frjáls verslun - 01.04.2013, Page 93
FRJÁLS VERSLUN 4. 2013 93
100 ÁhRiFamEStU koNURNaR 2013
„Styrkur fyrirtækisins hefur komið vel í ljós
á síðasta ári þar sem á brattann hefur verið að
sækja. Deyfð atvinnulífsins, köflótt eftir spurn
eftir fólki og rekstrarniðurskurður hjá fyrir tækj
um hefur óneitanlega bitið í. En með þraut
seigju, ráðdeild og fjölbreyttri ráðgjöf hefur þetta
gengið nokkuð vel svo við erum tiltölulega sátt
og bjartsýn á að betri tíð sé nú framundan.“
Katrín segir að sex orða ævisagan sé: Ævin er
gleðileg og farsæl ennþá.
Ætli einhver stjórnandi sé fyrirmynd hennar?
„Fyrirmynd mín hefur alltaf verið stjórnandinn
sem er traustur og samkvæmur sjálfum sér,
hvetur og veitir öðrum svigrúm, sýnir virðingu,
skilning og væntumþykju og tekur sjálfan sig
ekki of hátíðlega.“
Katrín segir að ungir stjórnendur ættu að hafa
í huga að flýta sér hægt, vanda sig og færast
ekki of mikið í fang. Þá segir hún að þeir ættu
að hlusta á hollráð þeirra sem reyndari eru því
stjórnun sé enginn galdur heldur eintóm skyn
semi.
„Jafnlaunastefna á rétt á sér þar sem sömu
störf eru unnin af báðum kynjum samhliða. Það
má samt aldrei gleyma því að það þarf að vera
hvati til að fólk sé tilbúið að leggja hart að sér og
samkeppni er oftast af hinu góða sé sanngirni
og skynsemi höfð að leiðarljósi.“
Katrín segir að brýnasta verkefni nýrrar ríkis
stjórnar sé að sýna í verki virðingu, traust og
kröftuga forystu sem byggð er á heilindum í
samstarfi við hlutaðeigandi til að sameinast
um árangur í verki. „Það þarf samstillt átak til
að afnema gjaldeyrishöftin sem fyrst, koma
böndum á verðbólgu og lækka vaxtastig til að
eðlilegur vöxtur og framþróun geti átt sér stað.
Stöðugleikinn er alger forsenda.“
katrín er í stjórn Hagvangs.
stöðugleikinn er alger Forsenda
Katrín S. Óladóttir, framkvæmdastjóri Hagvangs:
Jónína S. Lárusdóttir,
frkvstj. lögfræðisviðs Arion banka