Frjáls verslun - 01.04.2013, Page 96
96 FRJÁLS VERSLUN 4. 2013
100 ÁhRiFamEStU koNURNaR 2013
skýr jaFnréttis-
og jaFnlaunasteFna
Janne Sigurðsson, forstjóri alcoa-Fjarðaáls:
Janne Sigurðsson segir að það
verði seint fullþakkað hversu
mikið starfsmenn Fjarðaáls
leggi á sig til að afla fyrirtækinu
og samfélaginu tekna þannig
að unnt sé að halda áfram að
vinna landið út úr kreppunni.
„Það var líka mjög ánægjulegt
þegar Alcoa hlaut fyrr á árinu
jafnréttisverðlaun Catalyst í
Banda ríkjunum, en þar átti
Fjarða ál stóran hlut að máli,
enda eftirtektarvert um allan
heim hversu margar konur starfa
hjá fyrirtækinu, hlutfallið hjá
Fjarða áli þykir óvenjuhátt í áliðn
aðinum.“
Janne bendir á að nýlegar
upp lýsingar sýni að konur hér
á landi hafi að meðaltali 18%
lægri laun en karlar. Það sýni
að jafnrétti sé ekki náð og því
nauð synlegt fyrir öll fyrirtæki að
leggja sitt af mörkum til að ná
því. Af þeim sökum sé þörf fyrir
sérstaka jafnlaunastefnu innan
fyrirtækja. „Við hjá Fjarðaáli
höfum bæði skýra jafnréttisstefnu
og jafnlaunastefnu.“
Þegar Janne, sem er dönsk, er
spurð um sex orða ævisöguna
segir hún: „Bauninn sem vill vera
á Íslandi.“
Hún nefnir Margaret Thatcher
sem fyrirmynd. „Ég er stundum
kölluð „álfrúin“ í gríni borið
saman við „járnfrúna“ Margaret
Thatcher sem, burtséð frá hvort
menn voru sammála henni í
pólitík eða ekki, komst áfram
í hörðum karlaheimi. Það eru
m.a. konur eins og hún sem hafa
breytt aðstæðum kvenna.“
Janne segist vera með tvö
heilræði til ungra stjórnenda:
„Hafðu hugrekki til að vera þú
sjálf(ur) og ef þú hefur metnað til
að komast áfram skaltu einbeita
þér að því sem þú ert að gera
núna og vinna vel með öllum
samstarfsmönnum þínum. Ekki
sækjast eftir nýju starfi fyrr en þú
hefur starfið sem þú ert í 110% á
valdi þínu. Náir þú því þá koma
tækifærin til þín.“
Varðandi brýnustu verkefni
nýrrar ríkisstjórnar segir Janne að
það þurfi að tryggja atvinnulífinu
stöðugleika. „Það verður að auka
framleiðslu í hagkerfinu til að
bæta lífskjör þjóðarinnar.“
janne situr í stjórn Alumin i um-
industriens Miljøsekretariat –
norrænna samtaka áliðn að arins,
AWn (Alcoa womens net work)
og er í fagráði Austurbrúar.
arna harðardóttir,
framkvæmdastjóri hjá Auði
Capital og situr í fjölda stjórna
fyrir hönd Auðar Capital.
auður þórisdóttir,
yfir endurskoðunarsviði KPMG á Íslandi.